Sjónvarp kirkjunnarÍ sjónvarpi kirkjunnar er að finna stutt myndbönd og viðtöl. Sjónvarpið er að finna á YouTube svæði kirkjunnar á: youtube.com/user/thjodkirkjan. Ekki gleyma að vera vinir innflytjenda„Fordómar á Íslandi fara frekar minnkandi,“ segir Toshiki Toma, prestur innflytjenda, „en það þýðir ekki að fordómar séu ekki til á Íslandi. Við þurfum að horfast í augu við þá staðreynd og reyna að minnka fordóma.“ Hvernig þjóðfélag viljum við eiginlega?„Hvernig þjóðfélag viljum við eiginlega?“ spyr sr. Þórhallur Heimisson í pistli sem birtist á trú.is í dag. Þórhallur var fundarstjóri á borgarafundi um fátækt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Réttlæti, umhyggja og reisn í hnattvæddu markaðssamfélagiÞegar við höfum skoðað skuldavanda þjóða hefur það alla jafna tengst þjóðum á suðurhveli jarðar. Það setur málin í ákveðið pólitískt samhengi, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Á Íslandi er um að ræða skuldavanda þjóða á norðurhveli jarðar. Ísland sem fyrirmynd og Ísland sem lexíaVið höfum séð gjá myndast milli efnahagskerfis og samfélags manna í heiminum, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Þetta hefur haft djúpstæð áhrif. Vandinn hér á Íslandi er dæmi um þetta og hér á landi getur að líta afleiðingar þessarar gjár, afleiðingar ábyrgðarleysis og skorts á siðferðisramma. Ólögmætar skuldir og lífið í hnattvæddu samfélagiVið höfum mikla reynslu í Lh af því að fást við fjárhagsleg áföll og krísur, segir Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Við höfum fjallað mikið um ólögmætar skuldir og viljum deila þeirri reynslu með Íslendingum og íslensku kirkjunni. Aftur á æskuslóðirnarEftir rúman mánuð tekur sr. Hildur Eir Bolladóttir til starfa við Akureyrarkirkju. Hún er að snúa aftur á æskuslóðirnar og er spennt að fara norður og vinna með Norðlendingum að því að byggja upp kirkju og kristni. Margir messuþjónarÞátttakan er það sem mest hefur komið á óvart í messuhópastarfi í Reykjavíkurprófastsdæmum. Á messuþjónahátíð voru fulltrúar 17 safnaða. Þau hafa fengið að taka þátt í guðsþjónustunni með nýjum hætti, segir Jón Dalbú Hróbjartsson og bætir við: Það er stórkostlegur vitnisburður. Súpa, brauð og kærleikur„Svo er löngu tímabært að þjóðkirkjan komi upp súpueldhúsi í miðbænum, í Breiðholti og í öllum úthverfum [...] Við eigum öll að vinna saman í kærleiksríkum anda, heyrðist kallað á Laugaveginum við Kirkjuhúsið í gær. Fylkismessa og biskupsheimsókn í ÁrbæjarsöfnuðÞað var bjartur og fallegur dagur sem tók á móti kirkjugestum í Árbænum sunnudaginn 5. maí. Ráðandi litur kirkjugesta var appelsínugulur. Ástæðan var árleg Fylkismessa sem haldin hefur verið óslitið í Árbæjarkirkju í 14 ár. Á þessa messu mæta ungir sem eldri iðkendur íþróttafélagsins Fylkis. Gegn fátækt og félagslegri einangrunSíðasta vika var sérstaklega helguð svonefndu Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, og eru Hjálparstarf kirkjunnar og kærleiksþjónustusvið Biskupsstofu aðilar þar að. Stofnanir samfélagsins og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli á fátækt og félagslegri einangrun og taka höndum saman í baráttunni gegn því böli. |
|||||