Samkirkjuleg bænastund vegna Haità á fimmtudagFimmtudagskvöldið 21. janúar 2010 kl. 18.30 fer fram samkirkjuleg bænastund í dómkirkju Krists konungs í Landakoti. Pétur biskup hvetur til þess að allir þeir sem þá koma saman minnist einnig íbúanna á Haítí í bænum sínum. Bænastundin er liður í samkirkjulegri bænaviku. Kaþólski söfnuðurinn á Íslandi hefur eins og aðrir hér á landi fylgst með fréttum af því mikla manntjóni sem orðið hefur á Haítí og erfiðum aðstæðum þeirra sem lifað hafa af hamfarirnar. Í samráði við herra Karl Sigurbjörnsson biskup hvetur herra Pétur Bürcher Reykjavíkurbiskup fólk til bæna til að sýna íbúum Haítís samstöðu og minnast þeirra sem fórust í jarðskjálftanum. Hann hefur einnig ákveðið að föstusöfnunin 2010 verði helguð Haítí og þeim sem þar eiga um sárt að binda og hvetur kaþólskt fólk jafnframt til þess að sýna samstöðu með því t.d. að láta fé af hendi rakna til Caritas Island og merkja það sérstaklega Haítí. (Íslandsbanki nr. 513-14-202500; kennitala Caritas: 591289-1369). Pétur biskup þakkar öllum fyrirfram bænir þeirra og örlæti. Guð heyrir bænir allra kristinna manna á Íslandi og í veröld allri. Haítí, sem er eitt fátækasta landi í heimi, þarf á hjálp okkar að halda. |
![]() |
||||