Fylkismessa og biskupsheimsókn í ÁrbæjarsöfnuðÞað var bjartur og fallegur dagur sem tók á móti kirkjugestum í Árbænum sunnudaginn 5. maí. Ráðandi litur kirkjugesta var appelsínugulur. Ástæðan var árleg Fylkismessa sem haldin hefur verið óslitið í Árbæjarkirkju í 14 ár. Á þessa messu mæta ungir sem eldri iðkendur íþróttafélagsins Fylkis. Meistarflokkur kvenna í knattspyrnu mætti á svæðið og sjá mátti eitt og eitt andlit meistarflokks karla í fótbolta. Venjufremur voru kirkjugestir prúðbúnari en venjulega. Ástæðan hefur líklega verið heimsókn Biskups Íslands Herra Karls Sigurbjörnssonar og frú Kristínar Guðjónsdóttur. Biskup visiterar söfnuðinn 9.-14. maí. Fjölskylduguðsþjónustan hófst á hefðbundinn hátt en síðan fjaraði þetta „hefðbunda“ út eða eins og Karl biskup sagði í lokaorðum sínum í fjölskylduguðsþjónustunni að hann hafi upplifað margt á sínum prest og biskupsferli en ekki fimleikasýningu í kirkju sem „auðvitað er líka tjáning á guðs orði“ eins og hann komst svo ágætlega að orði. Eftir fjölmörg atriði eins og söngur barnakórs kirkjunnar, gospelkórs og leikbrúðu sýningu barna í TTT starfi kirkjunnar í Selásskóla og áðurnefndri fimleikasýningu iðkenda fimleikadeildar Fylkis var farið út undir suðurgafl kirkjunnar þar sem sóknarnefndarfólk ásamt öðrum sjálfboðaliðum var í óða önn að grilla vel á fimmtahundrað pylsur í kirkjugesti. Aðrir tóku við að hlaupa svokallaðan stífluhring sem telur 3 km. Það er hefð fyrir þessu hlaupi eftir Fylkismessu. Fremst í flokki meðal jafningja var ofurhlauparinn sr. Sigrún Óskarsdóttir en ofurgöngugarpurinn sr. Þór Hauksson tók að sér að starta hlaupinu og gleymdi tímatökunni, en talið er að nýtt met hafi verið slegið en vegna þess að sr. Þór var upptekinn við að gúffa í sig pylsum fæst það ekki staðfest. Veðurenglarnir brostu sínu breiðasta á safnaðarfólk og bros skein úr hverju andliti eftir vel heppnaðan dag í kirkjunni. Þökkum við Herra Karli Sigurbjörnssyni og frú Kristínu Guðjónsdóttur fyrir góða nærveru á þessum fallega degi. NánarMyndir frá Fylkismessunni og vísitasíu í Árbæjarkirkju. MyndböndSr. Sigrún Óskarsdóttir segir frá Fylkismessunni, vísitasíu biskups og slagorði Árbæjarkirkju. |
![]() |
||||