LH hrósar lúterskum í Japan fyrir skipulagða neyðarhjálp

Mynd Toshiki Toma. Hjálpargögnum pakkað fyrir Japan.

Martin Junge, framkvæmdastjóri Lúterska heimssambandins (LH) sendi lúterskum í Japan bréf í kyrruviku til að hrósa lúterskum kirkjum í Japan og sýna þeim stuðning vegna hjálparstarfa þeirra eftir jarðskjálfta og tsunami þann 11. mars síðastliðinn.

Þrjár lútherskar kirkjur í japan stofnuðu Lútersku neyðaraðstoðina í Japan eftir hamfarirnar til að samhæfa aðstoð við þau sem þarfnast hennar. Alls hafa 14.000 fundist látnir eftir hamfarirnar og 13.660 er enn saknað. Um 140 þúsund manns eru í neyðarskýlum.

Þann 11.  apríl opnuðu kirkjurnar stuðningsmiðstöðina Tonabirito í Sendai ti að dreifa hjálpargögnum og samhæfa starf sjálfboðaliða í Sendai, einu af þeim svæðum sem er fór hvað verst út úr hamförunum..

"Ég hef hugsað til ykkar og beðið fyrir ykkur margoft undanfarnar vikur," segir sr. Junge í bréfi sínu. Hann venti á að Biblíulestrar kyrruviku sem fjalla um krossinn "eiga sér sérstakan samhljóm" í aðstæðum japanskra kirkna undanfarnar fimm vikur. "Einnig þið hafið þurft að gefa merkingu þeirri upplifun af máttleysi og óreiðu sem fylgdi í kjölfar hamfara og eyðileggingar."

Framkvæmdastjórinn hrósaði kirkjunum fyrir að ná til þeirra sem hafa orðið fyrir áföllum, vinna með öðrum kirkjum í Japan og LH í gegnum skrifstofuna í Genf. "Líkt og lærisveinarnir á leið til Emmaus hafið þið séð hinn upprisna Drottinn í öllum þeim erfiðleikum sem skekið hafa land ykkar - og þið hafið síðan farið til baka, beint í miðlu eyðileggingarinnar og miðlað nærveru vonar og samstöðu, meira að segja á jafnerfiðum svæðum og í Sendai og Kessenuma, Minami Sanriku og Ishinomaki," sagði hann.

Martin Junge ítrekaði að bænir LH fylgdu kirkjunum í Japan og japanskri þjóð, sem og áframhaldandi stuðningur LH við þau sem líða vegna hamfaranna.

Tveir japanskir prestar starfa innan Þjóðkirkjunnar, sr. Toshiki Toma og sr. Miyako Þórðarson. Þau hafa verið virk í hópi Japan á Íslandi og íslenskra vina Japans í því að styðja hjálparstarfið í Japan. Myndin sem fylgir greininni er frá því þegar pakkað var hjálpargögnum um páskahelgina til að senda til Japan.