Veglegir styrkir til kærleiksþjónustu kirkjunnar

Hendur

Vinna með atvinnulausu ungu fólki, leiklistarstarf unglinganna í kirkjunni og vinnuskóli fyrir unglinga eru meðal verkefna á sviði kærleiksþjónustu kirkjunnar sem verða styrkt á þessu ári. 

Evangelisk-lúterska kirkjan í Finnlandi gaf Þjóðkirkjunni veglega gjöf til að nota í starf sitt meðal þeirra sem lent hafa í erfiðleikum vegna hrunsins. Í byrjun febrúar var auglýst eftir umsóknum um framlög úr þessari gjöf til verkefna á sviði kærleiksþjónustu, einkum meðal ungs fólks og fólks í atvinnuleit.

Níu umsóknir bárust frá sjö aðilum að upphæð sjö og hálf milljón. Til úthlutunar voru fimm milljónir. Sex verkefni á sviði kærleiksþjónustu meðal ungs fólks og fólks í atvinnuleit verða styrkt að upphæð 4.5 milljónir:

„Energí og trú“

Keflavíkurkirkja fékk ein milljón til verkefnisins „Energí og trú“ en markmið þess er að vinna með atvinnulausu ungu fólki með námskeiðum og stuðningi.

Leiklistarfélag Æskulýðsstarfs kirkjunnar

Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) til Leiklistarfélags Æskulýðsstarfs Kirkjunnar (LÆK) 500.000 krónur. Þau munu starfa í sumar meðal ungs fólks á aldrinum 16- 22 ára.

Vinnuskóli fyrir unglinga sem ljúka 8. bekk

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum (ÆSKR) fékk eina milljón til að starfrækja vinnuskóla fyrir unglinga sem ljúka 8.bekk. Enginn vinnuskóli er fyrir þennan aldurshóp á vegum Reykjavíkurborgar.

„Hér stend ég“

Starfshópur á vegum Reykjavíkurprófastsdæma og Fræðslusviðs Biskupsstofu fékk eina milljón til verkefnisins „Hér stend ég“  sem er námskeið ætlað ungu atvinnulausu fólki 18 – 30 ára.

Framhaldsnám unglinga úr efnalitlum fjölskyldum og „Af stað ungar konur“

Hjálparstarf kirkjunnar var úthlutað styrkjum til tveggja verkefna. Annars vegar til verkefnis til stuðnings 16 -20 ára unglingum úr efnalitlum fjölskyldum til að ljúka framhaldsnámi, kr. 500.000. Hins vegar til verkefnisins „Af stað ungar konur“ til stuðnings ungum konum til að komast aftur út á vinnumarkaðinn, kr. 500.000. Í þessu verkefni er einnig lögð áhersla á að afla sér menntunar og færni.