Bregðumst við fátæktÁ mesta velferðarskeiði Íslandssögunnar jókst misskipting í landinu. Eftir hrun hefur mistekist að verja hag þeirra sem minnst mega sín. Útilokað er að lifa af lægstu launatöxtum eða örorkubótum og atvinnuleysi er mikið. Fátækt hefur aftur numið land á Íslandi. Þjóðmálanefnd kirkjunnar kallar til málþings um fátækt á Íslandi föstudaginn 6. maí. Þar verður leitað svara við því hvernig við eigum að bregðast við fátæktinni og hvernig við getum stutt við fólk í að halda reisn sinni þrátt fyrir erfiðar fjárhagslegar aðstæður. Flutt verða tvö framsöguerindi:
Þórhallur Heimsson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, mun bregðast við erindum og leiðir þátttakendur inn í almennar umræður. Málþingið verður haldið á Torginu í safnaðarheimili Neskirkju milli kl. 12 og 13:30, föstudaginn 6. maí. Fundarstjóri verður Anna Sigríður Pálsdóttir, Dómkirkjuprestur. Um fyrirlesaranaBjarni Karlsson er sóknarprestur í Laugarneskirkju. Hann hefur látið sig málið varða innan kirkju og á vettvangi Reykjavíkurborgar. Vilborg Oddsdóttir er félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, hefur kvatt sér hljóðs um þennan vágest fátæktina í íslensku samfélagi. NánarÞrjú örviðtöl við Bjarna Karlsson á YouTube: |
![]() |
||||