Kjósa þarf að nýju til vígslubiskups í Skálholti, kjörstjórn segir af sérYfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar tók kæru vegna kosninga til embættis vígslubiskups í Skálholti fyrir á fundi sínum 26. apríl sl. Niðurstaða yfirkjörstjórnar var sú að fella hinar kærðu kosningar úr gildi og að kosið skyldi að nýju. Kæran barst frá lögmanni eins frambjóðanda og laut að talningu tveggja atkvæða sem póstlögð voru 11. apríl, en samkvæmt bréfi kjörstjórnar skyldi póstleggja atkvæði í síðasta lagi 8. apríl. Í úrskurði yfirkjörstjórnar segir: „Hinar kærðu kosningar eru úr gildi felldar og kosið skal að nýju til vígslubiskups í Skálholti.“ Kjörstjórn kirkjunnar segir af sérKjörstjórn þjóðkirkjunnar hittist á fundi 27. apríl og fór yfir málið. Það var niðurstaða hennar að segja af sér til að skapa traust og trúverðugleika um framhald kosningarinnar. Eftirfarandi bókun var gerð á fundinum: „Kjörstjórn fór yfir næstu skref í ljósi niðurstöðu yfirkjörstjórnar í máli nr. 10/2011. Eftir að hafa farið yfir og rætt ýmsar hliðar málsins er það niðurstaða kjörstjórnar, að til þess að skapa traust og trúverðugleika um framhald kosningarinnar sé rétt að undirrituð, aðalmenn í kjörstjórn, segi af sér. Anna G. Björnsdóttir Varamenn í kjörstjórn munu því taka við framkvæmd kosninganna. Þeir eru: Gísli Baldur Garðarsson, hrl. |
![]() |
||||