Auglýsing um framlagningu kjörskrár vegna vígslubiskupskosningar í Skálholtsumdæmi 2011

Skálholtsdómkirkja

Kjörstjórn við vígslubiskupskosningu hefur, í samræmi við starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 818/2000, með síðari breytingum, samið kjörskrá vegna vígslubiskupskjörs í Skálholtsumdæmi. Á kjörskrá eru 149.

Kjörskráin, sem miðast við 1. maí 2011, liggur frammi til sýnis á Biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík, og hjá próföstum í Skálholtsumdæmi til 20. maí.

Hún er enn fremur birt á vef þjóðkirkjunnar frá 1. maí 2011.

Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist kjörstjórn á Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. maí 2011, eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. ofangreindra starfsreglna er þeim sem hafa kosningarétt, heimilt að tilnefna kjörgengan mann sem vígslubiskupsefni. Kjörgengur er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkjunni. Til að tilnefning sé gild þurfa 10 af hundraði kosningabærra manna að lágmarki að standa að henni. Óheimilt er þó fleirum en 25 af hundraði kosningabærra manna að standa að tilnefningu vígslubiskupsefnis. Enginn má tilnefna nema einn mann. 

Tilnefningar ásamt skriflegu samþykki hlutaðeigandi skulu hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti á Biskupsstofu fyrir kl. 16:00, 20. júní 2011, eða hafa verið póstlagðar í síðasta lagi þann dag.

Reykjavík, 28. apríl 2011
Gísli Baldur Garðarsson, formaður kjörstjórnar