Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar
Kvikmyndir eru mikilvægur miðill í samtímanum. Þær eru meðal annars vettvangur fyrir samtal um spurningar sem snerta trú og tilvist manneskjunnar. Þjóðkirkjan hefur veitt kvikmyndaverðlaun á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (www.riff.is) frá árinu 2006. Verðlaunin eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um mikilvægar trúar- og tilvistarspurningar og miðlar jákvæðri sýn á manneskju og heim. Á morgun er verðlaunamyndin 2010, Skírnin fær sérstaka viðurkenninguKvikmyndaverðlaunin voru veitt í fimmta sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Það var rúmenska kvikmyndin Á morgun sem hlaut verðlaunin að þessu sinni. Pólska kvikmyndin Skírnin fékk sérstaka viðurkenningu. Í dómnefnd kirkjunnar eru sr. Árni Svanur Daníelsson, Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, og Jóhanna Magnúsdóttir guðfræðingur. Verðlaunamyndirnar 2006-2010
StiklaÍ stiklunni má sjá stutt myndbrot úr öllum verðlaunamyndunum.
Viltu sjá verðlaunamyndirnar?Verðlaunamyndirnar hafa verið sýndar í nokkrum kirkjum. Upplýsingar um það hvernig má standa að slíkum sýningum veitir Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu (arni.svanur.danielsson (hjá) kirkjan.is).
|
|||||