148. kirkjuráðsfundur 28. janúar 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
01/28/2010 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna

Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn sem biskup leiddi.
Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt með smávægilegum breytingum.

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefna frá síðasta fundi. Honum var falið að taka saman yfirlit yfir stöðu ýmissa verkefna s. l. tveggja ára sem kirkjuráð hefur haft til umfjöllunar og ekki teljast til hefðbundinna verkefna.

2. Kirkjuþing 2010

Forseti kirkjuþings gerir ráð fyrir að kirkjuþing 2010 hefjist föstudagskvöldið 12. nóvember og ljúki fimmtudaginn 18. nóvember. Fyrr um daginn 12. nóv. verði kynning fyrir nýja kirkjuþingsfulltrúa á störfum þingsins.
Kjörstjórn til kirkjuþings hefur komið saman til að undirbúa kosningu til kirkjuþings, en kosningin fer fram í apríl n.k.  

a) Starfsreglur um presta 735/1998, endurskoðun á reglum um val á presti, o.fl.
Kirkjuráð ræddi nauðsyn þess að yfirfara starfsreglur um presta, hvað varðar reglur um val á presti.
Kirkjuráð samþykkti að skipa nefnd til að fara yfir starfsreglur um presta hvað varðar reglur um val á presti, svo og starfsreglur um sóknarnefndir, einkum þar sem fjallað er um auglýsingu embættis sóknarprests eða prests við lok skipunartíma í embættið. Eins er nefndinni falið að skoða stöðu prestsembætta við sameiningu prestakalla og hvort viðtekin venja við sameiningu stangist á við lögbundinn rétt safnaða til að velja sér prest. Samþykkt var að fela Ragnhildi Benediktsdóttur, skrifstofustjóra Biskupsstofu, að vera formaður nefndarinnar. Einnig mun séra Kristján Björnsson, kirkjuráðsmaður sitja í nefndinni svo og fulltrúi frá Prestafélagi Íslands. Þá var samþykkt að fara þess á leit við Jóhannes Pálmason, formann sóknarnefndar Hallgrímssóknar í Reykjavík, og Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, formann sóknarnefndar Nessóknar í Reykjavík. Nefndin verður formlega skipuð þegar fyrir liggur samþykki ofangreindra aðila.

b) Starfsreglur um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1999 (endurskoðun á akstursflokkum).
Komið hafa í ljós nokkrir annmarkar á nýjum starfsreglum um rekstrarkostnað presta, hvað varðar akstursflokka. Samþykkt var að fela fjármálahópi kirkjuráðs að gera tillögur um breytingar á akstursflokkum m.a. með viðmið um messuskyldur. Biskupsritari mun starfa með hópnum.

c) Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.
Talsverð umræða og umfjöllun og mótmæli hefur orðið í kjölfar samþykkta kirkjuþings 2009 hvað varðar breytingatillögur um skipan prestakalla og prófastsdæma sem komu fram á kirkjuþingi og höfðu hlotið misjafna umfjöllun heima í héraði. Forseti kirkjuþings lagði fram eftirfarandi tillögu um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði:
1. gr. Við 3. gr. starfsreglna um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 bætist ný málsgrein svohljóðandi: Tillögur til kirkjuþings um breytingu á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma skulu hafa borist forseta þingsins með hæfilegum fyrirvara í samræmi við ákvæði starfsreglna um þingsköp kirkjuþings. Forsætisnefnd kirkjuþings metur hvort tillögurnar séu tækar til efnismeðferðar á þinginu.
2. gr. Starfsreglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 59. gr. laga nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar og öðlast gildi 1. desember 2010.

Tillaga forseta verður til frekari umfjöllunar í kirkjuráði.

Nýjar starfsreglur um skipulag kirkjunnar í héraði þar sem prófastsdæmum var breytt hafa m.a. áhrif á skipan leikmannastefnu. Fulltrúum af Suðurlandi fækkar úr sex í þrjá í hinu nýja Suðurprófastsdæmi, en áður voru tveir fulltrúar úr hverju hinna þriggja prófastsdæma.

Framkvæmdastjóra var falið að senda út til héraðsfunda til umsagna tillögur um sameiningu prófastsdæma sem lagðar voru fram á kirkjuþingi 2009 og birtast í þingsályktun með 3. máli kirkjuþings 2009.

3. Fjármál 

a) Reglugerð um Jöfnunarsjóð sókna og úthlutun 2010, lokagerð.
Reglugerð um Jöfnunarsjóð sókna hefur verið endurskoðuð af dómsmála- og mannréttindaráðherra að ósk kirkjuráðs. Reglugerð með breytingum var gefin út 20. jan. 2010. Breytingin felur í sér að ekki er lengur bundið hve háu hlutfalli heildarúthlutunar má ráðstafa til þeirra verkefna sem reglugerðin kveður á um. 
Kirkjuráð samþykkti að óinnleystir styrkir Jöfnunarsjóðs til sókna við árslok 2008, og sem hafa ekki enn verið greiddir, falli niður. 
Kirkjuráð samþykkti fjárhagsáætlun Jöfnunarsjóðs sókna 2010 og verður hún send  dómsmála – og mannréttindaráðherra.

b) Kirkjumálasjóður 2010.
Skrifstofustjóri greindi frá sparnaði á Biskupsstofu í kjölfar niðurskurðar á fjárlögum 2010, en yfirvinna hefur verið lækkuð eða afnumin, ekki verður ráðið í tímabundnar stöður sem losna, o. fl .
Kirkjuráð samþykkti fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2010.

c) Flutningur verkefna til prófastsdæma og vígslubiskupsumdæma (16. mál kirkjuþings 2009).
Málinu var vísað til biskups Íslands til skoðunar.

d) Erindisbréf fjármálahóps, endurskoðun.
Samþykkt var að forseti kirkjuráðs endurskoði erindisbréf fjármálahóps og einnig annarra starfshópa kirkjuráðs til samræmis.

e) Endurskoðun og áritun ársreikninga sókna.
Borist hefur svar frá ríkisendurskoðanda við erindi Reykjavíkurprófastsdæmi vestra um hvort nægjanlegt sé að ársreikningar sókna verði áritaðir af kjörnum skoðunarmönnum. Samkvæmt svari ríkisendurskoðanda er ekki talið nauðsynlegt að löggiltir endurskoðendur yfirfari og áriti ársreikninga. Hins vegar þurfi kjörnir skoðunarmenn sókna að uppfylla ákveðin skilyrði sem tilgreind eru. Sóknarnefndum, prestum og próföstum verður kynnt málið.

4. Fasteignir

a) Króksholt 1, Fáskrúðsfirði.
Á síðasta ári barst erindi frá sóknarpresti Kolfreyjustaðarprestakalls til stjórnar prestssetra um breytingar á hinum nýja prestsbústað að Króksholti 1, Búðum í Fáskrúðsfirði. Málinu var vísað til fasteignanefndar.

b) Stafholt, Borgarfirði.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fundi sem haldinn var nýverið til upplýsinga um stöðu mála hvað varðar prestssetrið í Stafholti. Fundinn sóttu formenn sóknarnefnda í Stafholtsprestakalli, prófastur og sóknarprestur. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt, fór einnig á fundinn en hún vinnur að deiliskipulagi í Stafholti.

5. Önnur mál 

a) Erindi frá þóknananefnd kirkjunnar.
Formaður þóknananefndar kirkjunnar, Jóhannes Pálmason, sendi kirkjuráði erindi er varðar þóknanir fyrir nefndasetu starfsmanna kirkjunnar. Samþykkt var að fela skrifstofustjóra að skoða málið og skila áliti fyrir næsta fund kirkjuráðs.
Einnig var rætt um akstur og dagpeninga vegna setu í fundum og ráðum og hvort fela eigi þókananefnd að ákvarða slíkt. Skrifstofustjóra var jafnframt falið að skoða það.

b) Þingfarakaup kirkjuþingsfulltrúa.
Þóknananefnd óskar eftir áliti kirkjuráðs um það hvort greiða eigi áfram þingfararkaup kirkjuþingsfulltrúa í sjö daga að lágmarki eins og núverandi gjaldskrá kveður á um. Kirkjuráð samþykkti að beina því til þóknananefndar að halda þessu óbreyttu.

c) Kvörtun frá Björgvini Tómassyni. – Orgelsmiður sf.
Lagt var fram erindi frá Björgvini Tómassyni – Orgelsmið sf. þar sem hann kvartar yfir störfum orgelnefndar kirkjunnar, einkum því að nefndin sniðgangi hann þegar leitað er tilboða í smíði orgela. Samþykkt var að óska eftir umsögn orgelnefndar um málið.

d) Stefnumörkun í sjálfboðaliðastarfi í þjóðkirkjunni 2010 -2014. – Frestað á desemberfundi 2009.
Kirkjuþing 2009 samþykkti í 21. máli þingsályktun þess efnis að efling sjálfboðaliðastarfs verði sett í forgang í starfi þjóðkirkjunnar og að stefna verði mörkuð um sjálfboðaliðastarf í söfnuðum, prófastsdæmum og stofnunum kirkjunnar næstu fjögur árin. Sett verði skýr markmið um fjölgun sjálfboðaliða á þessum tíma.
Málinu var frestað.

e) Skipun starfshóps sem móti samskiptastefnu kirkjunnar. – Frestað á síðasta fundi.
Kirkjuþing 2009 samþykkti þingsályktun þess efnis að fela kirkjuráði að skipa starfshóp sem móti samskiptastefnu sem taki til grunngilda og markmiða samskiptastarfs kirkjunnar í sóknum, prófastsdæmum og á landsvísu. Drög að stefnu verði lögð fyrir kirkjuþing 2010.
Að tillögu biskups samþykkti kirkjuráð að fara þess á leit við séra Kristínu Þórunni Tómasdóttur, héraðsprest í Kjalaranesprófastsdæmi, séra Örn Bárð Jónsson, sóknarprest í Neskirkju og Margréti Marteinsdóttur, fréttamann á RÚV, að taka sæti í nefndinni. Séra Kristín Þórunn verði formaður nefndarinnar.

Samþykkt var að fundir kirkjuráðs hefjist framvegis kl. 9. Fundi slitið kl. 14:30.