149. kirkjuráðsfundur 10. febrúar 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
02/10/2010 - 13:00
Staður: 
Símafundur Biskupsstofu

Símafundur haldinn á Biskupsstofu, Reykjavík kl. 13:00

Mætt voru á Biskupsstofu, biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, kirkjuráðsmaðurinn Jóhann E. Björnsson, Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð. Kirkjuráðsmennirnir séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir, voru í símasambandi. Forseti kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, var og í símasambandi meðan rætt var um mál kirkjuþings.

1.  Stefnumörkun í sjálfboðaliðastarfi í þjóðkirkjunni 2010-2014 

Kirkjuþing 2009 samþykkti „að efling sjálfboðaliðastarfs verði sett í forgang í starfi þjóðkirkjunnar og að stefna verði mörkuð um sjálfboðaliðastarf í söfnuðum, prófastsdæmum og stofnunum kirkjunnar næstu fjögur árin. Sett verði skýr markmið um fjölgun sjálfboðaliða á þessum tíma”. (21. mál kirkjuþings 2009)

Fram kom á fundinum að Kjalarnessprófastsdæmi hefur þegar hafið vinnu við verkefni að þessum toga. Kirkjuráð telur áhugavert að fylgjast með framvindu mála hjá prófastsdæminu og telur brýnt að öðrum prófastsdæmum verði kynnt ályktun kirkjuþings. Málinu var frestað til næsta kirkjuráðsfundar.

 2. Erindi frá séra Gunnlaugi Stefánssyni, Heydölum.

Kirkjuráð tók jákvætt í málaleitan séra Gunnlaugs Stefánssonar, sóknarprests í Heydölum, um ósk Breiðdalshrepps um urðun á sorpi fyrir Héraðsmenn, í Heydalalandi og vísaði erindinu til fasteignanefndar kirkjunnar að ganga til samninga við sveitarfélagið.
Í erindinu kom jafnframt fram að sóknarnefnd hefur lengi haft í huga nauðsyn þess að byggja menningarmiðstöð sem helguð yrði minningu og verkum þjóð- og sálmaskáldsins sr. Einars Sigurðssonar sem var prestur í Heydölum 1590-1627 og það væri ósk sóknarnefndar að andvirði samningsins renni til þeirrar uppbyggingar.

Kirkjuráð styður fyrir sitt leyti þessar hugmyndir sóknarinnar um byggingu aðstöðuhúss við Heydalakirkju, en ekki verði farið af stað í framkvæmdir fyrr en séð væri fyrir endann á fjármögnun.

3. Prestsseturshús á Vopnafirði – Útboð

Fram kom á síðasta fundi kirkjuráðs að áætlun um nauðsynlegar breytingar og viðbætur á húsnæði sem keypt var á Vopnafirði er talsvert hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs. Framkvæmdastjóri greindi frá afgreiðslu fasteignanefndar á málinu en nefndin leggur til að fram fari útboð til að kanna viðbrögð byggingaraðila. Kirkjuráð samþykkti það fyrir sitt leyti og verður málið að því loknu skoðað að nýju.

5. Önnur mál 

Stafholt, Borgarfjarðarprófastsdæmi.
Biskup greindi frá heimsókn fulltrúa sóknarnefnda úr Stafholtsprestakalli þar sem þau afhentu biskupi undirskriftarlista sóknarbarna þar sem skorað er á kirkjustjórnina að hefjast þegar handa við byggingu nýs prestsseturs í Stafholti.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 13,50.