Dagsetning:
03/05/2010 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9 með lestri Passíusálms með starfsfólki Biskupsstofu.
Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.
Fundargerðir síðustu tveggja funda staðfestar og staða verkefna rædd.
Framkvæmdastjóri vinnur að yfirliti og stöðu sérstakra verkefna kirkjuráðs árin 2008 og 2009 mun leggja það fram á næsta fundi.
2. Kirkjuþing
a) Tillaga forseta að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.
Pétur Kr. Hafstein lagði fram til kynningar nýja tillögu til breytinga á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði. Tillagan var rædd en hún verður væntanlega lögð fram á næsta kirkjuþingi.
b) Stefnumörkun í sjálfboðaliðastarfi í þjóðkirkjunni 2010 -2014.
Málinu var frestað á síðasta fundi. Eins og áður hefur komið fram hefur Kjalarnesprófastsdæmi hafið vinnu við verkefni að þessum toga. Kirkjuráð mun kynna öðrum prófastsdæmum samþykkt kirkjuþings um að efling sjálfboðaliðastarfs verði sett í forgang í starfi þjóðkirkjunnar.
3. Fjármál
Til afgreiðslu voru mál er höfðu verið til umfjöllunar í fjármálahópi kirkjuráðs, auk annarra mála.
a) Breyting á reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna
Lögð var fram til kynningar ný reglugerð dómsmála- og mannréttindaráðuneytis um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna, dags. 10. feb. 2010.
b) Fjárhagsáætlun Skálholts 2010
Samþykkt var að rekstrarstyrkur Jöfnunarsjóðs sókna verði hækkaður úr 10 millj. í 11,7 millj. kr. fyrir árið 2010. Húsaleiga verði greidd í samræmi við ákvörðun kirkjuráðs frá 1. apríl 2008 um að húsaleigan fylgi byggingarvísitölu og framreiknist samkvæmt því. Kirkjuráð samþykkti fjárhagsáætlun Skálholts 2010.
Samþykkt var að óska eftir því við stjórn Skálholts að gerð verði grein fyrir stöðu og framvindu verkefnisins vegna Þorláksbúða. Jafnframt upplýsi stjórnin um stöðu Rannsóknarstofu í helgisiðum.
c) Fjárhagsstaða sókna
Lagt var fram yfirlit um fjárhagsstöðu skuldugra sókna er kynnt hafði verið fjármálahópi kirkjuráðs. Samþykkt var að fela fjármálahópi kirkjuráðs að taka til umfjöllunar fjármál sókna í samræmi við 3 mgr. 5. gr. starfsreglna um sóknarnefndir: „Ef fjárhag sókna er stefnt í tvísýnu með miklum hallarekstri eða skuldasöfnun þannig að það hamli eðlilegu safnaðarstarfi er kirkjuráði heimilt að grípa inn í reksturinn, t.d. með skipun fjárhaldsmanns eða eftirlitsnefndar“.
d) Sparnaður
Kynnt var greinargerð um sparnað sem unnið er að hjá stofnunum og sjóðum kirkjunnar, sem kirkjuráð hefur umsjón með, þ.e. rekstur Biskupsstofu, kirkjumálasjóðs, Jöfnunarsjóðs sókna, Skálholts, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Eftirfarandi sparnaðaráform hjá stofnunum og sjóðum kirkjunnar voru kynnt:
Biskupsstofa
Fækkun prófastsdæma úr 15 í 12
Námsleyfi presta – 16 mánuðir á árinu 2010 í stað 36 mánaða
Rekstrarkostnaður presta og prófasta lækkaður
Embætti sérþjónustupresta erlendis lögð niður ótímabundið
Erindisbréf héraðspresta endurskoðuð vegna afleysinga
Afleysingaþjónusta – nágrannaþjónusta verður meginregla
Vígðum þjónum Biskupsstofu falin tímabundin prestsþjónusta í sérstökum tilvikum án aukagreiðslna
Yfirvinna starfsfólks í lágmarki
Ekki ráðið í störf þeirra sem hætta
Tímabundnar ráðningar ekki framlengdar
Almennur rekstrarsparnaður 10%
Halla mætt með framlögum frá Kirkjumálasjóði og Jöfnunarsjóði sókna.
Kirkjumálasjóður
10% - 50% almennur niðurskurður verkefna
Fjárveitingum til verkefna utan þjóðkirkjunnar fækkað
Útgáfustarfsemi færð eins og unnt er í rafræna útgáfu
Verkefna- og þjónustusamningar endurskoðaðir
Nýjar reglur um ferðakostnað
Yfirvinna starfsfólks í lágmarki
Ekki ráðið í störf þeirra sem hætta
Tímabundnar ráðningar ekki framlengdar
Nefndarlaun lækkuð um 10%
Almenn hagræðing eins og hvatning til símafunda og samnýtingar ferða
Rekstrarhalla 2010 mætt með eignasölu.
Jöfnunarsjóður sókna
Nýframkvæmdir að jafnaði ekki styrktar
Framkvæmdum frestað ef þess er kostur
Engin ný vilyrði gefin um styrki
Sóknir hvattar til að skuldbreyta lánum til að létta greiðslubyrði
Ábyrgðadeild jöfnunarsjóðs mæti rekstrarhalla ársins.
Skálholt
Starfsmannahald endurskoðað og akstursgreiðslur lækkaðar.
Aukning sértekna með aðgangseyri á sýningar og sölu í nýjum skála
Almennur rekstrarsparnaður og endurskoðun á gjaldskrá
Leitað verður norrænna styrkja til ráðstefnuhalds.
Tónskóli þjóðkirkjunnar
Skólaárið stytt
Austurlandsdeild Tónskólans lögð niður frá og með hausti 2010
Söngtímar nemenda styttir
Sjóður frá fyrra ári mætir halla ef á reynir
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Handleiðsluhópum fækkað
Sértekjur verði auknar m.a. með fjölgun viðtala.
Húsaleiga hefur verið lækkuð um 10%
Stöðugildi lækkuðu úr 3,2 í 3.
e) Ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs sókna
Kirkjuráð samþykkti að greiða niður skuldir Skálholts úr ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs vegna fjárfestinga um 40 m. kr.
f) Greiðsluáætlun Kirkjumálasjóðs 2010
Kirkjuráð samþykkti greiðsluáætlun Kirkjumálasjóðs 2010.
g) Niðurstöður skilanefndar vegna sameiningar prófastsdæma
Jóhann E Björnsson gerði grein fyrir áliti skilanefndar sem hefur rætt sameiningu prófastsdæma og stöðu sókna sem flytjast milli prófastsdæma. Skilanefnd telur að breytingin kalli ekki á fjárskipti.
Fram kom sú skoðun að það væri málefni sókna sem flytjast milli prófastsdæma hvort og hvernig óskað væri eftir fjárhagslegu uppgjöri við fyrri héraðssjóð.
h) Tillaga um greiðslur vegna aksturs þar sem ekki er unnt að leggja til prestssetur
Samþykkt var að kirkjumálasjóður/fasteignanefnd, sem hefur með rekstur prestssetra að gera, beri ábyrgð á akstursgreiðslum sem geta skapast við það að ekki er hægt að leggja presti til prestssetur um leið og presturinn hefur störf.
i) Rekstur á símum fyrir presta
Biskupsstofu hefur borist tilboð frá Símanum um rekstur á símum og nettengingu fyrir presta, en Biskupsstofa er aðili að rammasamningi hins opinbera við Símann. Kirkjuráð taldi rétt kynna tilboðið fyrir prestum. Þar sem Biskupsstofa mun greiða Símanum símkostnaðinn, þurfa þeir prestar sem vilja taka þátt í þessu tilboði að afsala sér skriflega þeirri fjárhæð sem er greidd mánaðarlega með launum vegna símkostnaðar, sbr. starfsreglur um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa.
4. Fasteignir
a) Erindisbréf fasteignanefndar þjóðkirkjunnar – umsögn nefndarinnar
Kirkjuráð samþykkti erindisbréfið með framkomnum ábendingum fasteignanefndar. Þá skipaði kirkjuráð Önnu Guðmundu Ingvarsdóttur, verkefnastjóra á fasteignasviði, staðgengil sviðsstjóra fasteignasviðs. Meðan núverandi sviðsstjóri gegnir formennsku í fasteignanefnd út árið 2010 mun hún gegna starfi sviðsstjóra.
b) Reglur um greiðslumark o.fl.
Samkvæmt starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009, skal kirkjuráð setja „reglur um greiðslur fyrir afnot presta af réttindum tengdum prestssetrum svo sem réttindum vegna greiðslumarks og úthlutun arðs af hreindýraveiði. Þar skal einnig kveðið á um tilfærslur á greiðslumarki milli prestssetursjarða og önnur atriði“. Kirkjuráð samþykkti að fela lagahópi kirkjuráðs ásamt formanni fasteignanefndar að gera tillögur að reglum um greiðslumark o.fl. samkvæmt ofangreindum starfsreglum.
c) Kæra Gunnars Kristjánssonar, dags. 16. febrúar 2010
Séra Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur og prófastur á Reynivöllum í Kjós, kærir ákvörðun stjórnar prestssetra frá 17. nóvember 2009 um leiðréttingu á fjárhæð afgjalds fyrir prestssetrið Reynivelli. Einnig fer hann fram á lækkun afgjalds frá og með 1. janúar 2010.
Kirkjuráð samþykkti að fela Ragnhildi Benediktsdóttur, skrifstofustjóra og staðgengli framkvæmdastjóra kirkjuráðs, að taka kærumálið til skoðunar. Málið verður síðan tekið fyrir á næsta fundi kirkjuráðs þann 15. apríl n.k. Jafnframt var kröfu um lækkun afgjalds fyrir prestssetrið vísað til fasteignanefndar þjóðkirkjunnar til úrlausnar.
d) Dómur héraðsdóms Reykjavíkur vegna Valþjófsstaðar – mörk þjóðlendu
Samþykkt var að áfrýja dómi héraðsdóms til hæstaréttar og fela Ólafi Björnssyni lögmanni að taka málið að sér.
5. Önnur mál
a) Ályktun frá Djáknafélagi Íslands
Biskup greindi frá erindi Djáknafélagsins, dags. 19. feb. 2010, þar sem fram kemur m.a. ályktun félagsfundar um stöðu djákna innan íslensku þjóðkirkjunnar. Þá er sérstaklega óskað eftir afstöðu kirkjuráðs til einhliða niðurskurðar á djáknastöðum í Garðasókn.
Kirkjuráð hefur þegar sent erindi til allra sóknarnefnda með hvatningu um að draga ekki úr safnaðarstarfi þrátt fyrir niðurskurð á sóknargjöldum. Fram kom að nefnd um heildarskipan þjónustu kirkjunnar hefur m.a. til umfjöllunar þjónustu djákna og er gert ráð fyrir að nefndin skili af sér tillögum fyrir kirkjuþing 2010. Þá kom fram að biskup muni ræða við stjórn Djáknafélagsins um stöðu djákna innan kirkjunnar.
b) Erindi frá þóknananefnd kirkjunnar
Lögð var fram til kynningar ákvörðun þóknananefndar um nefndarþóknun til fulltrúa í fasteignanefnd.
c) Endurskoðuð erindisbréf starfshópa kirkjuráðs
Kirkjuráð samþykkti þá breytingu á erindisbréfum hópanna að þeir hafi heimild til að fjalla um mál að eigin frumkvæði í samráði við forseta kirkjuráðs eða framkvæmdastjóra.
d) Erindi frá leikmannaráði
Samþykkt var að veita styrk úr kirkjumálasjóði til Leikmannastefnu 2010 að fjárhæð kr. 200 þús.
e) Svar orgelnefndar við erindi Björgvins Tómassonar
Lagt var fram svar formanns orgelnefndar við erindi Björgvins Tómassonar til kirkjuráðs. Samþykkt var að senda svarbréf orgelnefndar til Björgvins Tómassonar og gefa honum kost á að bregðast við því fyrir 25. mars n. k.
f) Erindi frá formanni Prestafélags Íslands vegna Selfossprestakalls.
Lagt var fram erindi frá formanni PÍ þar sem óskað er eftir áliti framkvæmdastjóra kirkjuráðs á túlkun lögmanns Selfosssóknar á ákvæðum starfsreglna sem varða afnot og umráð af kirkju og safnaðarheimili.
Framkvæmdastjóra var falið að svara erindi formanns Prestafélagsins.
g) Erindi til mennta- og menningarmálaráðherra
Lagt var fram til kynningar erindi frá biskupi Íslands, forstöðumanni Fornleifaverndar ríkisins, þjóðminjaverði og forstöðumanni Húsafriðunarnefndar til mennta- og menningarmálaráðherra. Málið fjallar um öryggisskápa fyrir kirkjugripi í kirkjum.
h) Prestafélag Íslands
Samþykkt var að óska eftir því að formaður PÍ og annar fulltrúi úr stjórn komi á fund kirkjuráðs til að ræða erindi og athugasemdir sem borist hafa frá formanni PÍ um málefni presta sem Biskupsstofa hefur til umfjöllunar.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16. Næsti fundur verður haldinn 25. mars og hefst kl. 9.