Dagsetning:
04/15/2010 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9.00 með morgunbæn sem biskup leiddi.
Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.
Biskup gat þess að hann hefði, fyrir hönd kirkjuráðs, sent frú Vigdísi Finnbogadóttur f.v. forseta Íslands kveðju í tilefni 80 ára afmælis hennar í dag 15. apríl. Af því tilefni hefði hann fært henni gjöf er samsvarar því að leysa tíu börn á Indlandi úr ánauð fyrir tilstilli Hjálparstarfs kirkjunnar.
Lagt var fram yfirlit yfir helstu verkefni kirkjuráðs á starfstímanum okt. 2007 til mars 2010 – utan hinna hefðbundnu verkefna. Yfirlitið sem var lagt fram að ósk kirkjuráðs verður rætt á næstu fundum ráðsins.
2. Kirkjuþing 2010
a) Málaskrá - framlögð mál á kirkjuþingi 2010
Framkvæmdastjóri kynnti mál sem telja má að verði lögð fram.
Rætt var um frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga sem samþykkt var á kirkjuþingi 2008. Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur ekki lagt frumvarpið fram á Alþingi. Ákveðið var að leggja það fyrir kirkjuþing 2010. Þegar málið hefur verið lagt fram á kirkjuþingi er það undir þinginu komið hvernig málsmeðferðin verður. Kirkjuþingið getur þannig a) samþykkt frumvarpið óbreytt, b) samþykkt frumvarpið með litlum eða miklum breytingum eftir atvikum eða ákveðið c) að kjósa milliþinganefnd til að fara yfir og kynna frumvarpið frekar í því skyni að það verði að nýju lagt fyrir kirkjuþing 2011. Kirkjuráð óskaði eftir að forseti kirkjuþings og sr. Kristján Björnsson, kirkjuráðsmaður fari yfir frumvarpið.
b) Tilmæli biskupafundar um að kynningu á tillögu að sameiningu Staðastaðarprestakalls við Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall verði frestað fram yfir kirkjuþing 2010
Lagt var fram bréf biskups Íslands þar sem fram kemur að biskupafundur óskar eftir því að framlagning ofangreindrar tillögu verði frestað fram yfir kirkjuþing 2010.
Málið hefur verið sent út til umsagna héraðsfundar Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmis og aðalsafnaðarfunda sókna prestakallana. Kirkjuráð mun leggja til við kirkjuþing 2010 að málinu verði frestað.
3. Kirkjuþing unga fólksins 2010
Samkvæmt starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins skal halda þingið að vori.
Í 1. gr. segir að það skuli haldið að vori. Biskup Íslands boðar til þingsins í samráði við forseta kirkjuþings. Æskulýðssamband þjóðkirkjunnar leitar eftir tilnefningum þingfulltrúa. Málinu var vísað til biskups og forseta kirkjuþings.
4. Fjármál
a) Rekstraráætlun Biskupsstofu 2010 og horfur 2011
Fjármálastjóri gerði grein fyrir rekstraráætlun Biskupsstofu 2010. Leitað hefur verið allra leiða til niðurskurðar í rekstri. Rekstrargjöld lækka um 32,5 millj. en sértekjur hækka um 65,5 millj. og framlag ríkisins lækkar um 92,1 millj. miðað við rauntölur árið 2009. Kynnt var niðurstaða rekstrar Biskupsstofu (þjóðkirkjan 06 – 701) og er tekjuhalli um 5,6 millj. Horfur 2011 verða kynntar á næsta fundi kirkjuráðs.
Kirkjuráð samþykkti fjárhagsáætlun Biskupsstofu fyrir árið 2010.
b) Málefni Keflavíkursóknar
Fjármálastjóri greindi frá því að fulltrúar sóknarinnar hafi komið á fund fjármálahóps kirkjuráðs að beiðni hópsins og gert grein fyrir fjárhagsstöðu sóknarinnar. Keflavíkursókn er með há gengistryggð lán sem tekið hafa miklum hækkunum eftir fall krónunnar haustið 2008. Fram kom að sóknin hefur samið við lánastofnunina um aðlögun greiðslubyrði af láninu að fjárhagslegri getu sóknarinnar.
c) Málefni Grafarvogssóknar
Fjármálastjóri greindi frá því að fulltrúar sóknarinnar hafi komið á fund fjármálahóps kirkjuráðs að beiðni hópsins og gert grein fyrir fjárhagsstöðu sóknarinnar. Fram kom að skuldir sóknarinnar eru miklar og að sóknin hefur samið um aðlögun greiðslubyrði að fjárhagslegri getu sóknarinnar.
d) Rekstraráætlun Fjölskylduþjónustu kirkjunnar 2010
Lögð var fram endurskoðuð rekstraráætlun FÞK sem felur í sér ýmsar sparnaðarleiðir, m.a. að fallið er frá greiðslu ferðastyrkja til handleiðsluþega frá og með vori 2010, handleiðsluhópum verður fækkað og í stað þess er stefnt að því að fjölga viðtölum við fólk sem þarfnast ráðgjafar. Eitt stöðugildi hefur verið lækkað tímabundið og greiðsla yfirvinnu forstöðumanns verið lækkuð.
Samþykkt var að framlag kirkjumálasjóðs til Fjölskylduþjónustu kirkjunnar verði samtals 25,2 millj. kr. á árinu 2010, sem er 10% lækkun frá fyrra ári. Rekstaráætlunin var samþykkt.
e) Samstarfssamningur við guðfræði- og trúarbragðadeild
Samstarfsamningur kirkjuráðs og guðfræði- og trúarbragðadeildar rann út í lok árs 2009. Kirkjuráð samþykkti að fjárframlag í fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs fyrir árið 2010 standi óbreytt. Ekki er unnt að ákvarða frekari stuðning að sinni.
f) Nýtt fyrirkomulag á rekstri síma og tölvutenginga prestsembætta
Lagðar voru fram hugmyndir um tilboð sem Biskupsstofu býðst frá Símanum þar sem prestum gefst kostur á að afsala sér mánaðarlegri greiðslu vegna símakostnaður, en í stað þess greiði Biskupsstofa ákveðinn kostnað við farsíma og nettengingu gangi þeir inn í rammasamning ríkiskaupa sem Biskupsstofa er aðili að. Kirkjuráð samþykkti að kynna tilboðið fyrir prestum á Prestastefnu 2010.
5. Fasteignir
a) Kæra Gunnars Kristjánssonar, dags. 16. febrúar 2010, á ákvörðun stjórnar prestssetra 17. nóvember 2009 um leiðréttingu á afgjaldi fyrir prestssetrið að Reynivöllum
Kæran var lögð fram á síðasta fundi kirkjuráðs. Kirkjuráð samþykkti þá að fela aðstoðarframkvæmdastjóra kirkjuráðs að semja drög að úrlausn. Kirkjuráð ræddi málið og samþykkti að synja kæranda um breytingu á afgjaldi.
b) Samningur um hreinsum skurða í landi prestssetursjarðarinnar Holts í Suðurprófastsdæmi
Kynnt voru drög að samkomulagi Rangárþings eystra og kirkjumálasjóðs, sem eiganda jarðarinnar Holts, um hreinsun veituskurða. Samningurinn er óuppsegjanlegur fram til ársins 2050. Kirkjuráð samþykkti samninginn.
c) Sala prestsbústaðarins á Hellissandi
Sóknarprestur í Ingjaldshóls- og Ólafsvíkurprestakalli flytur í júní til Ólafsvíkur frá Hellissandi eftir sameiningu prestakallanna. Kirkjuráð samþykkti að prestsbústaðurinn á Hellissandi yrði settur í sölu og ef til sölu kæmi yrði hann seldur með fyrirvara um samþykki kirkjuþings 2010.
6. Skálholt
a) Þorláksbúð
Séra Kristján Björnsson, stjórnarmaður Skálholts, lagði fram minnisblað vegna uppbyggingar Þorláksbúðar í Skálholti sem herra Ögmundur Pálsson, Skálholtsbiskup (1521-1541) lét byggja. Stofnað hefur verið félag áhugafólks í um verkefnið sem hefur í hyggju að byggja upp búð með grjóthleðslu og timbri á rúst hinnar gömlu Þorláksbúðar. Fornleifavernd ríkisins hefur samþykkt framkvæmdina.
Skálholtsstaður er þinglýst eign kirkjumálasjóðs f.h. þjóðkirkjunnar og því þarf stjórn kirkjumálasjóðs, þ.e. kirkjuráð að sækja um byggingarleyfi og mun síðan taka formlega við búðinni þegar byggingu hennar er lokið.
Kirkjuráð samþykkti að sækja um leyfi til framkvæmdarinnar.
b) Færanlegt hús í Skálholti
Reist hefur verið færanlegt hús við vesturenda Skálholtsskóla eins og áður hefur verið samþykkt. Þegar er hafinn undirbúningur að uppsetningu sögusýningar í húsinu til móttöku ferðamanna.
c) Skálholtskirkja
Fulltrúar frá glerverkstæðinu Oidtmann í Þýskalandi hafa skoðað glugga Skálholtsdómkirkju og sýnt er að þeir þarfnast talsverðrar viðgerðar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að ráðast í viðgerðir, en glerverkstæðið vinnur að greinargerð um hana ásamt kostnaðar- og framkvæmdaáætlun fyrir viðgerðirnar.
7. Önnur mál
a) Undirbúningur fundar samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar
Fram kom að fundur samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar var síðast haldinn árið 2001. Biskup hefur rætt við skrifstofustjóra Alþingis um ósk kirkjuráðs um fund en það er á hendi alþingismanna að boða til fundarins að þessu sinni. Ekki er vitað hvenær af fundinum getur orðið.
b) Kvörtun Björgvins Tómassonar, orgelsmiðs
Á fundi kirkjuráðs þann 28. janúar s.l. var lögð fram kvörtun Björgvins Tómassonar, orgelsmiðs vegna starfa orgelnefndar þjóðkirkjunnar.
Kvörtun þessi var kynnt formanni orgelnefndar þjóðkirkjunnar og var svar hans, dags. 4. mars sl., kynnt Björgvini og honum gefinn kostur á að bregðast við. Skriflegt svar Björgvins, dags. 22. mars sl. var lagt fram á fundinum.
Kirkjuráð telur í ljósi framlagðra gagna að málavextir hafi verið skýrðir og að ekki sé tilefni til frekari afskipta kirkjuráðs. Kirkjuráð telur mikilvægt að jafnan sé sem best staðið að orgelkaupum í kirkjum landsins enda viðfangsefnið kostnaðarsamt og vandmeðfarið.
c) Ályktanir leikmannastefnu 2010
Tvær ályktanir voru samþykktar á leikmannastefnu 2010 sem haldin var í safnaðarheimili Kópavogskirkju 10. apríl sl. Sú fyrri fjallar um hvatningu til sóknarnefndarfólks um að neyta atkvæðisréttar í væntanlegum kirkjuþingskosningum og jafnframt til þess að starfsreglur um kjör til kirkjuþings verði teknar til endurskoðunar í því skyni að efla lýðræði innan þjóðkirkjunnar og virkni þeirra sem vilja láta sig málefni kirkjunnar varða.
Kirkjuráð tekur undir ályktun leikmannastefnunnar og mun senda hana til formanna sóknarnefnda. Kirkjuráð hvetur sóknarnefndir til að halda sérstakan kjörfund sóknarnefnda eða sóknarnefndarfundi þar sem kosið verði. Tryggð verði þar aðstaða til að kjósa rafrænt.
Hin ályktun leikmannastefnunnar varðar sóknargjöld og skerðingu á þeim og hvetur leikmannastefna sóknarnefndir til þess að beita sér í vörn fyrir sóknargjöldum gagnvart þingmönnum og stjórnvöldum.
Kirkjuráð tekur einnig undir þessa ályktun leikmannastefnunnar. Samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum er sóknargjaldið árið 2010 767 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri. Skerðingin árið 2010 er um 218 m.kr. eða 10,8% ef miðað er við fjárlög 2009. Óskert sóknargjöld árið 2009 hefðu átt að vera 925 kr. og hafa þau því verið skert um 17% eða um 370 m.kr. milli áranna 2009 og 2010.
Fram kom að fulltrúum á leikmannastefnu fækkaði um fimm í kjölfar sameiningar prófastsdæmanna. Kirkjuráð samþykkti að fela framkvæmdastjóra að skoða breytingu á starfsreglum um leikmannstefnu með það í huga að heimilt verði að fjölga fulltrúum stefnunnar.
d) Skipan fulltrúa í stjórn Skálholtsútgáfunnar – Kirkjuhússins
Í samræmi við ákvæði skipulagsskrár Skálholtsútgáfunnar samþykkti kirkjuráð að skipa áfram séra Halldór Reynisson, verkefnastjóra á Biskupsstofu, til næstu þriggja ára.
Kirkjuráð samþykkti að halda júnífundinn í Skálholti.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.