Ályktun Prestastefnu Íslands um samfélagsmál

Prestastefna Íslands, haldin í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010, hvetur til samstöðu, þolgæðis og vonar á erfiðum tímum. Hún fagnar útkomu Rannsóknarskýrslu Alþingis og þakkar þann grunn sem skýrslan veitir til uppbyggingar og endurreisnar í íslensku þjóðfélagi. Hreinskilið og undanbragðalaust uppgjör skiptir nú afar miklu máli og vill Prestastefnan hvetja til þess að umbótaviljinn sem skýrslan vekur sé virkjaður. 

Þjóðkirkjan áréttar mikilvægi bjartsýnnar lífsafstöðu, trausts og trúnaðar við kristin gildi og mun nú sem endranær hafa umhyggju, kærleika og réttlæti til grundvallar starfi sínu.

Stór hluti ungra fjölskyldna á Íslandi á í efnahagslegum þrengingum. Prestastefnan skorar á stjórnvöld að tryggja viðunandi ytri umgjörð fyrir heill og velferð sérhvers barns.

Prestastefnan áréttar mikilvægi heimila og skóla í uppeldi og menntun ungrar kynslóðar til heilbrigðra lífshátta og tileinkunar kristinna lífsgilda. 

Prestastefna minnir á mikilvægi þess að standa vörð um íslenska velferðarkerfið á tímum uppbyggingar eftir hrun.

Þjóðkirkjan er öllum opin og hún býður fram liðveislu sína til eflingar góðu samfélagi á landinu.