Ályktun um starfshættiPrestastefna 2010 hvetur til umræðu um starfshætti þjóðkirkjunnar til að marka skýra og skilvirka stefnu hennar. Prestastefna 2010 ályktar að tekin verði saman skýrsla um þjóðkirkjuna og bankahrunið. Í skýrslunni verði m.a. leitast við að greina styrkleika og veikleika í störfum kirkjunnar gagnvart anda og iðju sem hér þreifst fyrir bankahrunið og þeim áföllum sem dundu á þjóð og einstaklingum við hrun bankanna. Í skýrslunni verði tillögur um hvaða starfsþætti þjóðkirkjunnar þarf að styrkja og hverju þarf að breyta til að starf kirkjunnar verði í samræmi við köllun þjóðkirkju og til hags fyrir íslenskt samfélag. |
![]() |
||||