152. kirkjuráðsfundur 17. maí 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
05/17/2010 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna

Fundurinn hófst með morgunbæn sem biskup leiddi.
Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, boðaði forföll.

Framkvæmdastjóri greindi frá helstu verkefnum frá síðasta fundi. Hann ásamt Önnu Guðmundu Ingvarsdóttur, sviðsstjóra á fasteignasviði, hafa mætt á héraðsfundi og kynnt verkefnið um þinglýsingu kirkna samkvæmt ákvörðun kirkjuþings.

Í undirbúningi er fjárhagsáætlun fyrir fasteignasvið og verður hún lögð fram á næsta fundi kirkjuráðs.

a) Undirbúningur fundar samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar
Kirkjuráð gerði hlé á fundi sínum og hélt í Alþingishúsið til fundar sem boðaður hafði verið í samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar (sbr. lög nr. 12/1982). Fundurinn var haldinn í herbergi forsætisnefndar í Alþingishúsinu og hófst kl. 10.30 og stóð til kl. 11.45.

Dagskrá fundarins var þessi:

  1. Frumvarp til þjóðkirkjulaga sem samþykkt var á kirkjuþingi 2008.
  2. Fyrirhuguð breyting á hjúskaparlögum.
  3. Samningar ríkis og kirkju sem hafa verið lögfestir.
  4. Fjármál þjóðkirkjunnar (kynning á fjárhagslegum samskiptum ríkis og kirkju, svo og rauntölur um niðurskurð sem þjóðkirkjan hefur tekið á sig).
  5. Frumvarp til laga um breyting á kirkjugarðalögum.
  6. Önnur mál

Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, stjórnaði fundinum. Fundinn sátu af hálfu Alþingis fulltrúar þingflokkanna: Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingunni, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokknum, Árni Þór Sigurðsson, Vinstri grænum, Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokknum og Birgitta Jónsdóttir, Hreyfingunni. Þá sat fundinn Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis og Þorsteinn Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóri er ritaði fundargerð.

Auk kirkjuráðs sátu fundinn framkvæmdastjóri kirkjuráðs Guðmundur Þór Guðmundsson og Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari. Fundinum lauk kl. 11,45.

b) Yfirlit yfir helstu verkefni kirkjuráðs á starfstímanum frá okt. 2007 til mars 2010 – utan hinna hefðbundnu verkefna (frestað frá síðasta fundi). Kirkjuráðsmenn báru fram nokkrar spurningar varðandi stöðu verkefna sem mun verða svarað á næsta fundi.

2. Kirkjuþing

a) Endurskoðun frumvarps til þjóðkirkjulaga 
Ákveðið var að fresta málinu til næsta fundar en forseti kirkjuþings hafði boðað forföll eins og áður greinir.

b) Kirkjuþing unga fólksins
Biskup upplýsti að stjórn ÆSKÞ hefði óskað eftir því að tilnefningum til kirkjuþings unga fólksins 2010 væri frestað og hafa biskup og forseti kirkjuþings fallist á það og að fresta þinginu um eitt ár.

3. Fasteignir

Tilboð í endurbætur á Hamrahlíð 12, Vopnafirði
Verkið var boðið út nýlega. Eitt tilboð barst í endurbæturnar á húsnæðinu að fjárhæð 34 millj. kr. Fyrri samþykkt kirkjuráðs stendur óbreytt en þar var gert ráð fyrir 15 millj. kr. í endurbætur. Málið er hjá fasteignanefnd.

4. Fjármál

a) Ársreikningar 2009
Fjármálastjóri kynnti endurskoðaða ársreikninga fyrir Þjóðkirkjuna, Ýmsa vörslusjóði og Hinn almenna kirkjusjóð. Kirkjuráð áritaði ársreikning fyrir Þjóðkirkjuna 2009.

b) Rekstraráætlun Biskupsstofu 2011
Yfirlit til kirkjuráðs um niðurskurð og sparnað Biskupsstofu fyrir árið 2011 voru kynnt. Ákveðið var að taka til umræðu og skoðunar hagræðingarkröfu fyrir 2011 vegna væntanlegs niðurskurðar á fjárlögum. Kirkjuráð fól embættismönnum sínum að koma með tillögur fyrir næsta fund.

c) Kostnaður vegna nefnda og fleira.
Starfshópur um samskiptastefnu.
Kirkjuráð samþykkti að veita kr. 150 þús. vegna vinnu hópsins. Í hópnum sitja séra Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi, Steingrímur Ólafsson, blaðamaður, séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, starfsmaður nefndarinnar er séra Árni Svanur Daníelsson.
 

Starfshópur um stefnumótun í málefnum fatlaðra.
Kirkjuráð samþykkti að veita kr. 150 þús. vegna vinnu hópsins. Í starfshópnum eru séra Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, séra Birgir Ásgeirsson, prestur í Hallgrímskirkju og Gerður Aagot Árnadóttir, læknir í Garðabæ. 

Nefnd um endurskoðun á vali á prestum o.fl.
Samþykkt var að veita kr. 200 þús. vegna nefndarvinnunnar en sú nefnd hefur þegar hafið störf. 
 

Norrænn biskupafundur sumarið 2010.
Kirkjuráð samþykkti að veita styrk að fjárhæð kr. 1200 þús. vegna norræns biskupafundar sem haldinn verður í Danmörku í sumar.
Norrænn biskupafundur er haldinn á þriggja ára fresti.

d) Málefni Kársnessóknar
Fjármálastjóri greindi frá því að fulltrúar sóknarinnar hafi komið á fund fjármálahóps kirkjuráðs að beiðni hópsins og gert grein fyrir fjárhagsstöðu sóknarinnar. Sóknin er skuldsett vegna byggingar safnaðarheimilis og fyrir liggur að semja við lánadrottna um uppgjör skulda.

e) Málefni Hjarðarholtssóknar
Fjárhagsstaða sóknarinnar var til umfjöllunar og mættu fulltrúar sóknarinnar ásamt sóknarpresti á fund fjármálahópsins. Sóknin er skuldsett vegna frágangs á bílastæðum og umhverfi kirkjunnar. Kirkjuráð samþykkti tillögu fjármálahópsins um að taka þátt í að lækka skuldir sóknarinnar með framlagi á móti styrk frá sveitarfélaginu, sem sóknin ætlar að fara fram á.

5. Prestastefna 2010

Biskup gerði grein fyrir ályktunum Prestastefnu 2010 sem beint var til kirkjustjórnarinnar. Þær eru eftirfarandi: 

1. Ályktun um viðhorf og traust
Prestastefna 2010 ályktar að kirkjustjórnin láti kanna viðhorf og traust fólks til stofnana og starfsþátta þjóðkirkjunnar.

2. Ályktun um starfshætti
Prestastefna 2010 hvetur til umræðu um starfshætti þjóðkirkjunnar til að marka skýra og skilvirka stefnu hennar.
Prestastefna 2010 ályktar að tekin verði saman skýrsla um þjóðkirkjuna og bankahrunið. Í skýrslunni verði m.a. leitast við að greina styrkleika og veikleika í störfum kirkjunnar gagnvart anda og iðju sem hér þreifst fyrir bankahrunið og þeim áföllum sem dundu á þjóð og einstaklingum við hrun bankanna.
Í skýrslunni verði tillögur um hvaða starfsþætti þjóðkirkjunnar þarf að styrkja og hverju þarf að breyta til að starf kirkjunnar verði í samræmi við köllun þjóðkirkju og til hags fyrir íslenskt samfélag.

3. Ályktun um samfélagsmál
Prestastefna Íslands, haldin í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010, hvetur til samstöðu, þolgæðis og vonar á erfiðum tímum. Hún fagnar útkomu Rannsóknarskýrslu Alþingis og þakkar þann grunn sem skýrslan veitir til uppbyggingar og endurreisnar í íslensku þjóðfélagi. Hreinskilið og undanbragðalaust uppgjör skiptir nú afar miklu máli og vill Prestastefnan hvetja til þess að umbótaviljinn sem skýrslan vekur sé virkjaður.
Þjóðkirkjan áréttar mikilvægi bjartsýnnar lífsafstöðu, trausts og trúnaðar við kristin gildi og mun nú sem endranær hafa umhyggju, kærleika og réttlæti til grundvallar starfi sínu.
Stór hluti ungra fjölskyldna á Íslandi á í efnahagslegum þrengingum. Prestastefnan skorar á stjórnvöld að tryggja viðunandi ytri umgjörð fyrir heill og velferð sérhvers barns.
Prestastefnan áréttar mikilvægi heimila og skóla í uppeldi og menntun ungrar kynslóðar til heilbrigðra lífshátta og tileinkunar kristinna lífsgilda.
Prestastefna minnir á mikilvægi þess að standa vörð um íslenska velferðarkerfið á tímum uppbyggingar eftir hrun.
Þjóðkirkjan er öllum opin og hún býður fram liðveislu sína til eflingar góðu samfélagi á landinu.
 
Kirkjuráð fjallaði um ályktanirnar og ákvað að óska eftir því við þjóðmálanefnd að nefndin tæki ályktanirnar til athugunar.

6. Önnur mál

Kynntar voru niðurstöður kosninga til kirkjuþings en kosningu lauk á miðnætti hinn 15. maí sl. Ákveðið var að óska eftir því við kjörstjórn að hún kæmi með ábendingar um hvort eitthvað megi betur fara í starfsreglum um kjör til kirkjuþings. 

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16.15.
Næsti fundur verður haldinn í Skálholti um Jónsmessuna.