153. kirkjuráðsfundur 1. júní 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
06/01/2010 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning

Fundurinn hófst kl. 9 með ritningarlestri og morgunbæn.

Mætt voru biskup Íslands, Karls Sigurbjörnsson og kirkjuráðsmennirnir séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson og Jóhann E. Björnsson. Sigríður M. Jóhannsdóttir boðaði forföll svo og fyrsti varamaður hennar, Katrín Ásgrímsdóttir og sat fundinn Hulda Guðmundsdóttir, annar varamaður. Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, sat einnig fundinn.

Fundinn sátu jafnframt Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.

2. Fjármál

Niðurskurður fjárframlaga ríkisins til þjóðkirkjunnar árið 2011.
Þessi fundur kirkjuráðs var boðaður með stuttum fyrirvara til að ræða fyrirhugaðan niðurskurð á fjárlögum 2011. Skrifstofustjóri og fjármálastjóri voru boðaðar á fund í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu þar sem 9% niðurskurður vegna fjárlagagerðar 2011 var tilkynntur og að kirkjuráði yrði gefinn frestur til 11. júní að koma með tillögur um hvernig þessum niðurskurði yrði mætt hjá Þjóðkirkjunni.
 
Ákveðið var að halda áfram viðræðum um niðurskurðartillögur ráðuneytisins og reyna með því að hafa áhrif á fjárlagagerðina hvað varðar fjárlagaliði hjá biskupi Íslands, Kirkjumálasjóði, Jöfnunarsjóði sókna, Kristnisjóði og á sóknargjöldum. Skoðaðar verði allar leiðir til sparnaðar. Gera verður viðaukasamkomulag við kirkjujarðasamkomulagið frá 1997 með samsvarandi breytingum á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og gert var vegna ársins 2010. 

Alþingi samþykkti hinn 22. mars 2010 lög um breytingu á lögum nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Þar segir í 1. gr.: „Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði laganna skal skuldbinding ríkisins skv. 60. gr. á árinu 2010 vera þannig að framlög ríkisins til þjóðkirkjunnar samkvæmt sérstöku samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar munu lækka um 160 millj. kr. Með sama hætti skal framlag ríkissjóðs til Kristnisjóðs skerðast um 9 millj. kr. á árinu 2010.“  Lög þessi gilda um niðurskurð vegna ársins 2010.

Forseta kirkjuþings og biskupi var falið að koma með tillögur að nýjum viðaukasamningi fyrir næst fund. 

Fjármálastjóri og skrifstofustjóri kynntu tillögur að því hvernig niðurskurði vegna ársins 2011 verði mætt. Niðurskurðartillögunum var vísað til fjármálahóps kirkjuráðs og verða þær ræddar að nýju á næsta fundi kirkjuráðs.

3. Önnur mál

a) Kirkjumiðstöðin á Akureyri
Leigusamningur um húsnæðið að Brekkugötu 2 rennur út 15. júní n.k.
Samþykkt var að athuga með tímabundna framlengingu á leigu húsnæðisins. 

b) Skálholt
Sr. Kristján Björnsson og Jóhann E. Björnsson, sem sitja í stjórn Skálholts, gerðu grein fyrir færanlegri 120 fm. gestastofu sem byggð hefur verið vestan við Skálholtsskóla niðri við bílastæðin. Stefnt er að því að opna gestastofuna með sýningu um sögu staðarins síðar í þessum mánuði.

Kirkjuráð samþykkti viðbótarframlag að fjárhæð kr.  4 milljónir til uppsetningar sögusýningar. Fjárveitingin mun koma af  framlagi ríkisins vegna ársins 2011. 

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 12.35.
Næsti fundur verður haldinn í Skálholti um Jónsmessuna.