154. kirkjuráðsfundur 24. og 25. júní 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
06/24/2010 (daglangt)
Staður: 
Skálholt

1. Fundarsetning og fundargerðir 17. maí og 1. júní

Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.
Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.

Fundargerðir 17. maí og 1. júní voru samþykktar.

2. Staða verkefna

Lagt var fram yfirlit yfir helstu verkefni kirkjuráðs á starfstímanum okt. 2007 til mars 2010 – utan hinna hefðbundnu verkefna. 
-  Þinglýsingar kirkna
Verkefnið er í vinnslu og lokið er kynningum þess á héraðsfundum.
-  Stofnun Sigurbjörns Einarssonar
Undirbúningur er hafinn að málþingi um verkefni stofnunarinnar og skipan fagráðs, en ekki verður ráðinn forstöðumaður árið 2010. Stjórnin hefur komið saman tvisvar.
- Ásar í Skaftártungu
Ráðinn hefur verið lögmaður til að gæta hagsmuna Eystri – Ása,  eign kirkjumálasjóðs í samstarfi við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið f.h. ríkisins sem eiganda Ytri – Ása. 
- Breiðabólstaður í Fljótshlíð
Unnið er að frágangi landamerkja milli jarðarinnar Aurasels og „gömlu“ Lambeyjar sem myndi þannig tengjast Breiðabólsstað með formlegum hætti. Jafnframt er unnið að því að koma á hreint landamerkjum Breiðabólstaðar við aðrar aðliggjandi jarðir.
- Þykkvabæjarklausturskirkja
Kirkjan er í eigu ríkisins. Unnið er að afhendingu kirkjunnar til kirkjumálasjóðs.
- Hruni
Yfirtökusamningur vegna hitaveitu í Hruna hefur verið samþykktur.
- Hrunaheiðar
Ágreiningur um girðingarframkvæmdir á mörkum Hrunaheiða og jarðar í einkaeigu. Málið er fyrir dómstólum. 
- Syðra-Laugaland
Ekki hefur náðst samkomulag við sveitarfélagið um lóðarstærð og leigufjárhæð. Málið er í vinnslu hjá fasteignasviði.
- Valþjófsstaður
Úrskurður Óbyggðanefndar um mörk þjóðlendu og lands Valþjófsstaðar er enn hjá dómstólum.
- Valþjófsstaður
Landamerkjadeila milli Valþjófsstaða og nágrannajarðarinnar Hóls. Málið er í vinnslu.
-  Kolfreyjustaður
Brýnt er að afmarka lóð fyrir kirkjuna. Áformað er að leigja prestsseturshúsið.
Kirkjuþing 2009 samþykkti að óska umsagnar safnaðarfundar og héraðsfundar Austfjarðarprófastsdæmis um framtíðarstaðsetningu prestsseturs í Kolfreyjustaðarprestakalli.
-  Kirkjumiðstöðin á Akureyri, Brekkugötu 1b.
Kirkjuráð samþykkt var endurnýja ekki leigusamninginn um húsnæðið, en hann rennur út nú um mitt sumar. Sigríður M. Jóhannsdóttir óskaði eftir því að bókað yrði að hún væri alfarið á móti því að Kirkjumiðstöðinni á Akureyri yrði lokað og vildi því framlengja leigusamningnum.
-  Eignaréttarleg staða bændakirkna
Samþykkt var að leita til Guðjóns Albertssonar, lögfræðings, og fyrrum starfsmanns Prestssetrasjóðs um að afla gagna og gera drög að álitsgerð um bændakirkjur og stöðu þeirra.
-  Niðurfelling á gjaldtöku fyrir fermingarfræðslu og skírn (samþykkt á kirkjuþingi 2007).
Málið er á borði dómsmála- og mannréttindaráðherra.

3. Kirkjuþing

a) Aukakirkjuþing 2010
Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, lagði fram minnisblað um heimild forseta kirkjuþings til að kalla saman aukakirkjuþing á kosningaári, skv. starfsreglum um þingsköp kirkjuþings. Aukaþingið mun fjalla um boðaðan niðurskurð ríkisins á fjárlagalið þjóðkirkjunnar. Aukakirkjuþing verður haldið laugardaginn 7. ágúst nk. kl. 9 í Grensáskirkju og er stefnt að því að þingið standi yfir í einn dag.

b) Frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga 
Á síðasta fundi kirkjuráðs var forseta kirkjuþings og Kristjáni Björnssyni kirkjuráðsmanni falið að fara yfir frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga sem kirkjuþing 2008 samþykkti og meta hvort ástæða væri til að gera á því einhverjar breytingar fyrir kirkjuþing 2010. Leitað var til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um óformlegt samráð við þetta mat til að tryggja betur framgang málsins. Pétur Kr. Hafstein gerði grein fyrir breytingunum. Ákveðið að fela forseta kirkjuþings og Kristjáni Björnssyni að vinna áfram að breytingum á frumvarpinu.

4. Fjármál

a) Niðurskurður á fjárlagalið þjóðkirkjunnar 2011
Boðaður hefur verið 9% niðurskurður á fjárlögum 2011, alls kr. 345 millj. og þar af er áætlaður kr. 162 millj. niðurskurður á sóknargjöldum. Stefnt er að því að fá fund með hlutaðeigandi ráðherrum til viðræðna um þennan boðaða niðurskurð.

b) Reiknilíkan vegna launa árið 2010 og fjárlagatillögur 2011
Fjármálaráðuneytið hefur hafnað að uppfæra laun ársins 2010, að fjárhæð 10,2 m. kr. vegna starfsmanna á Biskupsstofu, en uppfærslan er í samræmi við samning milli íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar frá 4. september 1998.
Kirkjuráð mótmælir því eindregið að fjármálaráðuneytið virði ekki samninginn enda skýrt hvað þetta ákvæði varðar og mun taka málið upp til leiðréttingar við dómsmála- og mannréttindaráðherra, en að öðrum kosti vísa ágreiningi til þriggja manna ágreiningsnefndar, sbr. 11. gr. samningsins.

c) Tillaga fasteignanefndar þjóðkirkjunnar að fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun vegna ársins 2011
Áætlanirnar voru lagðar fram til kynningar skv. starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar.

d) Ársreikningar Jöfnunarsjóðs sókna og Kynningar-, útgáfu- og fræðslusjóði vegna ársins 2009
Ársreikningarnir lagðir fram til samþykktar og undirritunar. Kirkjuráð samþykkti og undirritaði ársreikningana.

e) Málefni Dómkirkjusóknar
Fjármálastjóri gerði grein fyrir því að á fund fjármálahóps hefðu mætt fulltrúar Dómkirkjusóknar til að ræða stöðu fjármála sóknarinnar. Dómkirkjusókn fór í framkvæmdir árið 2000 sem kostuðu um 210 m. kr. og tók langtímalán að fjárhæð 120 m. kr., sem stendur í tæpum 90 m. kr. árslok 2010. Sóknarnefndin telur sig ekki geta staðið í skilum með lánið að óbreyttu. Því er óskað eftir aukafjárveitingu að fjárhæð kr. 5 millj. til að standa við greiðslu í byrjun árs 2011.
Erindi sóknarnefndar verður til umfjöllunar á úthlutunarfundi Jöfnunarsjóðs síðar á árinu.
 
f) Strandarkirkja
Samþykkt var að áhöld og tæki verði gjaldfærð í reikningum Strandarkirkju og er það gert samkvæmt ósk Ríkisendurskoðunar.

g) Ráðstöfunarfé biskups
Samþykkt var viðbótarframlag kr. 500 þús. úr kirkjumálasjóði í ráðstöfunarfé biskups 2010.

5. Fasteignir

a) Stafholtsprestakall
Samþykkt var að hefja undirbúning að alútboði vegna byggingar prestsbústaðar í Stafholti.

b) Réttindi sókna (sóknarkirkna) á landi kirkjumálasjóðs
Fasteignanefnd þjóðkirkjunnar leggur til að þar sem kirkja og/eða kirkjugarður eru á landi sem er í eigu kirkjumálasjóðs verði gengið frá afmörkun lands og það afhent til endurgjaldslausra afnota. Gerður verði skiptasamningur innan þessa lands milli þeirra sem það nýta. Kirkjuráð samþykkti þetta.

c) Yfirlit yfir störf fasteignanefndar
Formaður fasteignanefndar lagði fram og kynnti ítarlegt yfirlit yfir skipulag og störf fasteignanefndar þjóðkirkjunnar og fasteignasviðs Biskupsstofu. 

6. Skálholt

a) Sýningarhús
Reist hefur verið sýningarhús í Skálholti. Lögð var fram kostnaðaráætlun vegna sýningaraðstöðunnar að fjárhæð kr. 3,9 millj. Kirkjuráð samþykkti þann kostnað sem verður hluti stofnkostnaðar.

b) Rekstraryfirlit Skálholts
Lagt var fram yfirlit yfir rekstur staðarins frá 1. jan. til 31. maí 2010.

c) Viðgerð á gluggum Skálholtskirkju
Borist hefur skýrsla frá Oidtmann - glerverkstæði í Þýskalandi varðandi viðgerð á steindu gleri í gluggum Skálholtskirkju, en verkstæðið önnuðust smíði steindu gluggana á sínum tíma. Viðgerðarkostnaður við glerið og rammana er áætlaður á bilinu 17 til 22 millj. kr.

7. Önnur mál

a) Erindi frá Leikmannaráði – frestað

b) Erindi frá íslensku söfnuðum erlendis (Danmörku, Svíþjóð, London) – frestað

c) Reglur um greiðslumark – frestað

d) Erindi frá Múlaprófastsdæmi – frestað

e) Erindi frá Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttir
Borist hefur erindi frá Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem hún óskar eftir að fá að hitta kirkjuráð. Samþykkt var að bjóða henni að koma á kirkjuráðsfund í september.

f) Önnur mál
 - Lágafellssókn, Kjalarnessprófastsdæmi
Fjármálastjóri greindi frá því að fulltrúar Lágafellssóknar hefðu verið boðaðir á fund fjármálahóps kirkjuráðs vegna fyrirhugaðrar kirkjubyggingar í Mosfellsbæ sem sóknarnefndin hyggst reisa í samvinnu við sveitarfélagið.
Sóknarnefndin fékk senda bókun fjármálahóps í fundargerð og gerði athugasemd við hana og óskaði eftir því að fyrirhuguð kirkjubygging yrði ekki rædd á þessum kirkjuráðsfundi og að sóknarnefndin fengi að skýra málið betur.
Fram kom að fulltrúar sóknarinnar hefðu lagt fram gögn á fundi fjármálahóps sem sýndu að áætlaður kostnaður við byggingu kirkju og menningarhúss er um 2,5 milljarðar kr. og er þá miðað við að stærð byggingarinnar sé 5962 fermetrar. Áætlað er að hlutur sóknarinnar í byggingarkostnaðinum samkvæmt forsendum sóknarnefndar verði um 1,2 milljarðar.

Kirkjuráð samþykkti að gefa sóknarnefndinni kost á að skýra málið betur en hafnar afdráttarlaust fram komnum hugmyndum Lágafellssóknar um kirkjubyggingu í Mosfellsbæ og telur ekki koma til álita að ráðist sé í svo kostnaðarsama framkvæmd. 
 
Tveggja daga fundi kirkjuráðs í Skálholti var slitið fyrri daginn kl. 22,30 og seinni daginn kl. 16,15. Næsti kirkjuráðsfundur verður miðvikudaginn 28. júlí kl. 9 vegna undirbúnings aukakirkjuþings.