155. kirkjuráðsfundur 27. júlí 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
07/27/2010 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning og fundargerð

Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn sem biskup leiddi.

Mætt voru auk biskups, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.

Fundinn sátu einnig Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.

Þá sat fundinn á meðan málefni kirkjuþings voru til umræðu, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

Hlé var gert á fundinum en þá héldu biskup, séra Halldór Gunnarsson og séra Kristján Björnsson og Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri, á fund með fjármálaráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra. Fundurinn, hófst kl. 14,30 og stóð yfir í tæpa klukkustund. Hann var haldinn að ósk kirkjuráðs til að andmæla og ræða fyrirhugaðan niðurskurð á fjárheimildum þjóðkirkjunnar. Biskup gerði grein fyrir umræðum á fundinum. Haldið verður áfram að ræða niðurskurðartillögur við ráðuneytin.

2. Aukakirkjuþing 2010

Forseti kirkjuþings lagði fram drög að dagskrá aukakirkjuþingsins sem verður haldið laugardaginn 7. ágúst nk. Hann kynnti einnig tillögur forsætisnefndar um nefndaskipun á þinginu o.fl.

3. Frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga

Forseti kirkjuþings gerði grein fyrir breytingum á frumvarpinu sem hann og séra Kristján Björnsson hafa unnið samkvæmt beiðni kirkjuráðs. Breytingatillögurnar voru ræddar og vísað til biskups og framkvæmdastjóra kirkjuráðs, sem munu leggja fram tillögur fyrir næsta fund kirkjuráðs.

4. Fjármál

Tillaga til þingsályktunar um viðbrögð kirkjuþings við niðurskurðarkröfu ríkisins fyrir árið 2011.

Kirkjuráð ákvað að leggja fyrir aukakirkjuþing tillögu sem fjallar um tímabundinn viðaukasamning við samkomulag um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar 10. janúar 1997 og samning um rekstrarkostnað vegna prestsembætta og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag til kristnisjóðs og sérframlög til þjóðkirkjunnar, dags. 4. september 1998 vegna niðurskurðarkröfu ríkisins fyrir árið 2011.

Samþykkt var að leggja fyrir aukakirkjuþingið tillögu til þingsályktunar vegna fjárlaga 2011 þess efnis að fela kirkjuráði að vinna að niðurskurði eftir mismunandi forsendum. 

Tillögurnar og fylgiskjöl verða send út til kirkjuþingsfulltrúa.

5. Önnur mál

a) Íbúðalánasjóður.
Svar hefur borist frá Íbúðalánasjóði vegna erindis kirkjuráðs um hvort mögulegt sé að fá lán hjá sjóðnum vegna kaupa á prestsbústöðum. Fram kom hjá Íbúðalánasjóði að leita þurfi staðfestingar félags- og tryggingamálaráðuneytis á því að kirkjumálasjóður uppfylli tiltekin skilyrði til að mögulegt sé að sjóðurinn fái lán hjá Íbúðalánasjóði. Samþykkt var að kanna hvort kirkjumálasjóður geti hlotið slíka staðfestingu.

b) Upplýst var að unnið er að alútboði vegna byggingar nýs prestsbústaðar í Stafholti.

c) Sr. Halldór Gunnarsson gerði grein fyrir fundi fjármálahóps kirkjuráðs þann 23. júlí sl. þar sem fjallað var um niðurskurðartillögur (sjá hér að ofan), húsaleigutekjur kirkjumálasjóðs, greiðslumark á prestssetrum o.fl. Samþykkt var að lagahópur vinni tillögur að reglum um greiðslur vegna greiðslumarks sem verði lagðar fyrir kirkjuþing í haust.

d) Fasteignin Hamrahlíð 12 á Vopnafirði.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála. Ráðgert er að hefjast handa við verklegar framkvæmdir í ágústmánuði.  

e) Vopnafjarðarsókn
Lagt var fram erindi frá sóknarnefnd Vopnafjarðarsóknar um styrk vegna ársins 2010 en mistök höfðu átt sér stað við ferli umsóknar í Jöfnunarsjóð sókna vegna ársins 2010. Samþykkt var að veita sókninni nú styrk úr Jöfnunarsjóði sókna að fjárhæð 1 millj. kr.

Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl 15:30