156. kirkjuráðsfundur 17. ágúst 2010
Hópur:
Kirkjuráð
Dagsetning:
08/27/2010 (daglangt)
Staður:
Biskupsstofa 1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefnaFundurinn hófst kl. 9 með ritningarlestri og morgunbæn. Mætt voru biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, séra Halldór Gunnarsson, séra Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Fundinn sátu jafnframt Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð. Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, sat einnig fundinn að hluta. Þá komu og á fundinn þriggja manna nefnd sem aukakirkjuþing 2010 samþykkti að skipa. Aukakirkjuþing var haldið laugardaginn 7. ágúst s.l. í Grensáskirkju þar sem niðurskurður á fjármálum kirkjunnar var til umfjöllunar og var það eina málið á dagskrá. Ályktanir aukakirkjuþings verða sendar formlega til dómsmála- og mannréttindaráðherra en ráðuneytisstjóri sat þingið að hluta auk fulltrúa ráðuneytisins er sat allt þingið svo sem venja er. 2. Kirkjuþing 2010a) Kirkjuþing 2010. Samþykkt var að farið verði yfir starfsreglur og kannað hvar breytinga er þörf. Einnig var rætt um hvernig heppilegast væri að koma í starfsreglum ákvæði úr Siðareglum vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar um heimild til að leita upplýsinga úr sakaskrá. Bent var á að eðlilegt væri að ákvæði um slíkt kæmi inn í starfsreglur um sóknarnefndir, presta, djákna og organista. Lagahópnum var falið að útfæra þetta. b) Þriggja manna nefnd aukakirkjuþings 2010. Í þriggja manna nefndina voru kjörnir kirkjuþingsfulltrúarnir Ásbjörn Jónsson, séra Gunnlaugur Stefánsson og Katrín Ásgrímsdóttir. Nefndarmenn mættu á kirkjuráðsfundinn kl. 13 og lögðu fram hugmyndir sem nefndin hafði unnið að með hliðsjón af samþykktum og umræðum á aukakirkjuþingi. Kirkjuráð samþykkti að fela fjármálahópi kirkjuráðs að starfa með þriggja manna nefndinni að útfærslu á fram komnum tillögum um niðurskurð. Jafnframt var sömu aðilum falið að ræða við embættismenn dóms- og mannréttindaráðuneytis og fjármálaráðuneytis um þau samningsmarkmið sem kirkjuþing samþykkti. Fram kom að brýnt væri að auka upplýsingar til almennings og stjórnvalda um grundvöll fjármála kirkjunnar og ekki hvað síst um hvers eðlis sóknargjöld eru, svo og þá þjónustu sem kirkjan veitir um land allt. 3. FjármálLagðar voru fram síðustu tvær fundargeðir fjármálahóps kirkjuráðs, frá 23. júlí og 16. ágúst. a) Tillögur fjármálahóps að niðurskurði í fjármálum kirkjunnar. 4. Fasteignira) Fjárhagsáætlun fasteignasviðs b) Umfjöllun um sölumeðferð fasteigna. 5. Reglur um greiðslumarkKristján Björnsson gerði grein fyrir tillögum lagahópsins m.a. að greint verði á milli þess greiðslumarks sem prestssetrasjóður hefur keypt við úttektir og þess er áður fylgdi jörðunum. Kirkjuráð samþykkti tillögu lagahóps að ákvæði um greiðslur og meðferð greiðslumarks verði bætt við starfsreglur um prestssetur og aðrar fasteignir kirkjumálasjóðs frá 2009. 6. Önnur mála) Yfirlit yfir störf fagráðs um kynferðisbrot b) Erindi frá leikmannaráði c) Erindi frá Múlaprófastsdæmi d) Fulltrúaráð Hjáparstarfs kirkjunnar e) Önnur mál - Á fund kirkjuráðs kom Guðrún Ebba Ólafsdóttir sem hafði óskað eftir fundi með kirkjuráði. Með henni komu á fundinn séra Sigfinnur Þorleifsson og dr. Sólveig Anna Bóasdóttir. Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15,30. |
|||||