157. kirkjuráðsfundur 25. ágúst 2010

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
08/25/2010 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

Símafundur haldinn á Biskupsstofu, Reykjavík kl 14:30

Mætt voru á biskupsstofu biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson og séra Kristján Björnsson en í síma voru þau séra Halldór Gunnarsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.

Fundinn sátu jafnframt Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð.

Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, sat einnig fundinn.

Kirkjuráð kom saman ásamt forseta kirkjuþings til að ræða þá stöðu sem nú er komin upp í kjölfar umfjöllunar um kynferðisbrot, sem Ólafur Skúlason, biskup, var sakaður um árið 1996. Umræðan fór af stað eftir síðasta fund kirkjuráðs þar sem Guðrún Ebba Ólafsdóttir, mætti og tjáði sig um sín mál.
Þess er vænst að kirkjuráð bregðist við með áþreifanlegum hætti. Biskup hafði átt fund með dómsmála- og mannréttindaráðherra þar sem farið var yfir til hvaða úrræða kirkjan gæti gripið og voru ýmsar leiðir kannaðar. Auk þess hafði biskup rætt við forseta kirkjuþings um stöðuna. 

Fyrir var tekið: 

1. Rannsóknarnefnd kirkjuþings

Yfirlýsing til fjölmiðla
Kirkjuráð ákvað á fundi sínum í dag, 25. ágúst 2010 að beina því til forsætisnefndar kirkjuþings að undirbúa fyrir kirkjuþing 2010 tillögur að rannsóknarnefnd til þess að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot.
Rannsóknarnefndin verði skipuð faglærðu fólki óháðu stofnunum og embættum þjóðkirkjunnar. Lögð verði áhersla á að rannsóknarnefndin hraði störfum svo sem kostur er og skili kirkjuþingi niðurstöðum sínum sem jafnframt verði kynntar opinberlega.
Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar og er að meiri hluta skipað leikmönnum undir forsæti Péturs Kr. Hafstein, fyrrverandi hæstaréttardómara. Forsætisnefnd skipa auk hans Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson, lögmaður.

2. Fyrirgefningarbeiðni kirkjuráðs

Yfirlýsing til fjölmiðla
Kirkjuráð hefur átt fundi með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota. Kirkjuráð trúir frásögnum þeirra og tekur undir orð biskups Íslands í fjölmiðlum í dag þess efnis. Fyrir hönd þjóðkirkjunnar biður kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. Kirkjuráð harmar þá þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið.
Kirkjuráð ítrekar að kynferðisbrot eru ekki liðin innan kirkjunnar og lýsir samstöðu við þá einstaklinga og félagasamtök sem styðja þau sem líða og vinna að forvörnum og vitundarvakningu meðal þjóðarinnar um þessi alvarlegu mál.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 16:30.