Dagsetning:
09/07/2011 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar
Fundurinn hófst kl. 9. Mætt voru auk biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar, Ásbjörn Jónsson, séra Gísli Gunnarsson, séra Gunnlaugur Stefánsson og Katrín Ásgrímsdóttir. Fundinn sátu jafnframt Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, sem ritaði fundargerð, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari. Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, sat fundinn meðan málefni kirkjuþings voru til umfjöllunar. Ragnhildur Benediktsdóttir var í leyfi.
Fundargerð síðasta fundar, 171. fundar, var samþykkt.
2. Kirkjuþing 2011
Lögð var fram málaskrá kirkjuþings 2011.
Lokafrestur til framlagningar mála á kirkjuþingi er 3. október 2011. Þeim tilmælum hefur verið beint til kirkjuþingsfulltrúa að halda þingmálafundi eigi síðar en síðustu vikuna í september þannig að fundum sé lokið um mánaðamót september/október.
Þá var rætt um undirbúning kirkjuþings unga fólksins.
Frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga
Lagt var fram bréf Péturs Kr. Hafstein, formanns milliþinganefndar kirkjuþings 2010, dags. 6. september 2011, ásamt frumvarpi nefndarinnar til nýrra þjóðkirkjulaga með athugasemdum. Frumvarpið hafði verið kynnt á kirkjuráðsfundi 3. ágúst 2011 og jafnframt hafði formaður nefndarinnar átt fund með fulltrúum fjármála- og innanríkisráðuneyta um tiltekna þætti frumvarpsins. Formaður fór yfir þær breytingar á frumvarpinu sem gerðar hafa verið frá framangreindum kirkjuráðsfundi.
Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007
Lögð var fram til kynningar tillaga biskups Íslands, sem biskupafundur hafði fjallað rætt, um sameiningu
Eiða-, Seyðisfjarðar-, Vallanes- og Valþjófsstaðaprestakalla í eitt prestakall, Egilsstaðaprestakall. Jafnframt er gerð tillaga um sameiningu Ísafjarðar- og Hnífsdalssókna, Vestfjarðaprófastsdæmi auk smávægilegra breytinga á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði.
Tillaga að starfsreglum um sálnaregistur
Mál þetta er í vinnslu.
Tillaga til þingsályktunar um vímuvarnarstefnu þjóðkirkjunnar
Lögð var fram til kynningar tillaga biskups til þingsályktunar um vímuvarnarstefnu þjóðkirkjunnar.
Tillaga til þingsályktunar um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar
Lögð var fram til kynningar tillaga biskups til þingsályktunar um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar.
Tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna
Málið er í vinnslu.
Tillaga að starfsreglum um æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar
Kirkjustarfshópi hafði verið falið að semja tillögur um æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar. Frestað til næsta fundar.
Tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings
Lögð var fram tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings, en nefnd skipuð af kirkjuráði undir forystu sr. Gísla Gunnarssonar kirkjuráðsmanns hafði samið tillögurnar. Tillögurnar verða lagðar fram á kirkjuþingi 2011 til kynningar en gert er ráð fyrir að kirkjuþing 2012 afgreiði málið endanlega.
Tillaga að starfsreglum um sóknarnefndir
Lagðar voru fram tillögur að endurskoðuðum starfsreglum um sóknarnefndir. Meginbreyting frá núgildandi starfsreglum er sú að tekin eru upp skýrari ákvæði um skyldur sóknarnefnda hvað varðar innra starf kirkjunnar. Jafnframt eru ákvæði samræmd öðrum tillögum að starfsreglum sem við eiga og lagðar verða fram á kirkjuþingi 2011, einkum starfsreglur um presta.
Tillaga að starfsreglum um val og veitingu prestsembætta
Lögð var fram tillaga að starfsreglum um val og veitingu prestsembætta, en nefnd skipuð af kirkjuráði hafði fjallað um málið á grundvelli samþykktar kirkjuþings 2010 og samið framangreindar tillögur. Kirkjuráð ræddi tillögurnar og ákvað að fela lagahópi að fara yfir þær og verða þær ræddar á næsta fundi kirkjuráðs.
Tillaga að starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa
Lagahópi kirkjuráðs hafði verið falið að fara yfir tillögur að starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa. Ásbjörn Jónsson gerði grein fyrir umræðum lagahópsins og sjónarmiðum varðandi fyrirkomulag á biskupskosningnum. Kirkjuráð ræddi ýmis sjónarmið en að lokum var samþykkt endanleg tillaga sem felur í sér breytingar á kosningarrétti einkum hvað varðar aukna þátttöku leikmanna og kirkjuþingsfulltrúa og kirkjuráðsmanna. Lagt er til að kosningar verði rafrænar.
Tillaga til þingsályktunar um fasteignastefnu þjóðkirkjunnar
Lögð var fram tillaga til þingsályktunar um fasteignastefnu þjóðkirkjunnar. Fasteignanefnd hefur farið yfir tillögurnar að nýju og gert tillögu að smávægilegum orðalagsbreytingum. Kirkjuráð samþykkti að leggja stefnuskjalið fram á kirkjuþingi 2011. Samdar verða tillögur að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði þar sem tekið er mið af þeim breytingum sem stefnan felur í sér varðandi fækkun prestssetra.
Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1998
Kynntar voru hugmyndir að breytingum á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa. Markmiðið er að lækka árlegan kostnað vegna rekstrarkostnaðarins um 10%.
Kirkjuráð samþykkti að flytja þingsályktunartillögu á kirkjuþingi í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar árið 2017.
3. Fasteignir
Erindi frá fasteignanefnd þjóðkirkjunnar
Kynnt var bókun fasteignanefndar þjóðkirkjunnar af fundi nefndarinnar þann 24. ágúst 2011. Nefndin óskar eftir að upplýst verði hvaða áform kirkjuráð hafi um framtíðarafnot húsakosts í Skálholti, en nefndinni var falin að fullu fasteignaumsýsla í Skálholti á síðasta fundi kirkjuráðs. Kirkjuráð telur að rétt sé að núverandi embættisbústaður vígslubiskups gegni því hlutverki fyrst um sinn.
Þá kemur nefndin því á framfæri við kirkjuráð að mat hennar sé að bráð nauðsyn sé á því að ráðinn verði starfsmaður sem allra fyrst í starf sviðsstjóra fasteignasviðs. Sjá næsta lið.
Ráðning sviðsstjóra fasteignasviðs
Á fundi kirkjuráðs þann 3. ágúst 2011 var kynnt að sviðsstjóri fasteignasviðs hefði sagt starfi sínu lausu. Kirkjuráð samþykkti að starfið yrði auglýst.
4. Fjármál
a) Endurskoðun fjárlagatillagna 06 701 Þjóðkirkjan 2011
Lagt var fram endurskoðað yfirlit vegna launahækkana skv. úrskurði kjararáðs hvað varðar laun presta svo og vegna kjarasamninga annarra starfsmanna.
b) Fjárlagatillögur 06 701 Þjóðkirkjan 2012
Lagt var fram yfirlit um fjárlagatillögur þjóðkirkjunnar 2012 ásamt skýringum, sem miðast við þær forsendur sem þekktar eru í dag.
c) Fjárhagsáætlun 06 701 Þjóðkirkjunnar 2012
Lagt var fram yfirlit yfir starfsmannahald næsta árs og samþykkti kirkjuráð þær forsendur sem byggt er á.
Felst í því að fækkun stöðuheimilda á sviði fjölskylduþjónustu kirkjunnar verður endurskoðað frá fyrri ákvörðun. Gunnlaugur ítrekaði fyrrri ákvarðanir kirkjuráðs um flutning á Fjölskylduþjónustunni í Grensáskirkju og á sameiningu við Hjálparstarf kirkjunnar.
d) Sóknargjöld 2012
Fjármálastjóri gerði grein fyrir horfum hvað varðar sóknargjöld ársins 2012.
e) Skil ársreikninga sókna fyrir árið 2010
Lagt var fram yfirlit yfir skil sókna á ársreikningum. Enn vantar nokkuð upp á að sóknir hafi skilað biskupsstofu og Ríkisendurskoðun ársreikningum vegna ársins 2010.
f) Kirkjuþing unga fólksins
Kirkjuráð samþykkti að hækka fjárheimild vegna kirkjuþings unga fólksins um 200 þús. Heildarfjárheimild ársins 2011 verður því 550 þús.
g) Erindi vegna íslensku kirkjunnar í Svíþjóð
Lagt var fram bréf íslenska safnaðarins í Gautaborg, dags. 25. júlí 2011. Þar kemur fram að sænska kirkjan, hefur veitt íslenska söfnuðinum fjárframlag til að tryggja 60% starf prests íslenska safnaðarins frá 1. desember 2010 til 30. nóvember 2011. Þau 40% sem eftir standa eru greidd af Sjúkratryggingum Íslands vegna þjónustu við Íslendinga sem koma til læknismeðferðar í Gautaborg. Óskað er eftir aðstoð og afstöðu kirkjuráðs til áframhaldandi prestsþjónustu. Biskup gerði grein fyrir vætanlegum fundi prófasts sérþjónustunnar með íslensku söfnuðunum erlendis um prestsþjónustu erlendis í boði Norðmanna. Kirkjuráð stendur við fyrri ákvörðun um að ekki sé unnt að halda úti prestsþjónustu erlendis og er því ekki unnt að halda úti prestsþjónustu á kostnað þjóðkirkjunnar í Svíþjóð. Fram kom að Íslendingar í Svíþjóð greiða engin trúfélagsgjöld.
h) Ársreikningur Kynningar- fræðslu- og útgáfusjóðs 2010
Lagður var fram ársreikningur Kynningar- fræðslu- og útgáfusjóðs fyrir árið 2010. Kirkjuráð undirritaði reikninginn.
5. Skálholt
Ákvarðanir til bráðabirgða um breytingar á rekstri Skálholts
Ræddar voru ákvarðanir varðandi rekstur og skipulag Skálholts sem sendar höfðu verið framkvæmdastjóra og rektor Skálholtsskóla í lok ágústmánaðar 2011, með samþykki kirkjuráðs. Um er að ræða aðlögun að breyttum forsendum þar sem stjórn Skálholts hefur verið lögð niður, fasteignaumsýsla færð til fasteignanefndar og bókhald verður fært til Biskupsstofu.
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri munu funda reglulega með framkvæmdastjóra Skálholts og rektor Skálholtsskóla varðandi reksturinn.
Umsókn um námsstyrk
Lagt var fram erindi frá Jóni Bjarnasyni organista sem hafði ekki verið afgreitt af fyrrum stjórn Skálholts varðandi námsstyrk. Kirkjuráð sá sér ekki fært að samþykkja styrkbeiðnina.
Vígsla vígslubiskups Skálholtsumdæmis
Sr. Kristján Valur Ingólfsson er nýkjörinn vígslubiskup í Skálholtsumdæmi. Vígslan
verður sunnudaginn 18. september 2011 kl 14 í Skálholtsdómkirkju. Kirkjuráði er boðið til vígslunnar.
6. Úrskurður úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar mál nr. 1/2011
Lagður var fram úrskurður úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli nr. 1/2011. Samkvæmt 13. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 hefur kirkjuráð heimild ásamt málsaðilum til áfrýjunar úrskurða úrskurðarnefndar til áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð samþykkti að nýta ekki áfrýjunarheimild samkvæmt framanskráðu.
7. Önnur mál
a) Erindi frá Prestafélagi Íslands
Lagt var fram bréf frá stjórn Prestafélags Íslands, dags. 28. ágúst 2011, þar sem því er mótmælt að laus prestsembætti séu ekki auglýst. Kirkjuráð samþykkti fyrr á árinu að beina tilmælum þess efnis til biskups Íslands að laus prestsembætti yrðu ekki auglýst, þar til kirkjuþing 2011 hefði fjallað um fjárhagsáætlanir næsta árs. Biskup varð við þeim tilmælum. Þá er einnig sett fram sú ósk af hálfu Prestafélags Íslands að afleysingastörf í prestsþjónustu verði auglýst og störf á vegum þjóðkirkjunnar, ef um lengri tíma en 3 mánuði er að ræða.
Kirkjuráð ræddi erindið en framangreind tilmæli ráðsins voru fyrst og fremst sett fram til að gæta jafnræðis og gefa kirkjustjórninni meira svigrúm með heildaryfirsýn til skipulagsbreytinga, sem einnig gæti m.a. mildað áhrif niðurskurðar á starfsemi þjóðkirkjunnar. Biskup mun svara erindi Prestafélagi Íslands.
b) Erindi frá Djáknafélagi Íslands
Lagt var fram bréf frá Djáknafélagi Íslands, þar sem komið er á framfæri ályktun félagsfundar Djáknafélags Íslands, frá 14. júlí 2011. Í ályktuninni er lýst áhyggjum af þeirri þróun sem átt hafi sér stað undanfarin ár innan þjóðkirkjunnar er varði djákna og djáknaþjónustu og felst m.a. í fækkun starfa og einstaklinga sem vinna að djáknaþjónustu.
Kirkjuráð samþykkti að óska eftir að kirkjustarfshópurinn hitti fulltrúa Djáknafélags Íslands til viðræðna um erindi þeirra.
c) Strandarkirkja- skipulagsmál
Lagt var fram bréf til sveitarfélagsins Ölfus vegna fyrirhugaðrar afmörkunar iðnaðarsvæðis fyrir matvælaiðnað næst Selvogi í endurskoðun aðalskipulags Ölfus 2010 – 2022. Umrætt svæði verður hluti af þeirri skipulagsheild sem Selvogurinn tilheyrir og jarðir Strandarkirkju eru hluti af. Kirkjuráð staðfesti heimild til að senda erindið til sveitarfélagsins.
d) Erindi frá Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar
Lagt fram bréf frá Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar, dags. 11. maí 2011. Þar er óskað eftir að kirkjuráð endurskoði fyrri ákvarðanir um fjárheimildir til stofnunarinnar, þ.e. að ekki sé greitt fyrir stjórnarstörf og jafnframt óskað eftir að fjárheimild á árinu 2011 verði aukin sbr. fjárhagsáætlun sem kynnt var kirkjuráði fyrr á árinu. Kirkjuráð ræddi erindið og samþykkti að fela framkvæmdastjóra að svara því.
Þá var lögð fram tillaga stjórnar stofnunarinnar um breytingar á stofnskrá stofnunarinnar. Kirkjuráð ræddi erindið og stöðu stofnunarinnar almennt. Kirkjuráð telur að þær meginforsendur um hagnýtingu fasteigna í Ásbrú, Reykjanesbæ til starfrækslu stofnunarinnar, sem lagðar voru til grundvallar við stofnun hennar árið 2008, séu brostnar. Samþykkt var að endurskoða skipulagsskrá stofnunarinnar í ljósi breyttra aðstæðna í sambandi við Kapellu ljóssins á Keflavíkurflugvelli. Verður lögð fram tillaga á kirkjuþingi 2011 þar að lútandi.
e) Starfshópur skipaður af biskupi til að fara yfir stöðu tónlistarmála kirkjunnar o.fl.
Lagt var fram til kynningar bréf biskups Íslands þar sem skipaður er starfshópur til að fara yfir tónlistarmálefni kirkjunnar. Tilefnið er aðsöngmálastjóri þjóðkirkjunnar hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. september 2011, sbr. og samþykkt kirkjuráðs á fundi 3. ágúst 2011 um málefni Tónskóla þjóðkirkjunnar.
f) Ársskýrsla kirkjumiðstöðvar í Reykholti, Vesturlandsprófastsdæmi
Lögð var fram til kynningar ársskýrsla kirkjumiðstöðvar í Reykholti fyrir árið 2009.
g) Svar Velferðarráðuneytis vegna kirkjumálasjóðs
Lagt var fram svar Velferðarráðuneytis við erindi kirkjuráðs, dags. 12. október 2010, varðandi stöðu kirkjumálasjóðs skv. lögum 44/1998 um húsnæðismál. Velferðarráðuneytið telur kirkjumálasjóð ekki geta fallið undir þá skilgreiningu laga nr. 44/1998 að vera húsnæðisfélag.
h) Fundargerð kirkjustarfshóps
Lögð fram til kynningar fundargerð kirkjustarfshóps, dags. 19. ágúst 2011.
i) Önnur mál
Biskup gat þess að fyrirhugað væri að skipa starfshóp til að fara yfir skipan prestakalla á höfuðborgarsvæðinu og gera tillögur um breytingar. Málið verður til umræðu á næsta fundi kirkjuráðs.
Næsti fundur kirkjuráðs verður miðvikudaginn 21. september 2011 og hefst kl. 9.
Fundi lauk kl. 16:55