Opið hús hjá Nýrri dögun

Fimmtudaginn 10. október verður haldið opið hús á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð.

Þar gefst syrgjendum kostur á að koma saman og ræða stöðu sína í litlum hópum undir handleiðslu reyndra aðila úr stjórn samtakanna.

Opna húsið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22 og er haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju, 2. hæð.

María Ágústsdóttir