180. kirkjuráðsfundur 18. janúar2012

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
01/18/2012 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar

Fundurinn hófst kl. 9:00. Mætt voru auk biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar, Ásbjörn Jónsson, séra Gísli Gunnarsson, og Katrín Ásgrímsdóttir. Séra Sigurður Árni Þórðarson, fyrsti varamaður guðfræðinga í kirkjuráði, mætti á fundinn þar sem séra Gunnlaugur Stefánsson var í leyfi. Fundinn sátu jafnframt Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, sem ritaði fundargerð, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari. Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings,sat fundinn þegar fjallað var um kirkjuþing 2011, kjör biskups Íslands og ábendingar Ríkisendurskoðunar. Vígslubiskup í Skálholti, sr. Kristján Valur Ingólfsson sat fundinn þegar rætt var um málefni Skálholts. Fundargerð síðasta fundar, 179. fundar, var samþykkt. 

2. Kirkjuþing

Á síðasta fundi kirkjuráðs, þann 7. desember 2011, var nokkrum úrlausnarefnum samkvæmt samþykktum kirkjuþings 2011 frestað til þessa fundar. Einnig var á þeim fundi samþykkt að óska tilnefninga í nokkrar nefndir á grundvelli samþykkta kirkjuþings 2011.
Framkvæmdastjóri upplýsti að Gerðir kirkjuþings 2011 væru komnar úr prentun og verður þeim dreift á næstu dögum. Af því tilefni var ákveðið að kynna ályktanir kirkjuþings 2011 í 1. máli sérstaklega.

Kirkjuráð samþykkti að fela framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar, sbr. lög nr. 12/1982. Að mati kirkjuráðs og forseta kirkjuþings er brýnt að ræða á þeim fundi eftirfarandi ályktun kirkjuþings 2011:

Kirkjuþing 2011 skorar á Alþingi að hafa ákvæði um íslenska þjóðkirkju í því frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár sem þingið afgreiðir með formlegum hætti eða leggur undir ráðgefandi þjóðaratkvæði. Að öðrum kosti verði þess gætt að ákvörðun um afnám þjóðkirkju úr stjórnarskrá verði tekin á þann veg sem núgildandi stjórnarskrá býður svo að þjóðin sjálf fái notið þess réttar að greiða sérstaklega atkvæði um slíka ákvörðun.

Enn fremur er brýnt að ræða frumvarp það til nýrra þjóðkirkjulaga sem fyrirhugað er að leggja fyrir kirkjuþing 2012.

Þá samþykkti kirkjuráð að senda öllum sveitarfélögum landsins eftirfarandi ályktun kirkjuþings 2011:

Kirkjuþing 2011 hvetur til að sveigjanleika sé gætt í samskiptum skóla og trúar- og lífsskoðunarhópa í anda óbreyttrar trúfrelsishefðar á Íslandi. Hún felur í sér víðtækt frelsi til tjáningar og iðkunar trúar en virðir jafnframt ólíkar lífsskoðanir.

Foreldraréttur skal virtur. Trúarleg og siðferðileg mótun ungmenna sé í samræmi við trú eða lífsskoðanir foreldra.

Í nefndaráliti fjárhagsnefndar kirkjuþings 2011 var eftirfarandi tekið fram:

“Fjárhagsnefnd beinir eftirfarandi til kirkjuráðs og biskups Íslands:

1.      Að gerður verði formlegur samningur við ríkið um framtíðarskipan og innheimtu sóknargjalda.”

Kirkjuráð samþykkti á síðasta fundi að óska eftir að biskup láti vinna nauðsynlega undirbúningsvinnu og vinni greinargerð um sögulega þróun sóknargjalda, lögfræðileg efni og annað sem nauðsynlegt er til að vinna málið áfram. 

Biskup upplýsti að unnið væri að málinu. 

Þá sagði einnig í álitinu:

2.      Að farið verði að tilmælum Ríkisendurskoðunar um að sjóðakerfi kirkjunnar verði einfaldað og gert gegnsærra.”

Fjármálastjóri gerði grein fyrir hugsanlegum útfærslum sem ræddar hafa verið. Málið verður áfram til umfjöllunar.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun í 7. máli svohljóðandi:

Kirkjuþing 2011 ályktar að beina því til kirkjuráðs að skipa starfshóp til að meta hagsmuni og þörf þjóðkirkjunnar á rafrænni skráningu félagsmanna sinna, skráningu ýmissa prestsverka og annarrar starfsemi þjóðkirkjunnar. Starfshópurinn móti tillögur til kirkjuráðs um hvað skrá skuli og hvernig slík skráning verði framkvæmd á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt. Starfshópurinn skili kirkjuráði tillögum sínum fyrir 1. ágúst 2012. Kirkjuráð leggi fyrir kirkjuþing 2012 álit ráðsins á því hvernig best sé staðið að skráningu félagsmanna í þjóðkirkjunni og annarra þátta samkvæmt ályktun þessari.

Kirkjuráð frestaði skipun starfshóps á síðasta fundi. Kirkjuráð ákvað að skipa Ægir Örn Sveinsson, starfsmann Þjóðskrár, Örvar Kárason, verkefnisstjóra upplýsingatæknimála á Biskupsstofu, sr. Gísla Jónasson, prófast og sr. Axel Árnason, héraðsprest í Suðurprófastsdæmi. Samþykkt var fjárheimild úr kirkjumálasjóði að fjárhæð 200 þús. kr. til verkefnisins.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun í 8. máli svohljóðandi:

Kirkjuþing 2011 ályktar að fela kirkjuráði að skipa fimm manna nefnd til að undirbúa fimm alda minningu siðbótarinnar árið 2017. Nefndin skal skipuð fimm fulltrúum, einum kjörnum af kirkjuþingi, einum af kirkjuráði, einum fulltrúa tilnefndum af guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, einum fulltrúa tilnefndum af innanríkisráðherra og einum fulltrúa tilnefndum af biskupi og skal hann vera formaður nefndarinnar.

Framkvæmdastjóri upplýsti að óskað hefði verið tilnefninga samkvæmt framanskráðu. Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands hefði tilefnt þau dr. Hjalta Hugason og dr. Arnfríði Guðmundsdóttur. Hins vegar hefði ekki borist tilnefning innanríkisráðherra. Kirkjuþing kaus sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur, kirkjuþingsmann, sem fulltrúa í nefndina. Kirkjuráð ákvað að fresta skipun nefndarinnar til næsta fundar.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi:

Kirkjuþing ályktar að fyrirkomulagi um greiðslur fyrir aukaverk skuli breytt. Þingið beinir til kirkjuráðs að stofna starfshóp sem geri tillögur og geri grein fyrir niðurstöðum á kirkjuþingi 2012.
Kirkjuráð samþykkti á síðasta fundi að óska eftir að Prestafélag Íslands tilnefni fulltrúa í starfshóp sem jafnframt verði skipaður fulltrúa biskups Íslands og fulltrúa kirkjuráðs. Prestafélag Íslands tilnefndi kjaramálafulltrúa félagsins, sr. Magnús Magnússon,
Biskup tilnefndi sr. Þorvald Karl Helgason sem fulltrúa sinn.
Kirkjuráð samþykkti að skipa í starfshóp um framangreint málefni Ingu Rún Ólafsdóttur, kirkjuþingsfulltrúa, sem fulltrúa kirkjuráðs, sr. Þorvald Karl Helgason, biskupsritara, sem fulltrúa biskups og sr. Magnús Magnússon, fulltrúa Prestafélags Íslands .

21. mál. Þingsályktun um stofnun æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun um stofnun æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar

2. gr. ályktunarinnar er svohljóðandi:

Kirkjuráð skipar æskulýðsnefndina til tveggja ára í senn. Í nefndinni eigi sæti tveir fulltrúar úr öllum prófastsdæmum, þ.e. ungmenni undir tvítugu, og fulltrúa samkvæmt tilnefningu viðkomandi héraðsnefnda, auk fulltrúa frá Æskulýðssambandi þjóðkirkj­unnar og fulltrúa frá Biskupsstofu sem sinnir barna- og unglingastarfi.

Auk þess skal fulltrúa KFUM/K boðið að sitja fundi nefndarinnar.

Kirkjuráð skipar formann og varaformann, en ritari nefndarinnar er fulltrúi á þjónustu­sviði Biskupsstofu.

Framkvæmdastjóri upplýsti að kallað hefði verið eftir tilnefningum héraðsnefnda prófastsdæmanna í nefndina en engin tilnefning hefði enn borist.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun um stefnu þjóðkirkjunnar um kristniboð.

Í þeim kafla stefnunnar sem nefnist “Aðgerðir” segir:

Kristniboðs og hjálparstarfsnefnd sem skipuð er af kirkjuráði sem samstarfsvettvangur milli hjálparstarfs og kristniboðs, biskupsstofu, og kirkjuráðs fyrir hönd safnaða þjóðkirkjunnar.

Biskup mun leggja fram tillögur fyrir næsta kirkjuráðsfund.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi: 

Kirkjuþing 2011 ályktar að kirkjuráð skipi þriggja manna nefnd til að fara yfir samkomulag þjóðkirkjunnar og guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands um samfylgdarkerfið og samvinnu um kennimannlegt nám. Nefndin hafi samvinnu við aðila samningsins, þ.e. guðfræði- og trúarbragðadeild og biskup Íslands. Auk þess hafi nefndin samvinnu við vígslubiskupa á Hólum og í Skálholti.

Kirkjuráð samþykkti samkvæmt framanskráðu að skipa dr. Sigurð Árna Þórðarson, prest og kirkjuþingsfulltrúa sr. Magnús Björn Björnsson, kirkjuþingsfulltrúa og sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur. Biskupsritari vinni með nefndinni.

Kirkjuþing 2011 samþykkti ályktun svohljóðandi:

Kirkjuþing 2011 ályktar að kirkjuráð láti gera úttekt á því hvaða kirkjur landsins eigi að vera höfuðkirkjur og hvað það þýðir.

Kirkjuráð óskaði eftir á síðasta fundi að biskup fjallaði um málið. Biskup Íslands hefur unnið að málinu og mun leggja fram greinargerð á næsta fundi.

Ákveðið var að kirkjuþing 2012 yrði sett laugardaginn 10. nóvember 2012.

3. Fjármál

 Ársreikningur Skálholts 2012.

Málinu frestað.

Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar

Lagt var fram erindi varaformanns stjórnar stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar, dags. 17. desember 2011, þar sem óskað er eftir endurskoðun á ákvörðun um fjárheimild til handa stofnuninni fyrir árið 2012. 

Kirkjuráð hefur þegar afgreitt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og telur ekki efni til að endurskoða hana að þessu leyti.

Kirkja heyrnarlausra
Lagt var fram erindi Félags heyrnarlausra, dags. 16. janúar 2012, þar sem óskað er eftir endurskoðun á ákvörðun um fjárheimild til handa Kirkju heyrnarlausra fyrir árið 2012.
Kirkjuráð hefur þegar afgreitt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og telur ekki efni til að endurskoða hana að þessu leyti. Kirkjuráð mun hafa erindið í huga við úrlausn fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

Hafnarsókn, Bjarnanesprestakall, Suðurprófastsdæmi
Lagt fram bréf sóknarnefndar Hafnarsóknar, Suðurprófastsdæmi, dags. 10. janúar 2012, vegna prestsþjónustu í Bjarnanesprestakalli.
Biskup mun auglýsa embætti héraðsprests með sérstakar skyldur við Bjarnanesprestakall. Embættið verður auglýst laust til umsóknar frá 1. júlí 2012. Um 50% starfshlutfall verður að ræða.

Grensássókn
Lagt var fram erindi Grensássóknar, dags. 10. janúar 2012, þar sem óskað er eftir endurskoðun á ákvörðun um styrk úr Jöfnunarsjóði sókna fyrir árið 2012.
Kirkjuráð samþykkti að vísa erindinu til fjármálahóps kirkjuráðs.

Tónskóli þjóðkirkjunnar
Lagt var fram erindi starfshóps biskups Íslands, dags. 16. janúar 2012, sem hefur það hlutverk að gera tillögur um endurskoðun á Tónlistarstefnu kirkjunnar og starfsreglum um  tónlist ásamt tillögum um Tónskólann og embætti söngmálastjóra.  Kirkjuráð taldi ekki forsendur til að breyta samþykktri fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs fyrir árið 2012 að þessu leyti. Sigurður Árni Þórðarson sat hjá við afgreiðslu máls þessa.

Norrænt kirkjutónlistarráð, Íslandsdeild
Lagt var fram erindi forseta Norræna kirkjutónlistarráðsins, dags. 15. janúar 2012, þar sem gerð er grein fyrir samkomulagi um fjárstyrk til Norræna kirkjutónlistarráðsins vegna Norræns kirkjutónlistarmóts. Sakir misskilnings fékk styrkveiting fyrir árið 2012 niður í fjárhagsáætlun kirkjumálasjóðs 2012.  
Kirkjuráð samþykkti að veita 500 þús kr. styrk og er um lokagreiðslu að ræða. 

 4. Fasteignir

Tröð - Réttarholt

Kirkjuráð staðfesti samþykki kauptilboðs í fasteignina Réttarholt, sem veitt var með tölvupóstum ráðsmanna í desembermánuði sl. Um er að ræða 50 ha land sem tilheyrði fyrrum prestssetrinu Tröð. Framkvæmdastjóra var veitt umboð til undirritunar allra skjala varðandi sölu eignarinnar.

Hvanneyri

Lagt var fram erindi sr. Flóka Kristinssonar, skipaðs sóknarprests í Hvanneyrarprestakalli. þar sem hann lýsir áhuga sínum á að kaupa prestssetrið Staðarhól semjist um verð sem báðið aðilar geta fellt sig við. Kirkjuráð samþykkti að fá verðmat löggilts fasteignasala á eigninni.

Hlíðarbraut 20, Blönduósi

Kirkjuráð staðfesti samþykkt kauptilboðs í fasteignina Hlíðarbraut 20, Blönduósi, sem veitt var með tölvupóstum ráðsmanna í desembermánuði sl. Framkvæmdastjóra var veitt umboð til undirritunar allra skjala varðandi sölu eignarinnar.

5. Skálholt  

Tillaga um endurskoðun rekstrar Skálholts

Lagt var fram “Yfirlit og tillögur - Skýrsla til kirkjuráðs 18. janúar 2012”, en skjalið var unnið af sr. Þorvaldi Karli Helgasyni, biskupsritara og sr. Kristjáni Val Ingólfssyni, vígslubiskupi í Skálholti. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þeim viðfangsefnum sem sinnt er í Skálholti og lagðar fram hugmyndir að framtíðarsýn. Farið var yfir helstu hugmyndirnar og þær kynntar og ræddar. Stefnt er að því að ræða skýrsluna ítarlega og afgreiða á næsta fundi kirkjuráðs, sem haldinn verður í Skálholti.

Kirkjuráð minnir á að lögin um Skálholtsskóla eru enn í fullu gildi og verkefni staðarins og skólans er óbreytt og staðið skal við skuldbindingar eins og kostur er. Í ljósi fjárhags verður þó að draga úr einhverri starfsemi.

Kirkjuráð samþykkti eftirfarandi:

Að bjóða því starfsfólki sem sagt var upp á síðasta ári endurráðningu, þ.e. bryta, ráðsmanni, organista og tveimur almennum starfsmönnum í Skálholtsskóla. Jafnframt verði núverandi framkvæmdastjóra boðin ráðning í starf skrifstofustjóra Skálholts. Kirkjuráð óskar eftir að vígslubiskup semji starfslýsingar fyrir framangreinda starfsmenn. Fjárhagsáætlun fyrir Skálholt 2012 verður lögð fram á næsta fundi kirkjuráðs. 

Tillaga um miðaldadómkirkju

Lagðar voru fram tillögur vígslubiskups í Skálholti, dags. 18. janúar 2012, um verkferla vegna hugmyndar um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti. 

Kirkjuráð samþykkir að vígslubiskup og framkvæmdastjóri starfi með áhugahópi um verkefnið.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Skálholt

Frestað.

Lífsneisti ehf.
Framkvæmdastjóri kynnti framsal eignarhluta Skálholts í einkahlutafélaginu Lífsneista ehf. en framsalið var með fyrirvara um samþykki kirkjuráðs. Kirkjuráð samþykkti framsalið og veitti framkvæmdastjóra umboð til undirritunar allra skjala þar að lútandi.

6. Kjör biskups Íslands  

Biskup upplýsti að hann hefði beðist lausnar frá embætti frá 30. júní 2012 að telja. Þá upplýsti biskup að vígslubiskup Hólaumdæmis hefði einnig beðist lausnar frá embætti sínu frá og með 31. ágúst 2012 að telja.

Samkvæmt 5. gr. starfsreglna um kjör biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 1108/2011 ákveður kirkjuráð hvenær kosning skuli fara fram. Samkvæmt því beinir kirkjuráð þeim tilmælum til kjörstjórnar við biskupskjör að gengið verði til biskupskjörs. Stefnt verði að því að leggja fram kjörskrá er miðist við 1. febrúar 2012. Kjör vígslubiskups í Hólaumdæmi fari fram svo fljótt sem auðið er að loknu kjöri biskups Íslands. Þess er óskað að kjörstjórn veiti hæfilegt svigrúm eftir að framboð eru komin fram til fundarhalda sbr. 2 lið þessarar ályktunar.

Kirkjuráð ályktaði eftirfarandi um framkvæmd biskupskjörs:

1.               Þau sem gefa kost á sér til biskupsembættis og þau sem vinna að kjöri þeirra gæti þess að halda í heiðri siðareglur embættismanna og starfsfólks þjóðkirkjunnar og gæti þess að orð þeirra og athafnir séu þjóðkirkjunni til sóma og málstað hennar til framdráttar.

2.               Til að auðvelda kynningu á frambjóðendum verði haldnir kynningarfundir í öllum landshlutum. Framkvæmdastjóri kirkjuráðs skipuleggi þessa fundi í samráði við héraðsnefndir, sem allir frambjóðendur og kosningabærir prestar og leikmenn prófastsdæmisins eru boðaðir til. Kostnaður við fundina greiðist úr kirkjumálasjóði. Ekki er greiddur ferðakostnaður fundarmanna og frambjóðenda.

3.         Kirkjuráð gangist fyrir og kosti útgáfu á sameiginlegu kynningarefni um frambjóðendur til biskupskjörs. Jafnframt verði kynningarefni um frambjóðendur gert aðgengilegt á sérstöku vefsvæði á vef kirkjunnar. Frambjóðendum og stuðningsmönnum þeirra sé gefinn kostur á að kynna málstað sinn í framangreindum miðlum. Fyllsta jafnræðis sé þar gætt um aðgengi.

Kirkjuráð samþykkti að veita úr kirkjumálasjóði vegna kynningarfunda og útgáfu kynningarefnis samkvæmt framanskráðu 1,5 millj. kr.

Lögð var fram ályktun félags prestsvígðra kvenna, dags 16. janúar 2012.
Biskup greindi frá fundi sínum með formanni kjörstjórnar.

7. ábendingar Ríkisendurskoðunar - yfirlit  

Framkvæmdastjóra og fjármálastjóra hafði verið falið að taka saman yfirlit yfir helstu þætti í þeirri skýrslu Ríkisendurskoðunar sem lögð var fram á kirkjuþingi 2011 og sem athuga þyrfti nánar. Eftirfarandi ábendingar Ríkisendurskoðunar voru ræddar:

1.      Breyta þarf skipan kirkjuráðs

Það er mat Ríkisendurskoðunar að breyta þurfi lögum á þann veg að dregið verði sem mest úr skyldum biskups til að sinna fjármálaumsýslu kirkjunnar. Endurskoða þarf ákvæði í 10. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 þess efnis að biskup sé forseti kirkjuráðs í þá veru að hann sitji í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

Kirkjuráð lítur svo á að milliþinganefnd kirkjuþings hafi þetta mál til athugunar sbr. ályktun kirkjuþings 2011 í 10. máli þingsins. 

2.      Vinna þarf að heildarstefnumótun um málefni Biskupsstofu

Ríkisendurskoðun bendir á að þjóðkirkjan þurfi að móta stefnu um þá starfsemi sem fram fer á Biskupsstofu, þar sem fram komi lykilmarkmið og árangursmælikvarðar. Þá þurfi að forgangsraða og tímasetja aðgerðir til að framfylgja stefnunni. Liður í slíkri stefnumótun sé að meta hvort kirkjan á að sinna öllum þeim verkefnum sem nú er sinnt á Biskupsstofu.

Kirkjuráð telur eðlilegt, í ljósi þess að biskup Íslands hefur beðist lausnar frá embætti, að næsti biskup leiði framangreinda stefnumótun.

3. Skipta ætti upp núverandi verkefnum Biskupsstofu.

Skipta ætti upp verkefnum sem nú eru unnin á Biskupsstofu í trúarleg verkefni og veraldleg verkefni. Verkefnin ættu að falla undir tvær stjórnunarlega aðskildar skipulagseiningar sem hvor hefði sinn yfirmann. Móta þyrfti skipurit og skriflegar starfsreglur fyrir báðar einingarnar.

Kirkjuráð telur eðlilegt að þessi tilmæli verði athuguð nánar um leið og unnið er að heildarstefnumótun um málefni Biskupsstofu, sbr. ofangreinda bókun. 

4. Auka þarf gagnsæi í fjármálum þjóðkirkjunnar 

Ríkisendurskoðun bendir á að fjármál þjóðkirkjunnar verði að vera gagnsærri en nú er.

a)      Þannig sé t.d. æskilegt að helstu sjóðir kirkjunnar, þ.e. Kirkjumálasjóður, Kristnisjóður,  Jöfnunarsjóður sókna og Hinn almenni kirkjusjóður verði sameinaðir í einn Kirkjusjóð.

Kirkjuráð hafði áður samþykkt að óska eftir að fjármálastjóri og framkvæmdastjóri vinni að tillögum á þessum grundvelli í samráði við fjármálahóp kirkjuráðs.

b)      Að auki þarf að vinna skýrar verklagsreglur um styrkveitingar á vegum kirkjunnar, þar sem m.a. komi fram með hvaða hætti umsóknir eru metnar og hvernig eftirfylgni með nýtingu fjárins sé háttað.

Kirkjuráð samþykkti að óska óska eftir að fjármálastjóri og framkvæmdastjóri vinni að tillögum að verklagsreglum samkvæmt framanskráðu.

5. Sameina verður sóknir 
Sóknir á Íslandi eru margar og algengt að þær séu fámennar.

a) Ríkisendurskoðun telur að stefna eigi að sameiningu fámennra og illa starfhæfra sókna í stað þess að leggja einungis áherslu á að efla samvinnu milli þeirra. Stofnunin telur því að nauðsynlegt sé að sett verði skilyrði um lágmarksfjölda sóknarbarna í hverri sókn.

b) Færa ber frumkvæði að sameiningu sókna frá biskupafundi til kirkjuþings.

Kirkjuráð samþykkti að óska eftir að lagahópur kirkjuráðs fjalli um framangreindar ábendingar Ríkisendurskoðunar um sóknir og skili ráðinu tillögum um hvernig skuli veita úrlausn um þær.

6. Umsýsla og eignarhald prestssetra verði hjá sóknum.

Ríkisendurskoðun telur að eignarhald og viðhald prestssetra eigi að vera hjá sóknum, að undanskildum prestssetursjörðum. Sóknirnar eru grunneiningar kirkjunnar og það er þeirra að ákvarða um heimilisfesti sóknarpresta í samráði við þá og hvernig að þeim skuli búið. Þessari breytingu þyrfti að fylgja fjármagn til sóknanna frá Kirkjumálasjóði. Húsaleigutekjur vegna prestssetranna myndu með sama hætti renna til þeirra. Þá þyrfti við úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna að horfa til þeirra viðhaldsverkefna sem munu hvíla á sóknunum.

Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því að fjármálahópur kirkjuráðs fjalli um framangreindar ábendingar Ríkisendurskoðunar um sóknir og skili ráðinu tillögum um hvernig skuli veita úrlausn um þær.

7. Kirkjuvogssókn, Kjalarnesprófastsdæmi   

Lagt var fram bréf prófasts Kjalarnesprófastsdæmis Gunnars Kristjánssonar, dags. 9. nóvember 2011. Þar er skýrt frá því að ekki hafi tekist að manna sóknarnefnd Hafnarsóknar.
Kirkjuráð samþykkti, með heimild í 8. gr. starfsreglna um sóknarnefndir nr. 1111/2011, að skipa Ásbjörn Jónsson, kirkjuráðsmann, sem tilsjónarmann með sókninni. 

8. Önnur mál   

Stöðvun greiðslna sóknargjalda til sókna
Fjármálastjóri skýrði frá fundi sínum og framkvæmdastjóra með fulltrúum Fjársýslu ríkisins, svo og fundi með ráðuneytisstjóra og fulltrúa Innanríkisráðuneytisins, varðandi heimild til að stöðva greiðslur sóknargjalda til sókna sem ekki hafa skilað ársreikningum.
Innanríkisráðuneytið hefur veitt það álit sitt að ekkert sé því til fyrirstöðu að Fjársýsla ríkisins haldi eftir sóknargjöldum til þeirra sókna sem ekki hafa skilað ársreikningi innan tilskilins lokafrests.

Fagráð um meðferð kynferðisbrota
Lagt var fram bréf um skipan fagráðs um meðferð kynferðisbrota, dags. 11. janúar 2012, þar sem fagráðið tilkynnir að sr. Gunnar Matthíasson, hafi verið skipaður formaður ráðsins.

Samþykkt var að næsti kirkjuráðsfundur, verði í Skálholti, þann 22. febrúar 2012. Daginn áður verði hugflæðifundur um Skálholt, sem vígslubiskup Skálholtsumdæmis mun skipuleggja nánar. Þá var samþykkt að óska eftir að Magnús E. Kristjánsson, kirkjuþingsmaður og formaður nefndar sem skipuð var á kirkjuþingi 2011 mæti á fund kirkjuráðs.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:30.