Sr. Halldór Reynisson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs Biskupsstofu frá 1. október s.l.
Tuttugu og sex umsækjendur voru um stöðuna. Verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ber ábyrgð á stefnumörkun í fræðslumálum þjóðkirkjunnar svo og upplýsingamálum fyrir biskup Íslands og Biskupsstofu. Undir fræðslumálin heyrir m.a. barnastarf kirkjunnar, efnisgerð og leiðtoganámskeið, efnisgerð fyrir fermingarfræðslu, æskulýðsstarf og fræðsla fullorðinna. Undir upplýsingamálin fellur fréttaþjónusta, útgáfa Víðförla, vefmál og almannatengsl, auk annars.
Sr. Halldór var settur verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingamála frá 1. október 2001. Áður þjónaði hann sem prestur í Neskirkju og sóknarprestur í Hruna. Þá hefur hann starfað sem forsetaritari, blaða- og fréttamaður. Hann lauk guðfræðiprófi frá H.Í. 1979, M.A. prófi í fjölmiðlafræðum frá Indiana University 1986 og stundaði nám í markaðsfræðum við Endurmenntunarstofnun H.Í. 1999-2000.
Árni Svanur Daníelsson