Kirkjuþing 2002 hefst á sunnudag

Kirkjuþing 2002 hefst sunnudaginn 13. október n.k. og stendur í viku. Þingið verður haldið í Grensáskirkju í Reykjavík en að auki verður sérstök dagskrá á sunnudagskvöld á Eyrarbakka í tilefni af 150 ára afmæli barnaskólans þar. Er það til að votta barnafræðslunni á Íslandi virðingu og minna á þátt kirkjunnar í því starfi.
Af helstu málum þingsins má nefna tillögu um að þjóðkirkjan fari í stefnumótunarvinnu með tilliti til stöðu og hlutverks hennar í nútímasamfélagi. Þar verði skilgreind framtíðarsýn þjóðkirkjunnar sem byggist m.a. á innri og ytri greiningu hins kirkjulega starfs með það í huga að gera starfið markvissara, bæta það og efla. Virkja skal sem flesta innan þjóðkirkjunnar til þátttöku í þessari stefnumótun.
Starfsmannastefna þjóðkirkjunnar verður einnig lögð fyrir kirkjuþing. Hún hefur það að markmiði að þjóðkirkjan hafi á að skipa hæfu, áhugasömu og ábyrgu starfsfólki og veiti því sem best skilyrði til að helga sig hinum fjölþættu verkefnum á vettvangi kirkjunnar og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.
Þá verður fjallað um tengsl kirkju og skóla. Tillaga verður lögð fram um stuðning við kennara í kristnum fræðum, eflingu umburðarlyndis, mótun menntastefnu og eflingu nemenda í því að varðveita eigin trúarsannfæringu en um leið að virða þá sem hafa aðra trúarsannfæringu í fjölmenningarsamfélagi nútímans.
Ennfremur verða kynntar tillögur um breytingar á skipan prófastsdæma á Suð-Vesturlandi ásamt tillögum að tilfærslu sókna á milli prestakalla.
Þingfundir eru opnir og þau sem vilja geta fylgst með störfum þingsins meðan þingfundir standa. Einnig verður hægt að fylgjast með afgreiðslu mála á þingvefnum. Slóðin er www.kirkjan.is/kirkjuthing.
Kirkjuþing kvatt saman einu sinni á ári sem æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar innan lögmæltra marka. Nú kemur saman nýtt kirkjuþing en það er kjörið til fjögurra ára í senn.
Á sunnudag kl. 11:00 verður messa við upphaf kirkjuþings í Dómkirkjunni og eru allir velkomnir.

Halldór Reynisson