Sjö sækja um Fellaprestakall

Sjö umsækjendur sækja um embætti sóknarprests í Fellaprestakalli í Reykjavík. Umsóknarfrestur rann út þann 5. október september síðastliðinn. Þeir eru:

Ástríður Helga Sigurðardóttir, guðfræðingur
Séra Bjarni Þór Bjarnason
Bryndís Valbjarnardóttir, guðfræðingur
Séra Gunnar Eiríkur Hauksson
Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, guðfræðingur
Séra Sigurður Jónsson
Séra Svavar Stefánsson

Embætti prests í Fellaprestakalli er veitt frá 1. janúar 2003. Það er vígslubiskup Skálholtsumdæmis sem boðar valnefnd prestakallsins saman en í henni sitja fimm fulltrúar úr prestakallinu, auk vígslubiskups og prófasts Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára samkvæmt niðurstöðu valnefndar, sé hún einróma.

Árni Svanur Daníelsson