Valið í Hjallaprestakall

Valnefnd Hjallaprestakalls í Kópavogi ákvað á fundi sínum 5. október s.l. að leggja til að Sigfús Kristjánsson guðfræðingur verði skipaður prestur frá 1. nóvember n.k.
Sex umsækjendur voru um embætti prests í Hjallaprestakalli. Skipað er í embættið til fimm ára en um hálft starf er að ræða. Biskup Íslands veitir embættið. Í valnefnd sitja fimm fulltrúar úr prestakallinu, auk vígslubiskups og prófasts Reykjavíkurprófastsdæmis eystra.

Halldór Reynisson