Á átjánda sunnudegi eftir þrenningarhátíð var sr. Carlos Ferrer settur inn í embætti sóknarprests í Tjarnaprestakalli. Það var dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi sem setti Carlos inn í embættið. Tjarnaprestakall er nýstofnað og nær yfir Áslandshverfi í Hafnarfirði. Auk þess þjónar sóknarprestur þess Kálfatjarnarsókn.
Innsetningin fór fram í messu í Kálfatjarnakirkju að viðstöddum rúmlega 100 manns. Við sama tækifæri kvöddu þeir sr. Hans Markús Hafsteinsson og sr. Friðrik Hjartar söfnuðinn, en hann var áður hluti af Garðaprestakalli. Í tilefni af þessu tókum við sóknarprestinn nýja tali.
Fyrsta spurningin laut að prestakallinu sjálfu. Hvað getur þú sagt okkur um það?
„Í Tjarnaprestakalli eru tvær sóknir, Kálfatjarnarsókn í Vatnsleysustrandarhreppi og Ástjarnarsókn í Hafnarfirði. Sóknirnar tvær eru af svipaðri stærð og alls eru sóknarbörnin tæplega 2000. Þær eru ólíkar að því leyti að Kálfatjarnarsókn er margra alda gömul en Ástjarnarsókn var stofnuð á síðasta ári.
Eldri sóknin hefur til að mynda kirkjukór og safnaðarstarf sem hefur áunnið sér sess. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju er stofnaður á stríðsárunum og enn syngja þrír stofnmeðlimir í honum. Safnaðarstarf í Ástjarnarsókn er aftur á móti enn að fara að stað.“
Hvað munuð þið einkum leggja áherslu á í safnaðarstarfi og helgihaldi?
„Kjölfestan í safnaðarstarfinu er til að byrja með þríþætt: Messur, barnastarf og fermingarfræðsla. Messað er á þriggja til fjögurra vikna fresti í hvorri sókn; barnastarf er í hverri viku og fermingarfræðslan er reglulega yfir veturinn.
Megináherslan í vetur verður á það að laga helgihaldið að þörfum safnaðanna. Það er mikill vilji í báðum sóknum að allir aldurhópar geti fundið sig í starfinu. Þannig verður til dæmis sérhver messa að höfða til allrar fjölskyldunnar. Fermingarfræðsla er þegar farin af stað. Hópurinn er frekar lítill sem gefur ýmsa möguleika í fræðslunni.“
Hvað með aðstöðu safnaðarins, nú er önnur sóknin gamalgróin, en hin ný.
„Í Kálfatjarnarsókn er gömul kirkja og söfnuðurinn hefur haft aðstöðu í Stóru-Vogaskóla fyrir barnastarf og fleira. Enn er verið að semja um aðstöðu fyrir Ástjarnarsókn, en það mun skýrast á næstu vikum hvar söfnuðurinn fær húsnæði fyrir helgihald og safnaðarstarf.
Fermingarfræðsla í Ástjarnarsókn hefur farið fram í Ásvöllum, sem er íþróttamiðstöð Hauka. Þess má geta í þessu sambandi að Haukar eru annað tveggja íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu sem stofnað var af Friðriki Friðrikssyni, stofnanda KFUM á Íslandi.“
Við þökkum Carlosi fyrir og óskum honum alls hins besta í nýju starfi.
Vefur Tjarnaprestakalls er á kirkjan.is/tjarnir
Árni Svanur Daníelsson