Nýr svefnskáli í byggingu í Skálholtsskóla

Þegar Skálholtsskóli var teiknaður fyrir nær 30 árum var gert ráð fyrir tveimur svefnálmum með 18 tveggja manna herbergi. Það er þó ekki fyrr en nú sem seinni álman er byggð.

Hennar er mikil þörf þar sem aukið gistirými bætir mjög alla þjónustu og að sjálfsögðu rekstrargrundvöll Skálholtsskóla. Hin nýja bygging er mjög svipuð eldri svefnálmunni,glerskáli sem hýsir setustofu og þvottahús aðskilur álmurnar en innréttingar nýju álmunnar verða nokkuð aðlagaðar þörfum nýrra tíma.

Manfreð Vilhjálmsson sem teiknaði skólann ásamt Þorvaldi S. Þorvaldssyni hefur annast teiknivinnuna, byggingarverktaki er Ásmar Arnarson en byggingarmennirnir eru nær allir úr uppsveitum Árnessýslu.

Gert er ráð fyrir að nýja álman verði tilbúin til nota í desember. Kirkjuráð fjármagnar bygginguna.

Bernharður Guðmundsson