Umfangsmikið barna- og unglingastarf KFUM og K

Um 130 sjálfboðaliðar koma að starfi KFUM og K í vetur þar af yfir 100 í 30 barna- og unglingadeildum víðsvegar um landið, sums staðar í samstarfi við þjóðkirkjuna.

Í seinni tíð hefur færst í vöxt skipulegt samstarf þjóðkirkjunnar og KFUM og K sem sést best á því að sum staðar hafa félögin tekið að sér æskulýðsstarf í kirkjum landsins. Að auki eiga félögin, fræðslusvið Biskupsstofu, Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum og æskulýðsnefnd Kjalarnesprófastsdæmi með sér gott samstarf um leiðtogaþjálfun.

KFUM og K sem er sjálfstæð leikmannahreyfing innan þjóðkirkjunnar hefur unnið mikið og merkilegt barna- og unglingastarf um langa hríð eins og flestum er kunnugt. Starf félaganna hefur verið mikilvægt við að miðla kristinni trú til nýrra kynslóða auk þess sem fjöldamargir leiðtogar í kirkjulegu starfi hafa notið góðs af starfsemi félaganna.

Halldór Reynisson