Á Tálknafirði verður haldin þjóðahátíð 4.-5. október. Þá kynna íbúar á svæðinu sína eigin menningu en margir þeirra eru komnir langt að. Hluti málþingsins „Á sama báti. Fjölmenningarlegt samfélag og trúarbrögð þess“ verður fluttur laugardaginn 5. október.kl 16. Hátíðin er skipulögð í samvinnu við sóknarprestinn sr. Svein Valgeirsson.
Dagskrá
Kristinfræði og/eða trúarbragðafræði: Gunnar J Gunnarsson lektor KHÍ, guðfræðingur
Ólík viðhorf í nánd við andlát og dauða: Bryndís Valbjarnardóttir guðfræðingur.
Fjölmiðlar og fordómar. Hvaða skilaboð gefa fjölmiðlar um fólk af erlendum uppruna: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, blaðamaður og fjölmiðlafræðingur
Lok málþings er áætluð um sex leytið.
Fundarstjórar verða Ragnheiður Sverrisdóttir og Toshiki Toma. Málþingið var í heild sinni hadlið 21. sepember og er verið að undirbúa birtingu allra fyrirlesta á kirkjan.is
Ragnheiður Sverrisdóttir