Í æskulýðsfélögum kirkjunnar var auglýst eftir þátttakendum til þess að fara á Landsmót í Bandaríkjunum, sem evangelíska kirkan þar í land stendur fyrir. Nú er búið er að velja tvo fulltrúa sem fara á Landsmótið.
Það eru þau Bjarni Arason frá Hafnarfjarðarkirkju og Lína Rut Olgeirsdóttir frá Akureyrarkirkju sem verða fulltrúar Þjóðkirkjunnar. Landsmótið verður sumarið 2003 og er haldið í Atlanta í Georgiafylki. Við heyrum svo vonandi meira frá þeim hvernig undirbúningi er háttað og hvernig allt gengur
Stefán Már Gunnlaugsson