Ungt fólk, samfélagsleg gildi - siðferði

Fræðsluhópurinn Náum áttum stendur fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 5. febrúar, kl. 8:30 - 10:30, á Grand Hótel í salnum Hvammi. Til umfjöllunar verður þemað Ungt fólk, samfélagsleg gildi - siðferði. Undir þessu þema verður komið inn á uppeldismál og hlutverk fjölskyldunnar, frelsishugtakið m.a. með tilliti til fíkniefnaneyslu og stöðu ungs fólks í dag, hlutverk kirkjunnar og stefnu hennar í forvarnarmálum.

Til að fjalla um þessi mál hafa verið fengnir valinkunnir fræðimenn:

Dr. Vilhjálmur Árnason - Frelsið og ungt fólk í dag
Dr. Sigrún Júlíusdóttir - Fjölskyldan og hlutverk hennar
Sr. Halldór Reynisson - Stefna kirkjunnar og gildi trúarinnar í forvarnarstarfi og samfélaginu í dag

Fundarstjóri er Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst í netfangið
vimuvarnir@hr.is. Þátttökugjald eru kr. 1500.- með morgunverði, sem greiðist á staðnum. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.

Náum áttum - er opinn samstarfshópur um fræðslu- og fíkniefnamál með þátttöku: Rauðakrosshússins, Geðræktar, Götusmiðjunnar, Landlæknis, Vímulausrar æsku, Barnaverndarstofu, Íslands án eiturlyfja, Samstarfsnefndar Reykjavíkur um afbrota- og fíkniefnavarnir, Áfengis- og vímuvarnaráðs, fulltrúa framhaldsskólanna, Heimilis og skóla, Lögreglunnar í Reykjavík, Bindindissamtakanna IOGT og Ríkislögreglusstjóri.

Árni Svanur Daníelsson