Er æskulýðsstarf tímaskekkja?

Þann 25. febrúar n.k. verður haldin ráðstefna í Grensáskirkju um unglingastarf kirkjunnar undir yfirskriftinni “Er æskulýðsstarf tímaskekkja!” Á ráðstefnunni verður fjallað um skipulagt unglingastarf í ljósi þess hverjar þarfir unglinga eru í dag. Er skipulagt unglingastarf staðnað, er það gamaldags og er kirkjan að ná árangri með því starfi sem unnið er í dag?

Ráðstefnan verður frá 17:15-21:00. Ráðstefnan eru öllum opin og allir velkomnir sem áhuga hafa á æskulýðsmálum kirkjunnar.

Á ráðstefnunni verða framsöguerindi, umræður í hópum og hringborðsumræður. Einnig verða æskulýðsfélög kirkjunnar kynningu á fjölbreyttu starfi sínu og munu fulltrúar frá æskulýðsfélögunum verða á staðnum til þess að svara spurningum. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Stefán Már Gunnlaugsson