Öruggt spjall á internetinu

„Það er gaman að kynnast nýju fólki í gegnum tölvuna, en ekki gleyma að það eru ekki allir vinir þínir.“ er slagorð samstarfsverkefnis fimm aðila um öruggt spjall á internetinu.

Að átakinu standa Ísmennt, Umboðsmaður barna, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Ríkislögreglustjóri og Lögreglan í Reykjavík. Í frétt á vef Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur segir meðal annars:

„Með stóraukinni tölvueign landsmanna hefur aðgangur barna að tölvum batnað til mikilla muna og að sama skapi möguleiki þeirra til að skoða vefi sem ekki eru ætlaðir börnum eða þykja óheppilegir fyrir þau. Þetta á einnig við um svokallaðar spjallrásir þar sem hægt er að spjalla við ókunnugt fólk. Það hefur komið fyrir að barn hefur verið að spjalla við fullorðinn mann sem þóttist vera barn í vafasömum tilgangi. “

Dreift verður veggspjaldi og bæklingum í grunnskóla landsins og félagsmiðstöðvar, auk þess sem opnuð hefur verið vefsíða með góðum ráðum til foreldra og barna.

Árni Svanur Daníelsson