Tölvustýrðar kirkjuklukkur á Skagaströnd

Í Hólaneskirkju á Skagaströnd hefur verið sett upp tölvustýring á kirkjuklukkurnar þrjár sem eru þar í opnu klukkuporti í turninum

Að sögn Steindórs Haraldssonar kirkjuvarðar Hólaneskirkju höfðu mótorar, vírar og keðjur klukknanna verið til vandræða frá upphafi og þess vegna var ráðist í þessar endurbætur. Klukkurnar hringja nú á hádegi og klukkan sex á kvöldin, ýmist sex eða tólf slög eftir því sem við á. Þetta setur óneitanlega svip á bæinn og mælist vel fyrir.

Steindór sagði að hægt væri að velja á milli mismunandi hringinga t.d. inn- og úthringingar, samhringingar eða líkhringingar, auk annarra. Svo eru klukkurnar fjarstýrðar og hægt er að setja þær í gang og stöðva með lítilli fjarstýringu sem má hafa í vasa. Þetta kerfi var hannað og sett upp af rafmagnsverkstæðinu Neistanum á Skagaströnd.

Nú þegar er komin ársreynsla á þennan búnað og sagði Steindór að um byltingarkennda breytingu væri að ræða. Rafmagnsverkstæðið Neistinn hefur fullan hug á að selja samskonar búnað í fleiri kirkjur ef áhugi reynist vera hjá sóknarnefndum.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Haraldsson kirkjuvörður Hólaneskirkju í síma 452 2795 og 866 3677 en netfang hans er runiberg@simnet.is

Halldór Reynisson