Jól"Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn." Það er boðskapur jólanna. Hvað merkir það? Guð kominn á þessa jörð í Jesú Kristi til að frelsa heiminn, mátturinn æðsti í alheimi kominn í barni sem úthýst var og lagt í jötu, almættið komið til að vitja þín, til að kalla þig til lífs með sér, til að vera hjá þér og frelsa þig maður, til að frelsa þig jörð. Ekki með valdi heldur varnarlaus og máttvana. Hvað segir það þér þá um Guð? Hvað segir það þér um návist hans í örlögum þínum, þú sem hræðist þöglan himin og fjarlægan Guð og dimman heim? Óttastu ekki, segja jólin þér, Guð er hjá þér og helgir englar hans. Í þessu varnarleysi birtist það vald sem öllu valdi er æðra, já, og hann mun sigra um síðir. Það sem þú sérð og skynjar í barninu í jötunni og boðskap helgra jóla, það birtir innsta eðli tilverunnar og markmið sögu mannsins á jörðu: gleðin og góðvildin, mildin og kærleikurinn, miskunnsemin, fyrirgefningin og friðurinn, svo varnarlaust sem það nú er í heimi græðgi og taumleysis, svo lítilsmegandi í niðdimmu einsemdar og vonleysis, svo máttvana í myrkri ofbeldis og grimmdar, varnarlaust eins og lítið barn, hljóðlátt eins og bæn á barnsvörum, flöktandi eins og kertaljós á vetrarkvöldi. JESÚS KRISTUR, frelsari heimsins. |
|||||