Kyrrð í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu

KertiÍ kirkjum á höfuðborgarsvæðinu er boðið til kyrrðarstunda og helgihalds virka daga. Foreldramorgnar í kirkjum eiga sér áralanga sögu en þar sækir fólk skemmtilegt samfélag og fræðslu. Í kyrrðar- og bænastundum þessar vikurnar hefur sérstaklega verið beðið fyrir því ástandi sem ríkir nú í þjóðfélaginu og fyrir þeim sem eiga í miklum erfiðleikum vegna þess. Bænastundirnar eru kærkomið tækifæri til þess að fela Drottni það allt sem á hugann leitar í trausti þess að hann muni vel fyrir sjá. Blessun hans og náð er mikil.

Mánudagur

Kl. 10-12: Foreldramorgnar í safnaðarheimili Lágafellskirkju, Þverholti 3

Kl. 12: Kyrrðarstund í Friðrikskapellu

Kl. 12.15: Bænastund í Hallgrímskirkju

Kl. 12-14: Foreldrastund í Árbæjarkirkju

Kl. 18-19: Íhugunarstund í kapellu Grensáskirkju

Kl. 19.30: Bænastund í Lágafellskirkju

Þriðjudagur

Kl. 9-12: Uppsprettan í Hjallakirkju

Kl. 10: Bænastund. Þórðarsveig 3, Grafarholti

Kl. 10-12: Foreldramorgnar í Árbæjarkirkju, Grensáskirkju, Langholtskirkju, Lindakirkju, Seljakirkju og Ástjarnarkirkju

Kl. 10.30: Fyrirbænaguðsþjónusta í Hallgrímskirkju. Allan ársins hring

Kl. 12: Kyrrðarstund og létt máltíð í Grensáskirkju

Kl. 12: Kyrrðar- og íhugunarstund í Vídalínskirkju

Kl. 12-16: Kyrrðarstund, súpa og samvera í Fella- og Hólakirkju

Kl. 12.10: Kyrrðar- og bænastund í Kópavogskirkja

Kl. 17.30: Kyrrðarstundir með kristinni íhugun í Hafnarfjarðarkirkju

Kl. 18: Bænar- og kyrrðarstund í Hjallakirkju

Kl. 20: Kvöldsöngur og trúfræðsla í Laugarneskirkju

Miðvikudagur

Kl. 8: Árdegismessa í Hallgrímskirkju, morgunmatur á eftir. Allan ársins hring

Kl. 8.45: Dagmálatíð og morgunverður í Guðríðarkirkju

Kl. 9-12: Uppsprettan í Hjallakirkju

Kl. 10-12: Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju, Hjallakirkju, Laugarneskirkju , Guðríðarkirkja og Vídalínskirkju

Kl. 11: Bænastund í Háteigskirkju. Léttur málsverður á eftir

Kl. 11.45: Kyrrðarstund í Guðríðarkirkju

Kl. 12: Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju. Léttur málsverður á eftir

Kl. 12: Kyrrðarstund í Breiðholtskirkju. Léttur málsverður á eftir

Kl. 12: Kyrrðarstund og léttur hádegisverður í Dómkirkjunni

Kl. 12: Kyrrðarstund með altarisgöngu og léttum málsverði í Seltjarnarneskirkju

Kl. 12: Kyrrðar- og bænastund í Lindakirkju

Kl. 12: Kyrrðarstund í Grafarvogskirkju

Kl. 12: Kyrrðarstund og léttur hádegisverður í Víðistaðakirkju

Kl. 12.10: Hádegisbænir og súpa í Langholtskirkju

Kl. 12.15: Fyrirbænamessa í Neskirkju

Kl. 16.30: Bænastund í Ástjarnarkirkju

Kl. 17.30: Kristin íhugun í safnaðarheimili Lágafellskirkju, Þverholti 3

Kl. 18: Fyrirbænastund í Háteigskirkju

Kl. 18: Kyrrðar- og bænastund í Seljakirkju

Fimmtudagur

Kl. 9-12: Uppsprettan í Hjallakirkju

Kl. 10: Bænastund og morgunverður, Þórðarsveig 3 Grafarholti

Kl. 10-12: Foreldramorgnar í Bústaðarkirkju, Dómkirkjunni, Fella- og hólakirkju, Grafarvogskirkju, Háteigskirkju, Neskirkju, Hafnarfjarðarkirkju og Seltjarnarneskirkju

Kl. 12: Kyrrðarstund með altarisgöngu og málsverður á kostnaðarverði í Laugarneskirkju

Kl. 12: Bænastund í Digraneskirkju

Kl. 12: Bænastund í Áskirkju. Létt máltíð

Kl. 14-15: Opið hús og söngstund í neðri safnaðarsal Áskirkju.

Kl. 14-16: Opið hús í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar

Kl. 16.30-17.30: Kyrrðar- og íhugunarstund í Grensáskirkju fyrir fólk með þroskahömlun.

Kl. 18: Aftansöngur í Hafnarfjarðarkirkju

Kl. 18.10: Hversdagsmessa í Grensáskirkju

Kl. 20: Taizé-messa í Háteigskirkju. Allan ársins hring

Kl. 20-22: Kvöldkirkjan í Dómkirkjunni. Allan ársins hring

Kl. 22: Bænar- og kyrrðarstundir í Vídalínskirkju

Föstudagur

Kl. 10-12: Foreldramorgnar í Breiðholtskirkju

Nánari upplýsingar er að finna á vefjum kirknanna og prófastsdæmanna.

María Ágústsdóttir og Bryndís Malla Elídóttir