Postullega trúarjátningin

Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.

Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottinn vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.

Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf.

Um játninguna

Postullega trúarjátningin (symbolum apostolicum) er að stofni til skírnarjátning kirkjunnar í Róm sem rekja má í heimildum til annarrar aldar.

Heitið „postullega trúarjátningin“ byggist á helgisögu um að postularnir tólf hafi hinn fyrsta hvítasunnudag sagt fram kristna trú undir leiðsögn heilags anda og hver lagt sitt af mörkum.

Átti Pétur að hafa byrjað og hinir postularnir haldið áfram hver með sína setningu, uns postullega trúarjátningin lá öll fyrir. (Sjá nánar Kirkjan játar 1993 s. 133—143).