Fræðin minniFræðin minni (Catechismus minor; Der kleine Katechismus) eru lærdómskver handa alþýðu. Erlenda orðið catechismus er af grísku sögninni katechizein, er þýðir “að kenna". Á miðöldum var trúfræðslunni hagað eftir ákveðnu kerfi og voru lágmarkskröfur um þekkingu í kristindómi þær, að menn kynnu Faðir vor og postullegu trúarjátninguna. Til viðbótar voru bænir, atferli við skírn og boðorðin. Siðbótarmenn lögðu mikla áherslu á innihald fræðslunnar og var uppistaðan sömu atriði og voru í kverum miðaldanna. Árið 1529 samdi Lúther tvö fræðakver upp úr prédikunum sem hann hafði flutt um efnið, annars vegar Fræðin minni (Catechismus minor) og hins vegar Fræðin meiri (Catechismus maior). Fræðin minni eru meðal játningarrita íslensku þjóðkirkjunnar. Innihald Fræðanna minni eins og þau hafa komið út frá 1531, þegar Lúther lagði síðustu hönd á þau, er þetta:
Textinn hér á vefnum fer á eftir byggist á þýðingu Helga Hálfdánarsonar í Helgakveri. Þess má geta, að í kverum handa unglingum var leiðbeiningu um skriftir sleppt. Sjá Kirkjan játar. Reykjavík 1991, s. 253-282. Marteinn Lúther: Fræðin minni ásamt bænum og öðru hagnýtu efni. Reykjavík 1993. Helgakver, Reykjavík 2000. |
|||||