Fundargerð stjórnar prestssetra

Hópur: 
Stjórn prestssetra
Dagsetning: 
04/27/2009 (daglangt)
Staður: 
Kirkjuhúsið

4. stjórnarfundur starfsársins 2008 – 2009 27. apríl 2009, kl. 11.00
Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, salur 4. hæð

Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir og Höskuldur Sveinsson og Kristín Mjöll Kristinsdóttir sem sátu fundinn að hluta. Anna Guðmunda ritaði fundargerð.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt og undirrituð.

2. Verkefni í vinnslu

Kristín Mjöll og Höskuldur kynntu helstu verkefni sem eru í vinnslu.

Anna Guðmunda mætti á fundinn.

3. Afgjald 1. júní 2009 – 31. maí 2010.

Líkt og fram kemur í 17. gr. starfsreglna nr. 1027/2007 skal stjórn prestssetra taka ákvörðun um leigu/afgjald prestsseturs fyrir eitt ár í senn sem jafna skal niður á gjaldárið með mánaðarlegum greiðslum frá 1. júní til 31. maí. Afgjald prestsseturs tekur m.a. mið af fasteignamati þeirra eigna sem prestur hefur umráð yfir og metnar eru í Fasteignaskrá Íslands, svo og einnig þeim lögboðnu gjöldum sem innt eru af hendi vegna þeirra. Sú venja hefur skapast að reikna 2% afgjald af fasteignamati íbúðarhúsa og bílskúra og 3% afgjald af öðrum liðum, sem og þeim hlunnindum og öðrum verðmætum sem ekki eru talin til fasteignamats en hafa sannanlegt verðgildi og prestur nýtir.
Farið var yfir útreikning Önnu Guðmundu á afgjaldi prestssetranna miðað við ofangreindar forsendur og hann samþykktur eftir smávægilegar leiðréttingar. Þá var farið sérstaklega yfir afslætti sem í gildi eru og samþykkti stjórnin að tekið yrði til skoðunar hvort forsendur afslátta séu í einhverjum tilfellum brostnar. 
Ákveðið var að hækka lágmarksleigu úr 24.000 kr. á mánuði í 27.000 kr. Sr. Þorgrímur Daníelsson sat hjá við atkvæðagreiðslu um þennan lið.

4. Hraungerði, Flóahreppur – yfirlýsing

Lögð var fram yfirlýsing stjórnar um samþykki leigusamnings Flóahrepps vegna lóðar nr. 8 í Þingborg, landi Hraungerðis, Flóahreppi. Staðfest var samþykki fyrir yfirlýsingunni en það var gefið fyrr í mánuðinum með tölvupósti.

5. Valþjófsstaður, Végarður – gistihús

Lögð var fram beiðni frá sveitarstjórn Fljótdalshrepps dags. 23. mars 2009 þar sem óskað var eftir samþykki landeiganda og ábúanda Valþjófsstaðar til að flytja Gistihús Fljótdalshrepps á lóð Végarðs sem myndi verða varanleg staðsetning þeirra. Lóð Végarðs er í landi Valþjófsstaðar og hefur sveitarfélagið lóðina á leigu
Húsin sem um ræðir eru timbureiningahús alls um 450 fm. Þjóna húsin þeim tilgangi að koma upp gistiþjónustu í sveitarfélaginu en að sögn sveitarstjóra uppfylla húsin öll sett skilyrði fyrir gistirekstri. Áætlanir sveitarstjórnar ganga út á að húsin verði flutt í vor og auglýst eftir aðila til að annast gistireksturinn.
Núverandi leigusamningur um lóðina gerir ráð fyrir rekstri félagsheimilis á lóðinni en breyta þarf samningnum og heimila starfsemi tengdri gistiþjónustu. Engin leiga er greidd af lóðinni eins og er enda hefur sóknin afnot af félagsheimilinu í þágu safnaðarstarfs og til samverustunda sem tengjast kirkjulegum athöfnum. Sr. Lára Oddsdóttir gerir ekki athugasemdir við þessar fyrirætlanir og breytingar á starfsemi á hinni leigðu lóð.
Þar sem um verulega breytingu á starfsemi er að ræða var talið eðlilegt að könnuð yrði afstaða sveitarfélagsins til þess að greiða sérstaklega fyrir þessi afnot lóðarinnar.

6. Skútustaðir – Vatnajökulsþjóðgarður

Lagt var fram bréf Umhverfisráðuneytis dags. 27. mars 2009 þar sem eigendur Skútustaða voru upplýstir um áform um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðar í Skútustaðahreppi norðan Vatnajökuls Óskað var eftir samþykki eigenda Skútustaða fyrir því að „selland og afréttarland“ Skútustaða sbr. úrskurð Óbyggðanefndar í máli nr. 1/2007 verði lýst þjóðgarður en gert er ráð fyrir að búfjárbeit yrði áfram heimil á svæðinu. Stjórn prestsetra er samþykk beiðninni fyrir sitt leyti en gerir fyrirvara um samþykki Kirkjuráðs og að ábúandi Skútustaða geri ekki athugasemdir við friðlýsinguna.

7. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum dagskrárlið.

Fundi lauk kl. 14.00