136. kirkjuráðsfundur 14. maí 2009
Hópur:
Kirkjuráð
Dagsetning:
05/14/2009 (daglangt)
Staður:
Biskupsstofa 1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefnaFundurinn hófst kl 9 með ritningarlestri og bæn er biskup annaðist. Mætt voru auk biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir sr. Halldór Gunnarsson, sr. Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður Jóhannsdóttir. Auk þess sátu fundinn Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri á Biskupsstofu og Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri og Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari sem ritaði fundargerð. Þá sat fundinn að hluta Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkjuþings. Fundargerð 135. fundar Kirkjuráðs var samþykkt. 2. Kirkjuþing 2009Tillögur að starfsreglum um kjör til Kirkjuþings Lagahópur Kirkjuráðs hefur unnið tillögur að breytingum á starfsreglum um kjör til Kirkjuþings. Framkvæmdastjóri og Kristján Björnsson kynntu tillögurnar. Meginbreytingin er sú að kjördæmum fækkar í þrjú og áskilið er að frambjóðendur hafi tiltekinn fjölda meðmælenda. Ýmsar ábendingar komu fram og mun lagahópurinn halda áfram vinnslu tillagnanna. Tillögur að starfsreglum um breyting á starfsreglum um þingsköp Kirkjuþings (kynning þingmála í héraði). Kirkjuráð hafði falið lagahópnum að semja tillögur að starfsreglum um kynningu kirkjuþingsmála og hefur lagahópurinn rætt það á fundum sínum. Kirkjuráð ræddi hvernig heppilegast væri að standa að kynningu þingmála í héraði. Annars vegar hvernig standa bæri að kynningu samþykkta síðasta Kirkjuþings hverju sinni og einnig nýrra þingmála. Fram kom að forsætisnefnd Kirkjuþings er að vinna að tillögum að nýjum starfsreglum um þingsköp og taldi Kirkjuráð eðlilegt að hún tæki einnig að sér framangreinda tillögugerð um kynningu þingmála. Kirkjuráð ræddi aðferðir við kynningu mála heima í héruðum og þann möguleika að setja málin á vefinn til umræðu, þ.e. með myndbandsupptöku af kynningu mála, bæði þingmannamál og mál Kirkjuráðs og Biskups Íslands og síðan yrðu haldnir kynningarfundir þar sem mættir væru héraðsnefndarmenn og aðrir áhugasamir um kirkjuþingsmál. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því við forsætisnefnd Kirkjuþings að hún taki með í framangreindri vinnu að tillögum að nýjum starfsreglum um þingsköp Kirkjuþings, gerð tillagna um kynningu þingmála í héraði. 3. FjármálErindi frá Reykholtsstað ehf.- beiðni um 10 millj. kr. lán Lagt var fram erindi frá Reykholtsstað ehf., þar sem óskað er láns að fjárhæð allt að 10 millj. kr. til að ljúka gatnagerð í Reykholti. Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögum ráðgjafarhóps Kirkjuráðs um fasteignir, en fjármálastjóri sat síðasta fund hópsins. Samþykkt var að Kirkjumálasjóður taki við gatnagerðarframkvæmdum. Gerður er fyrirvari um að tilboð á grundvelli útboðs verkefnisins verði ekki umfram kostnaðaráætlun. Verið er að vinna útboðsgögn og kostnaðaráætlun af hálfu sveitarfélagsins. Framtíðarbankaviðskipti Biskupsstofu og tengd þjónusta Eftir að SPRON féll í marsmánuði sl. voru bankaviðskipti Biskupsstofu og fleiri kirkjulegra stofnana færðar einhliða til Nýja Kaupþings banka. Af því tilefni hafa fjármálastjóri og framkvæmdastjóri rætt við fulltrúa banka og fjármálastofnana og kynntu þau þær viðræður. Samþykkt var að fela fjármálastjóra og framkvæmdastjóra að halda áfram að kanna þetta mál og leggja endanlegar tillögur fyrir Kirkjuráð. Ársreikningur Biskupsstofu og Kristnisjóðs Lagðir voru fram ársreikningar 2008 fyrir Biskupsstofu og Kristnisjóð. Kirkjuráð samþykkti ársreikningana og áritaði þá. Fjármálastjóri lagði fram fjárhagsyfirlit fyrir Biskupsstofu 2008, með samanburði á áætlun og rauntölum, auk sundurliðunar sértekna. Samþykkt var að fela biskupsritara, fjármálastjóra, framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra að koma með tillögur um endurskoðaða áætlun fyrir yfirstandandi ár og næsta ár. Leita þarf allra leiða til að spara og skera niður svo og fyrir næsta ár. Embættiskostnaður Halldór Gunnarsson reifaði hugmyndir um greiðslutilhögun vegna embættiskostnaðar til presta og hugsanlega tengingu við rafræn skýrsluskil. Rætt var um breytingu á embættiskostnaði. Samþykkt var að lagahópur Kirkjuráðs ásamt embættismönnum á Biskupsstofu leggi fram tillögur um embættiskostnað, aksturskostnað og húsaleigu (sjá sérlið). 4. FasteignirTillögur ráðgjafarhóps um fasteignir - Endurskoðun reglna um leigugjald fyrir prestssetur. Kynntar voru tillögur um nýjar reglur um leigugjald fyrir prestssetur. Tillögurnar fela í sér einfaldari og gagnsærri reglur. Kirkjuráð samþykkti tillögur ráðgjafarhópsins og fól lagahópi að kynna málið fyrir Prestafélagi Íslands og ganga frá tillögu að breytingu á starfsreglum um prestssetur. Málefni einstakra prestssetra. Mosfell II í Kjalarnessprófastsdæmi. Framkvæmdastjóri greindi frá fundi sem haldinn var með ýmsum aðiljum er varðar málið. Kirkjuráð samþykkti að fela framkvæmdastjóra að ganga til viðræðna við sóknarnefnd og kirkjugarðsstjórn Lágafellssóknar um aukið land fyrir bílastæði. Einnig að ganga til viðræðna við sóknarprest um smávægilega stækkun prestsseturslóðarinnar og um beiðni hans um leyfi til gróðursetningar fyrir utan mörk lands prestssetursins til skjólmyndunar. Eskifjörður-haldsbréf. Lagt fram til kynningar og staða mála kynnt. Sauðárkrókur. Staða mála kynnt. Hof í Vopnafirði. Staða mála kynnt. Útskálar. Staða mála kynnt. Fyrirhugaður er fundur framkvæmdastjóra Kirkjuráðs og sveitarstjóra Sveitarfélagsins Garðs ásamt tveimur löggiltum fasteignasölum sem hafa metið eignina um hugsanleg kaup sveitarfélagsins á Útskálajörðinni. Laufás. Staða mála kynnt. Sá sem nýtir jörðina í dag er án samnings og heimildar stjórnar prestssetra. Hann hefur ekki fjarlægt færanlegt íbúðarhús sitt þrátt fyrir skriflegan samning þar að lútandi og hagnýtir ennþá jörðina til búrekstrar. Stjórn prestssetra mun senda honum áskorun um að efna samninginn og fara af jörðinni þegar í stað. Háls í Fnjóskadal. Staða mála kynnt. Búið er leigja jörðina í sumar til hjóna sem voru með hana á leigu sl. sumar. Þau hafa boðið fötluðum börnum sumardvöl á staðnum og munu halda því áfram. Jörðin verður síðan auglýst til leigu ótímabundið. - Tímabundið verkefni. Samþykkt var að ráða starfsmann til starfa á fasteignasviði Kirkjumálasjóðs í tímabundið verkefni til sex mánaða. Um er að ræða átaksverkefni um þinglýsingu kirkna á réttan eiganda. Verður ráðinn einstaklingur með háskólamenntun af atvinnuleysisskrá til starfans og mun atvinnuleysistryggingasjóður greiða hluta af launakostnaði vegna þessa í allt að sex mánuði. Gert var ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun Kirkjumálasjóðs 2009 og verður kostnaður Kirkjumálasjóðs því að líkindum minni. - Drög að áætlun um stöðu prestsetra næstu fimm árin og um framtíðarskipan. Lögð voru fram drög að áætlun um stöðu prestsetra næstu fimm árin en í því felst einnig áætlun um framtíðarskipan nokkurra prestssetra. Unnið er að þessari áætlun samkvæmt samþykkt Kirkjuþings 2008 um fjárfestingarstefnu kirkjunnar. Málið hefur áður verið til umræðu í fjármála- og fasteignahópum Kirkjuráðs og í Kirkjuráði. Það verður áfram til skoðunar. b) Vatnsstígur 3. Fasteignin Vatnsstígur 3, Reykjavík, 1. hæð suðurenda, er til sölu þar sem áður fyrr var Dún- og fiðurhreinsunin til húsa. Eignin er áföst norðurhlið Kirkjuhússins Laugavegi 31 og með samliggjandi porti og ýmsu fleiru. Eignin er um 80 fm. ásamt geymslu í kjallara. Samþykkt var að fela framkvæmdastjóra að gera tilboð í eignina með fyrirvara um samþykki Kirkjuþings. Mjög þrengir að starfsfólki og stofnunum sem eru til húsa á Laugavegi 31 og tvísett í herbergi í nokkrum tilvikum. Mun þessi aðstaða í næsta húsi verða til mikilla bóta og leysa brýnan húsnæðisvanda á hagstæðan hátt. 5. Önnur mála) Biskup greindi frá stöðu nokkurra mála sem eru á borði Biskups og varða Kirkjuráð. Námsleyfi Kirkjuráð samþykkti ósk framkvæmdastjóra um námsleyfi til tólf mánaða frá og með septembermánuði nk. en hann hyggst stunda framhaldsnám í lögfræði þennan tíma. Skrifstofustjóri mun gegna stöðu framkvæmdastjóra á meðan og njóta aðstoðar biskupsritara og fjármálastjóra o.fl. samkvæmt nánara samkomulagi. |
|||||