Dagsetning:
06/19/2009 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn er biskup leiddi.
Auk biskups sátu fundinn kirkjuráðsmennirnir sr. Halldór Gunnarsson, sr. Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir mætti á fundinn fyrir sr. Halldór Gunnarsson er hafði óskað eftir að víkja sæti þegar mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur var á dagskrá.
Þá sat að hluta fundinn Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkjuþings meðan málefni Kirkjuþings voru til umræðu.
Einnig sátu fundinn Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari sem ritaði fundargerð. Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu var fjarverandi.
2. Kirkjuþing
- Drög að tillögum frá forsætisnefnd að nýjum starfsreglum um þingsköp Kirkjuþings
Forseti Kirkjuþings, Pétur Hafstein, gerði grein fyrir tillögunum. Tillögurnar miða að því að gera reglur um þingsköp skýrari. Nokkrar ábendingar komu fram og mun forsætisnefnd fara yfir tillögurnar að nýju.
- Tillögur starfshóps Kirkjuráðs um vinnureglur fyrir Kirkjuþing unga fólksins og um æskulýðsnefnd Þjóðkirkjunnar.
Samkvæmt samþykkt Kirkjuþings 2008 voru lagðar fram tillögur starfshóps sem Kirkjuráð skipaði til að móta starfsreglur fyrir Kirkjuþing unga fólksins.
Skrifstofustjóra og biskupsritara var falið að skoða tillögurnar. Ákveðið var að vísa tillögum starfshópsins um hugsanlega stofnun æskulýðsnefndar Þjóðkirkjunnar til kirkjustarfshóps Kirkjuráðs.
- Drög að breyttum starfsreglum um embættiskostnað.
Kristján Björnsson gerði grein fyrir tillögum lagahópsins en ekki voru lagðar fram skriflegar hugmyndir á þessum fundi. Lagahópurinn hefur rætt við fulltrúa stjórnar PÍ. og kynnt hugmyndirnar fyrir þeim. Lagahópurinn mun vinna áfram að tillögunum.
- Drög um nýjan starfsreglubálk um fasteignir Kirkjumálasjóðs.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir tillögum lagahópsins. Lagt er til að settur verði einn heildarbálkur um allar fasteignir Kirkjumálasjóðs. Lagt er til að stjórnkerfið verði einfaldað og samræmdar reglur um leigu settar. Lagahópurinn mun vinna áfram að tillögunum.
- Tillaga að endurskoðun jafnréttisáætlunar á grundvelli nýrra jafnréttislaga frá 2008.
Lagt var fram erindi frá formanni jafnréttisnefndar kirkjunnar um nauðsyn þess að endurskoðun jafnréttisáætlun kirkjunnar. Samþykkt var að fela nefndinni að endurskoða jafnréttisáætlunina og fela skrifstofustjóra biskupsstofu að starfa með nefndinni. Kostnaður verði innan ramma fjárhagsáætlunar jafnréttisnefndar fyrir yfirstandandi ár.
3. Fjármál
a) Frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Lagt var fram frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Fram kom að fjárhæðir mánaðarlegs sóknargjalds eru ekki samræmdar í sjálfum frumvarpstextanum annars vegar og athugasemdum við það hins vegar. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir lækkun sóknargjalda úr 855 kr. á mánuði þetta ár í 811 kr. frá gildistöku laganna 1. júlí 2009 og fyrir árið 2010 verði þetta gjald 741 kr. á mánuði. Í athugasemdum við frumvarpið segir hins vegar að sóknargjald ársins 2009 verði frá og með 1. júlí 2009, 798 kr. á mánuði. Enn fremur þykja athugasemdir í frumvarpinu um eðli sóknargjalda sem hreinna ríkisframlaga til þjóðkirkjusókna og skráðra trúfélaga orka tvímælis. Fjármálastjóri greindi frá nokkrum hugmyndum að niðurskurði á fjárhagsáætlunum Jöfnunarsjóðs sókna og Kirkjumálasjóðs 2009.
Framkvæmdastjóra og fjármálastjóra var falið að vinna með kirkjuráðsmönnum að því að óska eftir breytingum á þessum tillögum að skerðingu sóknargjalda, til að milda áhrif hennar.
b) Fundargerð fjármálahóps
- Kársnessókn.
Samþykkt var að veita vilyrði fyrir árið 2010 að fjárhæð 4 milj. kr. til greiðslu lána. Ákvörðun um frekari vilyrði verða tekin fyrir á úthlutunarfundi Kirkjuráðs í haust.
c) Tillaga framkvæmdastjóra og fjármálastjóra um tilhögun bankaviðskipta
Tillaga framkvæmdastjóra og fjármálastjóra um framtíðarbankaviðskipti er sú að vegna óvissu í efnahagsmálum og um stöðu ríkisbankanna, verði ákvörðun frestað a.m.k. í sex mánuði. Ákveðið var að bankaviðskipti Biskupsstofu verði áfram til næstu mánaða hjá Nýja - Kaupþingi sem yfirtók bankaviðskipti SPRON þar sem viðskipti voru áður.
d) Kirkjubær
Lögð var fram eftirfarandi ályktun héraðsfundar Eyjafjarðarprófastsdæmis:
Héraðsnefnd (svo) Eyjafjarðarprófastdæmis haldinn í Þelamerkurskóla þann 25. apríl 2009 skorar á kirkjuráð að efla og renna styrkari stoðum undir starfsemi Kirkjubæjar á Akureyri. Þetta mætti gera m.a. með því að flytja störf frá Biskupstofu í Kirkjubæ, vilji er allt sem þarf. Þessi yfirlýsing var samþykkt samhljóma.
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri greindu frá fundi sem haldinn var 8. júní á biskupsstofu með prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis um málefni Kirkjubæjar.
Málinu var frestað til næsta fundar.
e) Grafarvogsnefndin
Lagt var fram erindi bréf frá sr. Guðna Þór Ólafssyni, prófasti, vegna vinnu við úttekt á tilraunaverkefninu. Sr. Kristján Björnsson sem er formaður nefndarinnar var falið að svara erindinu.
4. Fasteignir
Fundargerð ráðgjafarhóps Kirkjuráðs um fasteignir.
Lögð var fram fundargerð ráðgjafarhóps um fasteignir frá 18. júní 2009.
a) Borgarhóll – kauptilboð
Um er ræða 80 ha. land sem er skipt var út úr landi prestssetursjarðarinnar Miklabæjar í Skagafjarðarprófastsdæmi. Landið er bundið í erfðaábúð og munu mannvirki öll vera eign ábúanda. Formaður stjórnar prestssetra mun kynna sóknarpresti Miklabæjarprestakalls tilboðið og leggja fyrir stjórnina.
b) Kolfreyjustaður
Borist hefur erindi frá sóknarnefnd er varðar stöðu prestsbústaðar svo og bréf frá prófasti Austfjarðarprófastsdæmis um að auglýsa embættið þegar í stað.
Framkvæmdastjóra Kirkjuráðs var falið að kanna möguleika þess að auglýsa prestakallið með fyrirvara um auknar starfsskyldur prestsins samkvæmt ákvörðun Biskups Íslands og hugsanlega aðra staðsetningu prestsseturs.
c) Útskálar
Sóknarprestur hefur sagt prestakallinu lausu. Rætt var um framtíð prestssetursins en hugmyndir hafa verið um að leggja af prestssetrið til samræmis við nærliggjandi prestaköll.
Ákveðið var að fela framkvæmdastjóra að fara yfir helstu mál er varða prestakallið áður en það verður auglýst.
d) Samþykkt var að kanna málefni hins aflagða prestsseturs að Eystri-Ásum.
5. Önnur mál
a) Sigrún Pálína Ingvarsdóttir
Á fund Kirkjuráðs mætti Sigrún Pálina Ingvarsdóttir ásamt með eiginmanni, börnum sínum og vinahjónum, og sr. Sigfinni Þorleifssyni, sjúkrahúspresti sem hefur haft milligöngu um ósk hennar um að koma á fund Kirkjuráðs.
Sigrún Pálina taldi mikilvægt að hún fengi áheyrn hjá Kirkjuráði til að greina frá sárri reynslu er varðar meint alvarlegt siðferðisbrot sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests. Jafnframt vildi hún lýsa vonbrigðum með viðbrögð og tómlæti af hálfu kirkjunnar á sínum tíma. Lagði hún fram bréf dags. 19. júní 2009 orðum sínum til áréttingar og önnur gögn.
Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði sem fram komu í frásögn hennar á fundinum og skort á skilningi og máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á sínum tíma. Kirkjuráð hefur ekki vald til að leggja mat á eða úrskurða um framangreindar sakargiftir. Ákæra var ekki gefin út á sínum tíma og sr. Ólafur er nú látinn.
Kirkjuráð tekur undir orð biskups Íslands á prestastefnu 2009 og biður þær konur og börn sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið.
Kirkjuráð vísar jafnframt til orða biskups á prestastefnu 2009 þar sem hann rekur það sem kirkjan hefur gert á umliðnum árum til að takast betur á við siðferðis- og kynferðisbrotamál.
Kirkjuráð samþykkti
- að vinna að siðareglum fyrir presta og djákna og allt starfsfólk kirkjunnar sem byggi á núverandi siðareglum presta og öðrum siðareglum sem settar hafa verið í kirkjulegu starfi
- að beita sér fyrir endurskoðun starfsreglna kirkjunnar um meðferð kynferðisbrotamála
- að enginn geti verið í þjónustu Þjóðkirkjunnar sem gerst hafi sekur um kynferðisbrot
- að leita allra annarra leiða til að kirkjan geti tekið á slíkum málum af festu með faglegum vinnubrögðum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo og aukinni aðstoð við þau sem líða vegna slíkra mála og þau samtök sem starfa í þeirra þágu.
b) Ályktun héraðsfundar Austfjarðaprófastsdæmis 18. maí 2009
Málinu frestað.
c) Ályktun frá ÆSKÞ frá 29. apríl varðandi mál sr. Gunnars Björnssonar.
Lagt fram til kynningar.
d) Erindi frá Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra varðandi endurskoðun ársreikninga sókna.
Fjármálahópi Kirkjuráðs var falið að skoða málið.
e) Strandarkirkja – breyting á efnahagsreikningi samkvæmt ábendingu Ríkisendurskoðunar
Í efnahagsreikningi Strandarkirkju eru færðar 7.637.517 kr. vegna sjóvarnargarðs. Ríkisendurskoðun leggur til að þessi fjárhæð verði færð úr bókhaldi Strandarkirkju þannig að eignir lækki um þá fjárhæð og höfuðstóll lækkaður um sömu fjárhæð.
Strandarkirkja mun fyrir nokkuð löngu síðan hafa lagt fjármuni á móti fjárframlögum frá öðrum aðilum til viðhalds á nefndum sjóvarnargarði.
Ekki verður talið að sjóvarnargarðurinn sé eign í sömu merkingu og fasteign eða eignfærð réttindi. Engar afskriftir hafa verið færðar vegna sjóvarnargarðsins. Hann er ekki söluvara né heldur er hægt að flytja hann til annars staðar.
Telja verður eðlilegt, að komi til framlaga eða efnt til kostnaðar vegna viðhalds á sjóvarnargarðinum í framtíðinni, að sá kostnaður verði gjaldfærður.
Kirkjuráð samþykkti að verða við ábendingu Ríkisendurskoðunar.
f) Skipun nefndar til að fjalla sérstaklega um æskulýðsstarfið í prófstsdæmum.
Kirkjuráð ákvað á fundi sínum 19. júní sl. að skipa nefnd til að fjalla sérstaklega um æskulýðsstarfið í prófastsdæmum. Nefndin skili skýrslu til Kirkjuráðs til kynningar á Kirkjuþingi 2009. Ákveðið var að skipa í nefndina sr. Gísla Jónasson, prófast og sóknarprest í Breiðholtsprestakalli, sr. Stefán Má Gunnlaugsson, sóknarprest á Hofi í Vopnafirði og Dagnýju Höllu Tómasdóttur framkvæmdastjóra ÆSKR.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16.
Næsti fundur verður haldinn 13. ágúst. Fundurinn þar á eftir færist til fimmtudagsins 17. september.