Dagsetning:
08/07/2009 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn er biskup leiddi.
Auk Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, sátu fundinn kirkjuráðsmennirnir sr. Halldór Gunnarsson, sr. Kristján Björnsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir.
Einnig sátu fundinn Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari sem ritaði fundargerð.
2. Fjármál
a) Fjármögnun viðgerðar á turni Hallgrímskirkju
Skrifstofustjóri og fjármálastjóri gerðu grein fyrir fundum með fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis um beiðni ráðuneytanna hvað varðar samkomulagið um fjármögnun á viðgerðum á turni Hallgrímskirkju. Í gildi er samkomulag til ársins 2019. Af hálfu ríkisins er óskað eftir því að fjárhæð ríkisins verði lækkuð og Jöfnunarsjóður taki á sig auknar skyldur.
Kirkjuráð telur mikilvægt að staðið verði við samkomulagið milli Ríkisins, Reykjavíkurborgar og Þjóðkirkjunnar um áframhaldandi stuðning við hinar kostnaðarsömu viðgerðir. Kirkjuráð veitti skrifstofustjóra og fjármálastjóra umboð til frekari viðræðna við ráðuneytin og að staðið verði við samkomulagið eins og unnt er en jafnframt verði fundin leið til að koma til móts við beiðni ráðuneytanna um aukna hlutdeild Þjóðkirkjunnar við fjármögnun.
b) Endurskoðun fjárhagsáætlana sjóða árið 2009 og 2010
Hagræðingarkrafa samkvæmt markmiðum ríkisstjórnar um að lækka útgjöld 2009 og 2010
Tilkynning hefur borist frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu um að auk niðurskurðar samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum (skerðing á sóknargjöldum) komi í hlut Þjóðkirkjunnar lækkun að fjárhæð 26,2 m.kr., sem skuli dreifast á seinni hluta ársins 2009. Jafnframt skuli Þjóðkirkjan lækka útgjöld um 10% fyrir árið 2010 en það eru um 150 m.kr.
Ræddar voru hugmyndir að mögulegri hagræðingu. Málið verður rætt nánar á næsta Kirkjuráðsfundi.
Jöfnunarsjóður sókna
Framlag ríkis til Jöfnunarsjóðs sókna skerðist um 17,5 m.kr. árið 2009 samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Erfitt er að breyta fjárhagsáætlun Jöfnunarsjóðs sókna vegna 2009 en lagt er til að varasjóður ábyrgðadeildar sjóðsins verði nýttur til að mæta halla. Framlag ríkis 2010 til Jöfnunarsjóðs sókna lækkar sem nemur 46,1 m.kr.
Kirkjumálasjóður
Samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr.70/2009 lækkar framlag í Kirkjumálasjóð á árinu 2009 um tæpar 13 m.kr. og á árinu 2010 lækkar framlagið um 46 m.kr. ef miðað er við fjárlög 2009.
c) Skerðing sóknargjalda
Lagt var fram yfirlit yfir sóknargjöld frá árinu 1999. Þar kemur m.a. fram að skerðing á sóknargjöldum var umtalsverð árið 2002 og skv. lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum fyrir árið 2009 og 2010 lækka sóknargjöld enn umtalsvert. Sóknargjöld árið 2008 voru 872 kr. en lækkuðu í 855 kr. árið 2009 og aftur í 811 kr. frá 1. júlí 2009 á miðju fjárhagsári. Sóknargjöld verða kr. 767 árið 2010. Ljóst er að skv. þessu lækka framlög í Jöfnunarsjóð sókna svo og í Kirkjumálasjóð umtalsvert. Niðurskurður hvað varðar sóknargjöld og til sjóðanna tveggja á þessu ári verður því um 93 m.kr. en 299 m.kr. á árinu 2010.
d) Tillaga um breytingar á reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna
Ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna eru nú fyrir um 320 m.kr.
Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því við dóms- og kirkjumálaráðherra að breyta reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna nr. 865/2001, skv. tilmælum ríkisendurskoðunar um að lækka höfuðstól ábyrgðardeildar.
3. Fasteignir
a) Staðfesting á samþykki tilboðs í Bergþórshvol I og kauptilboð í prestsbústað á Sauðárkróki.
- Bergþórshvoll I. Kirkjuráð samþykkti sölu á Bergþórshvoli I að fjárhæð 68 m.kr.
- Sauðárkrókur. Kirkjuráð samþykkti kaup á fasteigninni Barmahlíð 7 sem prestsbústað, að fjárhæð 24,2 m.kr.
b) Reykholtsstaður ehf.
Á fundi Kirkjuráðs 14. maí 2009 var samþykkt að Kirkjumálasjóður tæki við gatnagerðarframkvæmdum við Hallveigartröð í Reykholti af Reykholtsstað ehf., en félagið hefur sinn margvíslegum, verklegum framkvæmdum á staðnum undanfarin ár. Félagið sá um, í samráði við fasteignasvið Kirkjumálasjóðs, að fá verktaka til gatnagerðarframkvæmdanna og er þeim að mestu leyti lokið.
Kirkjuráð samþykkti að Kirkjumálasjóður myndi veita Reykholtsstað ehf. 8,4 m. kr. lán vegna kostnaðar við framkvæmdirnar. Lánið endurgreiðist af innheimtum gatnagerðargjöldum af lóðum við Hallveigartröð.
c) Útskálar
Gerð var grein fyrir fundi með sveitarstjóranum í Garði. Sveitarfélagið hefur hug á að festa kaup á Útskálalandinu sem er um 72 ha.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14,10.
Næsti fundur verður haldinn 13. ágúst og hefst kl. 10.