Dagsetning:
08/13/2009 (daglangt)
1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefna
Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn er biskup leiddi.
Auk Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, sátu fundinn kirkjuráðsmennirnir sr. Halldór Gunnarsson, Jóhann E. Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Sr. Kristján Björnsson var erlendis og í stað hans sat fundinn sr. Jón Helgi Þórarinsson, varamaður.
Einnig sátu fundinn Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari sem ritaði fundargerð.
Síðasta fundargerð var samþykkt.
Framkvæmdastjóri greindi frá helstu verkefnum sem unnið er að þessa dagana. Sóknarnefnd Lágafellssóknar hefur kynnt tillögur að nýrri kirkju og menningarmiðstöð fyrir Mosfellsbæ úr samkeppni sem haldin var af því tilefni. Kirkjuráð samþykkti að senda erindi til sóknarnefndarinnar og bjóða fram faglega aðstoð fasteignasviðs við þarfagreiningu og undirbúning en jafnframt að minna á nauðsyn þess að gæta að kostnaði og hyggja að starfsreglum sem fjalla um kirkjubyggingar. Fram kom að stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar hefur ekki tekið formlega til starfa, en framkvæmdastjóri og sr. Kristján Björnsson hafa hitt formann stjórnarinnar, Boga Ágústsson, fréttamann. Ljóst er að fresta verður að hefja starfsemi vegna sparnaðar.
Framkvæmdastjóri greindi frá því að hann hefur rætt við sveitarstjóra Sveitarfélagsins – Garðs um hvernig með framkvæmdir Útskálasóknar að nýju safnaðarheimili skuli farið, en ljóst er að sóknin mun ekki geta lokið byggingarframkvæmdum við það vegna mikils kostnaðar.
Framkvæmdastjóri greindi frá stöðu mála varðandi Reykholt sbr. bókun á síðasta fundi svo og stöðu mála varðandi sölu Bergþórshvols.
Skerðing hjá sóknum og sjóðum kirkjunnar. Unnið er að gerð yfirlits um skerðingar sem Þjóðkirkjan hefur tekið á sig einkum með lækkuðum launum presta, sóknargjöldum og framlögum í sjóði. Kirkjuráð mun senda sóknum á ný erindi um stöðu mála og brýna fyrir sóknarnefndum að verja kirkjulegt starf sem kostur er en draga frekar úr verklegum framkvæmdum. Einnig verður stofnunum kirkjunnar sent erindi með tilmælum um að leita allra leiða til sparnaðar í rekstri.
2. Staða útgáfu nýrrar sálmabókar
Á fundinn mættu söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, Hörður Áskelsson, organisti og dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor, til að gera grein fyrir endurskoðun sálmabókar. Nefndin um endurskoðun – sálmabókarnefnd - hefur starfað frá 2005, skipuð fimm mönnum svo og fjölmennum ráðgjafarhópi. Formaður nefndarinnar er dr. Einar. Meginstofn sálmabókar frá 1972 og viðbótarsálmar sem gefnir voru út 1991, auk nokkurra nýrra sálma, eru uppistaðan í núverandi sálmabók sem kom út 1997.
Fram kom að samkomulag er um form sálmabókarinnar. Gerð hefur verið tillaga um hvaða sálmar verði felldir brott úr núverandi sálmabók og hvaða sálmar haldist áfram í næstu bók. Er unnið að því að fá nýja sálma, en talsvert hefur borist að tillögum um nýja sálma. Lagboði verður við alla sálmana. Horft er til nágrannalandanna bæði hjá norrænu kirkjunum og lútersku kirkjunni í Þýskalandi en þær kirkjur hafa unnið að endurskoðun sálmabóka sinna og sumar nýlega gefið út nýjar sálmabækur.
Stefnt er að útkomu nýrrar sálmabókar fyrsta sunnudag í aðventu 2011, en ekki ljóst að það takist. Vinna þarf áætlun um útgáfukostnað og sölutekjur. Á hverju ári seljast um 4-5 þús. sálmabækur.
Gefnar verða út tvær útgáfur, textaútgáfu eingöngu og hins vegar bók með nótum á öllum sálmum. Nótnasetning í tölvu er hafin, sem Aðalheiður Þorsteinsdóttir, organisti, vinnur auk Arngerðar Maríu Árnadóttur, organista, fulltrúa hjá söngmálastjóra. Samhliða nýrri sálmabók verður gefin út ný sálmasöngsbók.
3. Fjármál
a) Tillögur um sparnað árið 2010 skv. tilmælum dóms- og kirkjumálaráðuneytis.
Niðurskurður ríkisútgjalda
Lagðar voru fram tillögur um hvernig mæta megi niðurskurði á næstu árum með tölulegum upplýsingum og farið yfir þær. Tillögurnar ná til fjárlagaliðanna 06-701 Biskup Íslands, 06-705 Kirkjumálasjóður og 06-736 Jöfnunarsjóður sókna. Tillögurnar verða áfram til umræðu.
Samþykkt var að óska eftir viðræðum við forsætis-, fjármála-, og dóms- og kirkjumálaráðherra um samning varðandi tímabundnar breytingar á sóknargjöldum og hagræðingu hjá kirkjunni.
b) Ársreikningur Kirkjumálasjóðs 2008
Ársreikningur Kirkjumálasjóðs 2008 var samþykktur og undirritaður af Kirkjuráði.
Lagt var fram yfirlit um kostnað verkefna fyrir árið 2007 og 2008 með samanburði við áætlun 2008.
c) Ársreikningur Kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóðs 2008
Ársreikningur Kynningar-, fræðslu- og útgáfusjóðs 2008 var samþykktur og undirritaður af Kirkjuráði.
d) Hallgrímskirkja
Fjármálastjóri og skrifstofustjóri gerðu grein fyrir fundum sem þær hafa átt með fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis vegna fjármögnunar á viðgerð á turni Hallgrímskirkju. Lögð var fram tillaga um endurskoðaða fjármögnun á framkvæmdunum þar sem komið er til móts við beiðni ríkisins um að Jöfnunarsjóður taki á sig aukna hlutdeild í kostnaðinum. Kirkjuráð samþykkti að taka á sig lækkunarbeiðni ríkisins í hlutdeild kostnaðar.
4. Fasteignir
a) Málefni prestssetra
- Hof. Kirkjuráð samþykkti að fela fasteignasviði að kaupa hentugt húsnæði á Vopnafirði fyrir prestinn og láta endurbæta það eftir þörfum. Kirkjumálasjóður mun leigja prestsbústaðinn á Hofi út ásamt hæfilegu landrými. Hlunnindatekjur verða með óbreyttum hætti.
- Fáskrúðsfjörður. Kirkjuráð samþykkti að fela fasteignasviði að festa kaup á húsi á Búðum fyrir prestinn á Kolfreyjustað.
b) Málefni Ytri – Ása, Skaftárhreppi.
Málið var kynnt og samþykkt að hefja undirbúning dómsmáls í samráði Landbúnaðarráðuneytið.
c) Vatnsstígur 3, Reykjavík.
Samþykkt var að gera nýtt tilboð í Vatnsstíg 3 sem yrði nýtt fyrir starfsemi Biskupsstofu.
Reykholtsstaður ehf.
Kirkjuráð samþykkti að fela framkvæmdastjóra að hefja viðræður við hlutaðeigandi aðila um fjárhag félagsins.
d) Háls í Fnjóskadal
Samþykkt var að afmarka um 3ja ha lóð fyrir Háls 2 og auglýsa Háls 1 og Háls 2 til leigu.
e) Kaup og sala fasteigna, undirbúningur mála til Kirkjuþings 2009
Eftirfarandi mál verða lögð fyrir Kirkjuþing 2009 til endanlegrar afgreiðslu: Kaup á prestsbústað vegna Kolfreyjustaðarprestakalls, sala á Útskálajörðinni, kaup á hluta fasteignarinnar að Vatnsstíg 3, sala á fv. prestssetursjörðinni Hvoli í Saurbæ, sala á Prestbakka II, Húnvatnsprófastsdæmi.
5. Lagasvið
Lagahópur Kirkjuráðs hefur unnið að tillögum um starfsreglur sem hér greinir:
- Drög að tillögum um starfsreglur um fasteignir Þjóðkirkjunnar
- Drög að starfsreglum um kjör til Kirkjuþings
- Drög að breytingum á starfsreglum um rekstarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa.
Tillögurnar voru ræddar en lagahópurinn mun áfram fjalla um þær. Þá hefur verið unnið að tillögum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði hvað varðar prófastsdæmin í samræmi við tillögur sem nefnd vann að fyrir nokkrum árum. Kirkjuráð samþykkti að leggja til breytingar, á grundvelli þeirra tillagna, sem fela í sér að prófastsdæmin verða níu talsins.
Málið verður til umfjöllunar á næsta fundi kirkjuráðs.
5. Önnur mál
a) Tilnefning fulltrúa í fulltrúaráð Hjálparstarfs kirkjunnar
Samkvæmt skipulagsskrá Hjálparstarfs kirkjunnar er yfirstjórn Hjálparstarfsins í höndum fulltrúaráðs. Fulltrúaráðið er skipað þannig að fimm menn eru skipaðir af Kirkjuráði til tveggja ára, þannig að tvö sæti eru laus þegar ártal stendur á oddatölu og þrjú sæti, þegar ártal stendur á jafnri tölu. Tveir varamenn eru skipaðir með sama hætti og ganga þeir úr fulltrúaráðinu sitt árið hvor. Jafnframt er tekið fram að ekki megi endurskipa eða kjósa menn í fulltrúaráð oftar en svo að samfelld seta þeirra í fulltrúaráði verði lengri en sex ár.
Á fundi Kirkjuráðs í ágúst 2007 var eftirfarandi bókað: “Kirkjuráð samþykkti að Lóa Skarphéðinsdóttir, Vestmannaeyjum, verði skipuð til tveggja ára og Hrafnhildur Sigurðardóttir sem hefur setið undanfarin fjögur ár verði skipuð áfram til tveggja ára. Guðbjörg Matthíasdóttir, Vestmannaeyjum, var skipuð varamaður til tveggja ára.”
Á fundi Kirkjuráðs í ágúst 2008 var eftirfarandi bókað:
“Kirkjuráð samþykkti að skipa áfram Ingibjörgu Pálmadóttur, Kristínu Magnúsdóttur og Þorstein Pálsson sem fulltrúa Kirkjuráðs í fulltrúaráð Hjálparstarfsins.
Varamaður verði Rannveig Sigurbjörnsdóttir. Öll eru þau skipuð til tveggja ára”.
Kirkjuráð samþykkti að skipa Lóu Skarphéðinsdóttur áfram til tveggja ára. Þar sem Hrafnhildur Sigurðardóttir hefur setið samfellt í sex ár er ekki unnt að skipa hana áfram skv. skipulagsskránni.
Kirkjuráð samþykkti að skipa í hennar stað Helgu Halldórsdóttur, Vík í Mýrdal, kirkjuþingsmann til tveggja ára. Guðbjörg Matthíasdóttir, Vestmannaeyjum, var skipuð áfram sem varamaður til tveggja ára.
b) Þingvallakirkja
Kirkjuráð ákvað að senda nýskipaðri Þingvallanefnd erindi og minna á áður gert samkomulag um framlag Jöfnunarsjóðs sókna að fjárhæð 3 millj. kr. á ári í þrjú ár gegn samsvarandi framlagi ríkisins að endurbótum kirkjunnar og umhverfi hennar.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 17,20.