140. kirkjuráðsfundur 24. ágúst 2009
Hópur:
Kirkjuráð
Dagsetning:
08/24/2009 (daglangt)
Staður:
SÃmafundur á Biskupsstofu 1. Fundarsetning, fundargerð síðasta fundar og staða verkefnaEfnt var til símafundar vegna brýnnar nauðsynjar hvað varðar málefni Hallgrímskirkju auk umræðu um hagræðingarkröfu ríkisins o.fl. Símafundurinn hófst kl. 11. Einnig tóku þátt í fundinum Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu sem ritaði fundargerð. Einnig sat fundinn að hluta sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari. 2. Fjármála) Niðurskurður ríkisútgjalda til Þjóðkirkjunnar 2009 – 2010. b) Hallgrímskirkja Kirkjuráð samþykkti að greiða þegar út úr ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs sókna kr. 30 millj. til Hallgrímssóknar sem fyrirframgreiddan styrk vegna áranna 2013 – 2018 til viðgerðar á turni kirkjunnar. Jafnframt verði gengið í ábyrgð fyrir láni sóknarinnar hjá Nýja – Kaupþingi að fjárhæð 50 millj. kr. 3. Önnur málRætt var um undirbúning að umræðu á Kirkjuþingi 2009 um Hjálparstarf kirkjunnar. Málinu frestað til næsta fundar.
|
|||||