143. kirkjuráðsfundur 7. og 8. október 2009

Hópur: 
Kirkjuráð
Dagsetning: 
10/07/2009 (daglangt)
Staður: 
Biskupsstofa

1. Fundarsetning, fundargerðir tveggja síðastu funda og staða verkefna

Fundurinn hófst kl. 9 með morgunbæn sem biskup leiddi. Mætt voru auk biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar, kirkjuráðsmennirnir, sr. Halldór Gunnarsson, Jóhann E. Björnsson, sr. Kristján Björnsson og Sigríður M. Jóhannsdóttir. Þá sátu fundinn Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri og starfandi framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritaði fundargerð. Þá sat fundinn Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, meðan kirkjuþing 2009 var til umræðu.

Fundargerðir síðastu tveggja funda voru samþykktar, þar sem annar fundurinn var símafundur.

2. Kirkjuþing 2009

a) Málaskrá og umbúnaður þingsins.
Farið var yfir málaskrá kirkjuþings 2009. Flutningsmenn mála kirkjuráðs voru ákveðnir. Á málaskrá kirkjuþings eru 24 mál.
Ákveðið var að kirkjuþing sæki messu á sunnudeginum í Langholtskirkju í Reykjavík, á árlegum kristniboðsdegi sem verður útvarpsmessa.

b) Mál kirkjuþings 2009.
- 1. mál. Skýrsla kirkjuráðs
Skýrslan var samþykkt og verður send út til kirkjuþingsfulltrúa.
- 5. mál. Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu kirkjunnar. Samþykkt var að senda tillöguna út til kirkjuþingsfulltrúa.
- 7. mál. Samþykkt var breyta tillögu að starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar aðallega ákvæðum í kaflanum um hlunnindi.
- 11. mál. Samþykkt var að breyta starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsdæma. Um er m.a. að ræða að fella niður húsaleigu sem prestar fá greitt með embættiskostnaði vegna afnota af skrifstofu á heimili. Jafnframt var ákveðið að endurskoða greiðslur vegna aksturs.
- 13. mál. Tillaga að staðfestingu á jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar
Lögð var fram fundargerð frá kirkjustarfshópi er hafði haft málið til umfjöllunar að beiðni kirkjuráðs. Samþykkt var að fela kirkjustarfshópnum að ræða við jafnréttisnefnd um breytingartillögur hópsins og leggja málið að nýju fyrir á næsta fundi kirkjuráðs.

3. Fjármál

a) Fjárhagsáætlanir sjóðanna
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2010 er fyrirhuguð skerðing á sóknargjöldum og þar með framlagi til Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs. Úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna og kirkjumálasjóði lækkar því samsvarandi þeirri skerðingu á árinu 2010.

b) Fyrri úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna og kirkjumálasjóði
Farið var yfir umsóknir í Jöfnunarsjóð sem voru mun færri en á síðasta ári.
Kirkjuráð mun ganga endanlega frá úthlutun úr sjóðum kirkjunnar á fundi sínum í desember.
Undir þessum lið var eftirfarandi einnig rætt:
- Kirkjumiðstöðin á Akureyri
Kirkjuráð samþykkti að halda áfram þátttöku í starfsemi kirkjumiðstöðvarinnar í Kirkjubæ á Akureyri, að því gefnu að héraðssjóður og kirkjumálasjóður skipti jafnt á milli sín húsnæðiskostnaðinum að fjárhæð 1,7 milljónir árið 2010. Kirkjumálasjóður mun greiða auk þess 1 milljón kr. í rekstur kirkjumiðstöðvarinnar á árinu 2010.
- Kirkjumiðstöð við Vestmannsvatn
Erindi barst frá hollvinasamtökum Vestmannsvatns. Málið verður til afgreiðslu við lokafjárúthlutun í desember.
- Starf fræðslufulltrúa í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmum
Samþykkt var að segja upp gildandi samningi um starf fræðslufulltrúa í Húnvatns- og Skagafjarðarprófastsdæmum. Enn fremur að segja upp ráðningarsamningi við sr. Sigurð Grétar Sigurðsson, sem hefur gegnt starfi fræðslufulltrúa, en hann hefur verið skipaður sóknarprestur í Útskálaprestakalli frá 1. nóvember n.k. Í stað þess ákvað kirkjuráð að veita styrk til fræðslustarfsins í prófastsdæmunum á árinu 2010. Ákvörðun fjárhæðar verður ákveðin við lokafjárúthlutun á fundi kirkjuráðs í desember.
- ÆSKÞ (frestað frá síðasta fundi)
Málið verður til afgreiðslu við lokafjárúthlutun í desember.
 - Árbæjarsókn Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Fjármálahópi kirkjuráðs falið að ræða við sóknarnefnd um fyrirhugaða stækkun kirkjunnar

4. Fasteignir

Fundargerð ráðgjafahóps um fasteignir var lögð fram. Eftirfarandi mál úr fundargerðinni voru á dagskrá:
- Hof í Vopnafirði. Gengið hefur verið frá kaupum á íbúðarhúsi að Hamrahlíð 12 á Vopnafirði.
- Stafholt. Prestssetrið í Stafholti hefur verið úrskurðað óíbúðarhæft. Stjórn prestssetra hefur tekið á leigu til tveggja ára húsnæði í Borgarnesi fyrir sóknarprestinn. Nú stendur til boða húsnæði til leigu í prestakallinu, m.a. að Bifröst og mun formaður stjórnar prestssetra ræða við sóknarprestinn um þá möguleika.    
- Þinglýsingar kirkna. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því við kirkjugarðaráð að fá að hækka tímabundið starfshlutfall Sigurgeirs Skúlasonar, landfræðings, sem vinnur að mælingu lóða kirkna fyrir Jöfnunarsjóð, úr 25% í 50%. Hann er starfsmaður kirkjugarðaráðs.
- Leiguhúsnæði Fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Kirkjuráð hefur leitað leiða til að lækka húsaleigukostnað Fjölskylduþjónustunnar, skv. samþykkt kirkjuþings 2008. Það er mat lögmanns að ekki sé unnt að segja upp gildandi leigusamningi að Klapparstíg 25-27 þar sem Fjölskylduþjónustan er til húsa. Samningurinn gildir út árið 2013. Samþykkt var að ganga að tilboði leigusala um að hann felli niður virðisaukaskatt af húsaleigunni en í stað þess hækki húsaleiga um 10%. Um er þá að ræða um 10% lækkun á húsnæðiskostnaði.

5. Skýrsla um Grafarvogssöfnuð

Málið hefur áður verið á dagskrá kirkjuráðs. Kirkjuráð skipaði samstarfshóp til að ræða um málefni sóknarinnar út frá samþykktum kirkjuþings 1999 og 2000 um að Grafarvogssókn væri tilraunaverkefni í tíu ár og að sókninni yrði ekki skipt. Samstarfshópurinn var skipaður fulltrúum kirkjuráðs og sóknarinnar. Lögð var fram skýrsla um fjárhag Grafarvogssóknar, dags. september 2009 en skýrslan var unnin af Sigrúnu Hallgrímsdóttur, viðskiptafræðingi og löggiltum endurskoðenda. Fjárhagsskýrslan mun fylgja 2. máli kirkjuþings. Þá verður fljótlega lögð fram skýrsla sr. Guðna Þórs Ólafssonar, sem hefur unnið að úttekt á safnaðarstarfinu sem mun fylgja 3. máli. Á næsta kirkjuráðsfundi verður og lögð fram skýrsla samstarfshópsins sem mun einnig fylgja 3. máli.

6. Mál Selfossóknar

Biskup kynnti stöðu málsins.

7. Viðaukasamningur við kirkjujarðasamkomulagi

Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri, og Sigríður Dögg fjármálastjóri lögðu fram minnisblað frá fundi sem þær sátu 6. október s.l í dóms- og mannréttinda-ráðuneytinu ásamt skrifstofustjórum úr ráðuneytinu og fjármálastjóra fjármálaráðuneytisins. Þar voru lögð fram til umræðu drög að frumvarpi til laga um breytingu á þjóðkirkjulögunum, ásamt drögum að viðaukasamningi við kirkjujarðasamkomulagið frá 10. janúar 1997. Um yrði að ræða tímabundna viðbótarskerðingu á fjárframlögum til þjóðkirkjunnar/biskups Íslands um 160 millj. kr. á árinu 2010 eða um 10% skerðingu og jafnframt um 20 millj. kr. skerðingu á Kristnisjóði á árinu 2010 um 20%. Heildarskerðing á sóknargjöldum og lögbundnu framlagi til þjóðkirkjunnar 2010 næmi þá um 15% eða um kr. 669 milljónir.

Fulltrúar Biskupsstofu óskuðu eftir því að reglugerð um Jöfnunarsjóð sókna yrði endurskoðuð til að unnt væri að mæta að hluta skerðingarkörfu ríkisins. Til greina kæmi að breyta reglugerðinni á þann veg að hlutfallstölur sem ætlaðar eru hverjum málaflokki falli brott. Einnig kæmi til álita að fella reglugerðina á brott og fela kirkjuþingi þess í stað að setja starfsreglur um sjóðinn.

Kirkjuráð ræddi frumvarpið og drög að viðaukasamkomulaginu. Samþykkt var að tilnefna til samningaviðræðna um þessi mál kirkjuráðsmennina sr. Halldór Gunnarsson og sr. Kristján Björnsson, ásamt Sigríði Dögg Geirsdóttur, fjármálastjóra. 

8. Staða prestsembættanna erlendis

Erindi hefur borist frá Sjúkratryggingum Íslands þar sem fram kemur að stofnunin muni ekki framlengja frekar samstarfsamningi milli biskups Íslands, Sjúkratrygginga Íslands og utanríkisráðuneytisins um starfs prests í Kaupmannahöfn. Ástæðan er sú að ekki er lengur í gildi samningur við Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn um líffæragjafir og líffæraígræðslu heldur verður að öllum líkindum samið um það við sjúkrahús í Gautaborg. Biskup Íslands herfur því í hyggju að óska eftir því við Sjúkratryggingar Íslands að gerður verði samningur um þjónustu prestsins í Gautaborg við sjúklinga sem þangað verða sendir.

Í ljósi þessa og vegna skerðingar á fjárframlögum til þjóðkirkjunnar samþykkti kirkjuráð að embætti prests í Kaupmannahöfn yrði lagt niður frá 15. janúar 2010. Kirkjuráð mun áfram leitast við að styðja starf safnaðarins í Kaupmannahöfn eins og kostur er.
Framkvæmdastjóra var falið að ræða við utanríkisráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands um framtíð prestsembættisins í Lundúnum.

9. Önnur mál

a) Hallgrímskirkja - viðgerð á turni
Biskup undirritaði fyrir hönd kirkjuráðs yfirlýsingu þar sem fram kemur að Jöfnunarsjóður sókna muni leggja fram 27,2 millj. kr. á ári til Hallgrímssóknar, 2013 til 2018 vegna viðgerðar á turni kirkjunnar. Ríkið og Reykjavíkurborg hafa ákveðið að leggja til verkefnisins 5 millj. kr. á ári í sama tíma sem er lækkun á fyrra loforði um framlag þessara aðila. Lækkunin nemur 7,4 millj. kr. á ári hjá hvorum aðila.
b) Kauptilboð
Borist hefur kauptilboð í prestsbústaðinn á Suðureyri. Samþykkt var að leita heimildar kirkjuþings 2009 fyrir sölunni.

Ákveðið að halda næsta kirkjuráðsfund föstudaginn 23. október, kl. 10.

Fleira ekki rætt og fundi slitið fyrri daginn kl. 17 og seinni daginn kl. 16,40.