Fundargerð stjórnar prestssetra

Hópur: 
Stjórn prestssetra
Dagsetning: 
10/05/2009 (daglangt)
Staður: 
Kirkjuhúsið

8. stjórnarfundur starfsársins 2008 – 2009 5. október 2009, kl. 10.30
Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, salur 4. hæð

Símafundur
 

Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu einnig fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir og Höskuldur Sveinsson og Kristín Mjöll Kristinsdóttir sem sátu fundinn að hluta. Anna Guðmunda ritaði fundargerð. 

1.   Fundargerð síðasta fundar var samþykkt. 

2.   Fjármál, staða samanborið við fjárhagsáætlun.

Kristín Mjöll og Höskuldur greindu frá stöðu fjármála, hve miklu væri ráðstafað nú þegar af fjárheimild, hve mikið væri útistandandi og hvað væri eftir til ráðstöfunar. Var þeim falið að skila tillögum til stjórnarinnar um hvernig sú ráðstöfun skuli vera. 

3.   Verkefni í vinnslu.

Kristín Mjöll og Höskuldur greindu frá þeim verkefnum sem eru í vinnslu.

4.   Skagabraut 30, Garði - ástand prestssetursins.

Lagt var fram bréf frá sr. Sigurði Grétari Sigurðssyni sem taka mun við prestssetrinu að Skagabraut 30 í Garði 1. nóvember næstkomandi þar sem lýst er ástandi prestssetursins. Bréfið mun vera haft til hliðsjónar þegar að því kemur að ákveða forgangsröðun verkefna á næstkomandi ári, sbr. ástandsskýrslur prestssetra . 

5.   Þorlákshöfn – leigufjárhæð.

Lagður var fram tölvupóstur frá sr. Baldri Kristjánssyni dags. 14. september 2009 ásamt viðauka sem barst í tölvupósti dags. 23. september 2009. Fer hann fram á lækkun á leigufjárhæð þeirri sem hann greiðir fyrir prestssetrið Háaleiti í Þorlákshöfn. Vísar sr. Baldur m.a. í háan rekstarkostnað vegna hitunar. Nauðsynlegt þykir að afla frekari gagna um rekstarkostnað prestssetursins o. fl. áður en ákvörðun verður tekin og málinu því frestað fram að næsta fundi.

6.   Stafholt – búseta sóknarprests.

Sr. Elínborg Sturludóttir býr í leiguhúsnæði í Borgarnesi, utan prestakallsins. Það er skoðun stjórnar prestssetra að það sé bæði eðlilegt og æskilegt að presturinn búi innan prestakallsins. Þar af leiðandi hefur verið haldið áfram leit að hentugu húsnæði innan prestakallsins og mun nú vera í boði leiguhúsnæði á Bifröst. Ákveðið var að kynna formlega fyrir sr. Elínborgu sjónarmið stjórnarinnar sem og þessa breytingu á framboði húsnæðis innan prestakallsins og leita eftir viðbrögðum hennar. 

7.   Hraungerði – Bankavegur 8: Leigufjárhæð o. fl.

Tekið var fyrir mál sem frestað hafði verið á 5. fundi stjórnar þann 25. maí 2009. Lagður var fram tölvupóstur frá sr. Kristni Ágústi Friðfinnssyni dags. 5. maí 2009 þar sem hann m.a. mótmælir útreikningi á afgjaldi vegna prestsbústaðar sem leigður er fyrir hann á Selfossi. Anna Guðmunda lagði fram frekari gögn varðandi aðdraganda þess að sr. Kristni var útvegað húsnæði á Selfossi. Stjórnin mun kynna sér nánar framlögð gögn áður en bréfi séra Kristins verður svarað.

8.   Hruni – Afréttagirðing á Hrunaheiðum

Kynntur var úrskurður nefndar sem skipuð var skv. 7. gr. girðingalaga nr. 135/2001 til þess að skera úr um kostnað vegna landamerkjagirðingar á mörkum Tungufells og Hrunaheiða.
Stjórn prestssetra mótmælir þeim athugasemdum sem fram koma í niðurstöðu nefndarinnar þar sem efast er um að Kirkjumálasjóður sé réttur eigandi að afréttareigninni á Hrunaheiðum. Þá telur stjórnin óviðeigandi tilvísun nefndarinnar í 8. gr. samkomulags íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um prestssetur og afhendingu þeirra um að gerðadómur skuli skera úr um ágreining um túlkun samkomulagsins milli aðiljanna.  

9.   Önnur mál

Ekkert var tekið fyrir undir þessum lið.
  
Fundi lauk kl. 13.00.