Fundargerð stórnar prestssetra

Hópur: 
Stjórn prestssetra
Dagsetning: 
05/25/2009 (daglangt)
Staður: 
Kirkjuhúsið

5. stjórnarfundur starfsársins 2008 – 2009 25. maí 2009, kl. 11.00
Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, salur 4. hæð

Fundargerð
Mætt voru Lárus Ægir Guðmundsson, sr. Þorgrímur Daníelsson og Guðmunda Kristjánsdóttir. Þá sátu fundinn verkefnastjórar af fasteignasviði Kirkjuráðs, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir og Höskuldur Sveinsson og Kristín Mjöll Kristinsdóttir sem sátu fundinn að hluta. Anna Guðmunda ritaði fundargerð.

1. Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

2. Verkefni í vinnslu

Kristín Mjöll og Höskuldur kynntu helstu verkefni sem eru í vinnslu. Var þeim falið að fara vel yfir allar framúrkeyrslur og kynna tillögur að niðurskurði í öðrum verkefnum á næsta fundi.

3. Athugasemdir presta við tilkynningu um breytt afgjald

a. Suðureyri
Lagður var fram tölvupóstur frá sr. Valdimar Hreiðarssyni dags. 4. maí 2009 þar sem gerðar eru athugasemdir við viðhald prestsbústaðarins á Suðureyri og lagðar fram spurningar sem Önnu var falið að svara. 
b. Hraungerði
Lagður var fram tölvupóstur frá sr. Kristni Ágústi Friðfinnssyni dags. 5. maí 2009 þar sem hann m.a. mótmælir útreikningi á afgjaldi vegna prestsbústaðar sem leigður er fyrir hann á Selfossi. Afgreiðslu málsins var frestað.
c. Glaumbær
Lagt var fram svarbréf sr. Gísla Gunnarssonar, tölvupóstur dags. 21. maí 2009. Í samræmi við efni bréfsins er það ákvörðun stjórnar að gamla húsið á Glaumbæ skuli verða hluti prestssetursins að nýju. Skal gerður sérstakur viðauki við haldsbréfið sé þess þörf.
d. Reynivellir
Sr. Gunnari Kristjánssyni var gefinn aukinn frestur til 20. júní nk. til að koma að andmælum vegna leiðréttinga á afgjaldi.
e. Reykholt
Við ákvörðun á afgjaldi kom í ljós að sr. Geir Waage hefur ekki greitt afgjald af hitavatnsréttindum í Reykholti nema að litlu leyti. Sr. Geir var veitt tækifæri til að koma að athugasemdum sínum vegna þessa og bárust þær í tölvupósti dags. 22. maí 2009. Þar kemur m.a. fram að allar tekjur af hitavatnsréttindunum renna beint til prestssetursins og að presturinn hirðir ekkert af þeim sjálfur. Stjórn prestssetra telur óeðlilegt að prestur greiði leigu af hlunnindum ef sýnt þykir að tekjur af þeim renni óskertar í prestssetrið. Er það því ákvörðun stjórnar að falla frá kröfu sinni um að leiðrétta afgjald vegna hitavatnsréttinda í Reykholti.

4. Óskir um lækkun leigu

a. Saurbær
Lagt var fram bréf Hjördísar Stefánsdóttur f.h. sr. Kristins Jens Sigurþórssonar dags. 19. maí 2009 í Saurbæ þar sem farið er fram á lækkun á leigu þar sem miklar framkvæmdir hafa verið í íbúðarhúsinu á Saurbæ og það meira eða minna undirlagt vegna þeirra. Stjórn prestssetra féllst á að fella niður hálfa leigu í þrjá mánuði vegna skerðingar á nýtingu hússins.
b. Þorlákshöfn.
Tekin var fyrir beiðni sr. Baldurs Kristjánssonar um lækkun á afgjaldi fyrir prestssetrið á Þorlákshöfn vegna skertra nota á prestssetrinu út af framkvæmdum. Féllst stjórn prestssetra á að fella niður hálfsmánaðar leigu vegna framkvæmda á svölum sem skertu nýtingu þeirra.
c. Möðruvellir
Lagður var fram tölvupóstur frá sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur þar sem hún mótmælir harðlega hækkun leigugjalds. Stjórn prestssetra ákvað að hafna beiðni sr. Solveigar að draga til baka hækkun á leigu. Sr. Þorgrímur Daníelsson sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

5. Valþjófsstaður, Végarður – gistihús

Á síðasta fundi stjórnar var greint frá ósk sveitarstjórnar Fljótdalshrepps þess efnis að flutt yrðu gistihús á lóð Végarðs en sveitarfélagið leigir lóðina úr prestsetursjörðinni Valþjófsstað. Engin leiga er greidd fyrir lóðina sem helgast af því að sóknin hefur afnot af félagsheimilinu í þágu safnaðarstarfs og til samverustunda sem tengjast kirkjulegum athöfnum. Stjórn prestssetra þótti eðlilegt að skoða hvort ekki þyrfti að semja sérstaklega um leigugreiðslur vegna þeirra auknu notkunar sem af gistihúsunum hlýst og frestaði þar af leiðandi ákvörðunartöku sinni. Komið hefur fram sú tillaga að sama sjónarmið gildi varðandi leigu vegna gistihúsanna og vegna Végarðs, þ.e. að sóknin fá afnot af húsunum í þágu safnaðarstarfs. Stjórnin er samþykk slíkum hugmyndum og veitir því sveitarstjórn Fljótsdalshrepps leyfi til að setja húsin á lóð Végarðs náist slíkt samkomulag enda verði gerður viðauki við  leigusamninginn þar um. Var Önnu falið að ganga frá samningi fyrir hönd stjórnar.

6. Valþjófsstaður II, ábúendaskipti

Lagt var fram bréf Jóns Jónssonar hrl. f.h. ábúenda á Valþjófsstað II vegna óska um ábúendaskipti á jörðinni ásamt drögum að ábúðasamningi. Þá voru lagðar fram athugasemdir sr. Láru Oddsdóttur ábúanda á Valþjófsstað I. Málinu frestað en það fer í vinnslu á fasteignasviði.

7. Laufás – ljósleiðari

Tekin var fyrir beiðni sr. Bolla Bollasonar í Laufási um tengingu prestssetursins við ljósleiðara. Beiðnin var samþykkt. 

8. Laufás – greiðslumark og fl.

Kynnt voru samskipti Önnu Guðmundu við Matvælastofnun vegna skráningar greiðslumarks í Laufási.
Þá var kynnt bréf sem sent var Þórarni Péturssyni og Hólmfríði Björnsdóttur dags. 13. maí 2009.

9. Skagaströnd – ástand prestsbústaðar

Lagt var fram bréf sr. Ursulu Árnadóttur sóknarprests á Skagaströnd þar sem hún lýsir ástandi prestbústaðar á Skagaströnd. Að þessu tilefni þótti rétt að fá heilbrigðisfulltrúa til þess að taka út húsið og var Kristínu Mjöll og Höskuldi falið að fylgja málinu eftir.

10. Erindi frá Prestafélagi Íslands

Lagt var fram erindi frá sr. Ólafi Jóhannssyni f.h. stjórnar Prestafélags Íslands dags. 25. maí 2009 þar sem stjórn PÍ lýsir vonbrigðum sínum með þá ákvörðun stjórnar prestssetra að hækka lágmarks afgjald prestssetra. Gerir stjórn PÍ jafnframt athugasemd við heimildir stjórnar prestssetra til að ákveða lágmarks afgjald.  Formanni falið að svara bréfinu.

11. Önnur mál

a. Reykholt – gatnagerð
Kynnt var ákvörðun Kirkjuráðs um að Kirkjumálasjóður yfirtaki gatnagerð í Reykholti við Hallveigartröð.
b. Útskálar – staða mála
Anna greindi frá stöðu mála varðandi samningaviðræður við Útskálatún ehf. og sveitarfélagið Garð vegna lóðarleigusamnings við Útskálatún ehf.
Sr. Björn Sveinn hefur sagt embætti sínu lausu frá og með 1. september næstkomandi.
c. Hruni – Hrunaheiðar, girðingadeila
Anna fór á fund kærunefndar sem skipuð er skv. girðingalögum vegna deilu um girðingu milli jarðarinnar Tungufells og afréttarins Hrunaheiða en skv. úrskurði óbyggðanefndar og síðar dómi hæstaréttar eru Hrunaheiðar þjóðlenda en afréttareign prestssetursjarðarinnar Hruna. Deilan er tvíþætt, annars vegar hvort það er íslenska ríkið sem eigandi þjóðlendunnar eða Kirkjumálasjóður sem eigandi afréttarins sem eigi að greiða á móti landeiganda fyrir girðinguna. Hinn þátturinn snýr að því í hvaða hlutföllum slíkt skuli gert.